blaðið - 30.03.2006, Page 10
FIMMTUDAGUR 30. MARS 2006 blaöfö
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
Strepsils töílur eru látnar renna í munni og leysast þar hæat upp. Þannig nást fram staðbundin sótthreinsandi ahrif
i munni og koki. Auk þess hafa bragðefnin væg kælandi ánrif sem slá á ertingu. Venjulega er ein tafla látin leysast
hægt upp i munni á 2-3 klst fresti. Lyfið þarf venjulega aö nota i 3-4 daga og stundum í allt að eina viku. tinnig
má leysa upp 1 -2 töflur í heitu vatni og drekka sem heitan drykk. Notkun lyfsins heíur engin áhrif á önnur iyf sem
notuð eru sanitímis. Ofnæmi eöa ofnæmislik viðbrögð geta komiö fyrir en eru aíar sjaldgæt. Hver pakki af Strepsils
inniheldur 24 munnsogstöflur. sem eru í hentugum þynnupakkningum. Hverri pakkningu fylgja viðurkenndar
leiðbeiningar á íslensku um notkun lyfsins. sem gott er ao kynna sér vel. Geymið þar seni bóm nvorki ná til né sjá.
Olmert fær stuðning til að
marka endanleg landamæri
HALSTOFLUR
- eina skráða hálslyfið á íslandi
Nálgunarbann
á skaðræðiskött
Ehud Olmert, starfandi forsæt-
isráðherra ísrael, mun að öllum
líkindum halda embætti sínu
í kjölfar þingkosninganna í
landinu á þriðjudag. Flokkur
Olmert, Kadima, fékk flest sæti á
þingi, 28, en Verkamannflokkur-
inn fékk tuttugu. Þrátt fyrir að
Kadima-flokkurinn fengi ekki
jafn mörg sæti og honum hafði
verið spáð fyrir kosningar felur
niðurstaða kosninganna í sér
skýrt umboð til flokksins um að
leggja niður byggðir landnema
á Vesturbakkanum og marka
af endanleg landamæri ríkisins
fyrir árið 2010.
Fastlega er gert ráð fyrir að
Olmert myndi ríkisstjórn með
Verkamannaflokknum, flokki elli-
lífeyrisþega og hópi smáflokka
bókstafstrúarmanna. Einnig þykir
hugsanlegt að Olmert biðli til hægri
mannsins Avigdor Liebermann,
sem leiðir Heimili okkar ísrael, til
þess að auka vægi umboðs stjórn-
arinnar til þess að marka endanleg
landamæri Israelsríkis. Á ísraelska
þinginu eru 120 sæti og telja stjórn-
málaskýrendur að samsetning ríkis-
stjórnar Olmerts fari eftir því hvort
hann treysti sér til þess að koma
þessu helsta stefnumáli flokksins
gegnum þingið í krafti breiðs þing-
meirihluta eða hvort að hann kjósi
frekar að treysta á færri þingsæti
og sigur í þjóðaratkvæðagreiðslu
um endanleg landamæri Israel.
Þar sem kosningarnar snérust að
mestu leyti um stefnu Olmerts er
talið að hann muni taka flesta þá
flokka sem eru hlynntir að leggja
niður landnemabyggðir á Vestur-
bakkanum í ríkisstjórnina.
Sögulegt hrun Likud-bandalagsins
Þingkosningarnar í Israel þykja um
margt sögulegar. I fyrsta sinn í 58
ára fengu hvorki Verkamannaflokk-
urinn né Likud-bandalagið flest
sæti á þingi. Klofningur þjóðernis-
sinna og fylgishrun Likud-banda-
lagsins marka einnig söguleg spor.
Bandalagið missti leiðtogahlutverk
sitt á hægri vængnum í hendur
flokks Liebermann, Heimili
okkar ísrael. Ástæðan fyrir fylgis-
hruninu, en Likud-bandalagið er
fimmti stærsti flokkurinn á þingi
eftir kosningarnar, er sú að margir
af fyrrum kjósendum flokksins
studdu Kadima á meðan Lieber-
mann sópaði til sín fylgi innflytj-
enda sem hafa löngum verið dyggir
stuðningsmenn Likud.
Afleiðing breytts landslags í
ísraelskum stjórnmálum
Stjórnmálaskýrendur telja kosning-
arnar endurspegla þá breytingu
sem varð á landslagi ísraelska
stjórnmála þegar Ariel Sharon, þá-
Ehud Olmert, leiðtogi Kadima-flokksins, fékk umboð til þess að hrinda í framkvæmd
þeirri stefnu sem Ariel Sharon, fyrrverandi forsætisráðherra, mótaði.
verandi forsætisráðherra ogleiðtogi
Likud-bandalagsins, vatt kvæði
sínu í kross og fyrirskipaði land-
tökumönnum á Gaza að yfirgefa
byggðir sínar. Fjórum mánuðum
síðar klauf Sharon sig frá Likud-
bandalaginu og stofnaði Kadima-
flokkinn. Eftir að Olmert tók við
embætti forsætisráðherra í kjölfar
veikinda Sharons í janúar hófst
hann handa við að útfæra stefnu
flokksins í smáatriðum. Megin hug-
myndafræðin er sú að stjórnvöld
í Israel verði að draga landamæri
sín þannig að þau aðgreini byggðir
þar sem Israelar eru í meirihluta
á Vesturbakkanum. Stjórnvöld
munu marka landamærin einhliða,
en í samráði við helstu bandamenn
muni palestínsk stjórnvöld undir
forystu Hamas-samtakanna, sem
ísraelar líta á ásamt Vesturlöndum
sem hryðjuverkasamtök, ekki við-
urkenna tilverurétt Ísraelsríkis
og leggja niður hernaðararm sinn.
Stjórnmálaskýrendur telja að áhrif
Verkamannaflokksins innan rík-
isstjórnar Olmerts muni gera að
verkum að viljinn til þess að fara
samningaleiðina við palestínsk
stjórnvöld verði sterkari en ella.
Þrátt fyrir það þykir ljóst að sú leið
verður ekki fær fyrr en að stefnu-
breyting verði hjá Hamas.
Fram til þessa hafa leiðtogar
Hamas neitað að breyta um stefnu
gagnvart ísrael. Sú staðreynd að
Bandaríkin og flest ríki Evrópu
lýstu ánægju sína með niðurstöðu
kosninganna á þriðjudag bendir til
þess að svigrúm Olmerts til þess að
marka landamæri ísraels einhliða
verði töluvert.
Ruglaður köttur sem býr í Fairfield
í Connecticut-ríki í Bandaríkjunum
hefur sett heilt bæjarfélag á annan
endann.
Kötturinn heitir Lewis og segja
nágrannar kattarins að þeir ótt-
ist vígafimi hans og skeinuhættar
árásir svo að þeir þori ekki út fyrir
hússins dyr. Undanfarið hefur kött-
urinn ráðist á hátt í tíu vegfarendur
í hverfi sínu með þeim afleiðingum
að þurft hefur að leggja sum fórnar-
lömbin inn á spítala vegna djúpra
sára sem klær og bit kattarins hafa
valdið. Engin bönd halda kisu og
vegur hún einatt úr launsátri, án
nokkurrar sjáanlegrar ástæðu.
Eftir að leggja þurfti fyrsta fórnar-
lamb kisa inn á sjúkrahús var köttur-
Kötturinn Lewis er skaðræðisgripur sem
hrellir saklausa borgara með iinnuiausum
árásum.
inn kærður til viðeigandi yfirvalda
í bænum. Niðurstaða þeirra var að
setja nálgunarbann á köttinn. Nálg-
unarbannið þýðir í verki að kisi er í
stofufangelsi. Lewis gat ekki unað
þeim dómi og hefur haldið uppi
árásum á nágranna með þeim afleið-
ingum að eigandi kattarins, Ruth Cis-
ero, sem hefur enga skýringu á taum-
lausri reiði kattarins, hefur verið
kærð fyrir vítavert gáleysi og brot á
nálgunarbanni.
VLyf&heilsa
Við hlustum!
Austurstrasti ■ Austurveri • Domus Medica ■ Firði, Hafnarfirði ■ Fjarðarkaupum
Glæsibæ • Hamraborg Kópavogi ■ JL-húsinu • Kringlunni 1 .liæð • Kringlunni 3.hæð
Melliaga ■ Mjódd ■ Mosfellsbæ • Salahverfí ■ Eiðistorgi • Hellu ■ Hveragerði • Hvolsvelli
Kjarnanum Selfossi ■ Vestmannaeyjum ■ Þorlákshöfn ■ Dalvík • Glerártorgi Akureyri
Hrísalundi Akureyri ■ Ólafsfirði • Akranesi ■ Keflavik
GARÐHEIMAR
C F UD®m \
npsa n §3® [ íuUgM.