blaðið - 30.03.2006, Side 14

blaðið - 30.03.2006, Side 14
blaðiðH=a Útgáfufélag: Ár og dagur ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson. Ritstjóri: Ásgeir Sverrisson. Fréttastjórar: Aðalbjörn Sigurðsson og Erna Kaaber. UMSKIPTI í ÚKRAÍNU Víktor Jústsjenko, forseti Úkraínu, varð fyrir niðurlægjandi ósigri í þingkosningunum sem fram fóru um liðna helgi. Forsetinn varð undir í glímu við manninn sem hann lagði sjálfur að velli fyrir aðeins rúmu ári. Og konan sem hann rak úr embætti fyrir aðeins sex mán- uðum reyndist eiga meira fylgi á meðal þjóðarinnar en hann. Jústsjenko komst til valda árið 2004 í „appelsínugulu byltingunni“ svo- nefndu þegar almenningur reis upp gegn stórfelldum svikum sem stjórn- völd höfðu gengist fyrir í því skyni að tryggja Víktor nokkrum Janúkovítsj embætti forseta. Janúkovítsj er hallur undir Rússa og vill treysta á ný sam- skipti þessara nágrannaríkja, sem eiga sér sameiginlegan menningararf og sögu. Janúkovítsj þótti boðberi hins liðna og Úkraínumenn, einkum í vesturhluta landsins, bundu vonir sínar við stefnu Jústsjenkos sem hét nánara samstarfi við vestrænar stofnanir á borð við Evrópusambandið og Atlantshafsbandalagið. Á aðeins rúmu ári hafa orðið algjör pólskipti í úkraínskum stjórnmálum. Flokkur Janúkovítsj fór með sigur af hólmi í þingkosningunum um liðna helgi og svo virðist sem Júlía Tímosjenko, sem Jústsjenko rak úr embætti forsætisráðherra fyrir sex mánuðum, geti gert tilkall til embættisins á ný. Fyrir aðeins rúmu ári studdu um 70% kjósenda Jústsjenko í forsetakosn- ingunum. Nú virðist sem flokkur forsetans hafi aðeins fengið um 16% at- kvæða í þingkosningunum. Þetta eru nánast lygileg umskipti. Sérfróðir sýnast almennt hallast að því að skýringanna sé að leita á sviði efnahagsmála; Jústsjenko hafi ekki tekist að koma á þeim umbótum sem hann boðaði. Vafalaust er það að hluta til rétt en jafnframt ber að hafa í huga að forsetinn er í raun enginn byltingarmaður og er mótaður afvaldakerfi sem einkenndist af stöðnun og spillingu. Jústsjenko sýnist búa yfir takmörkuðum pólitískum hæfileikum líkt og sést á því að bandalagið sem hann myndaði með Júlíu Tímosjenko hélt ekki sökum eilífrar valdabaráttu og ásakana um spillingu. Litlar líkur sýnast á því að þetta fólk geti gengið til raunverulegs samstarfs á ný þó svo forsetinn eigi vart annan leik í stöðunni. Neyðist hann til að skipa Júlíu Tímosjenko forsætisráðherra á ný verður niðurlæging hans algjör. Öflugir pólitískir straumar leika nú um samfélag Úkraínumanna. Vilji fólksins hefur verið leiddur fram í lýðræðislegum kosningum en Jústsjenko er lítt til forystu fallinn. Valdabarátta og pólitísk ólga munu setja svip sinn á stjórnmál í Úkraínu á næstunni og líklegt er því að nauðsynlegar um- bætur muni enn sitja á hakanum. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingan Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur. Aðalsími: 510 3700. Símbréf áfréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711. Netföng: vbl@vbLis, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur. Tryggðu þér áskrift að tímaritinu Þjóðmálum Áskrift má panta hiá Andríki á www.andriki.is 14 I ÁLIT FIMMTUDAGUR 30. MARS 2006 blaöiö MÁ VE^A/VP KTtA VErkBeHí MttSÍTi I/JNSÆITkuM&æVí 10R., /VI/IRKSÆKWr, JVNBLÁSTUK, MúfóVi FRúMLE/KlA, tlVMÓfy SAMPELAGSViTuism SKÖPl/A/4£kXAFr ÁL&Th//, PU^ÞJÖKFl/MG, 0G 'FELAGSLE^A OSSJÁlFBÆKA tiT&TAKLiNGWiTUNP. FA/ ÉG BflKA FflA BEtLS. STÓRiflllSTETNlllW. 4ÍAikki».3'U: It3q Skrifaðu flugvöll! Einhverju sinni var saga af því sögð að ráðherra á kosningaferðalagi hefði rætt við umbjóðendur sína um kjördæmið þvert og endilangt og hlustað af áhuga á umkvartanir þeirra og tillögur um landsins gagn og nauðsynjar, að ekki sé minnst á hagsmuni kjördæmisins. Hann hafði með sér aðstoðarmann og einhverju sinni, þegar einn kjósandinn hafði rætt við hann nauðsyn þess að koma á betri flugsamgöngum við kjördæmið, snéri hann sér að skjaldsveininum og mælti: „Skrifaðu flugvöll!" Ég var farinn að vona að þessir vondu dagar fyrirgreiðslupólitíkur - þar sem höfðingjar riðu um héruð og veittu bændum af örlæti sínu og náð - væru löngu liðnir. En núna er ég ekki viss. Það eru kosningar í nánd og mér heyrist annar hver frambjóðandi, nei, næstum hver einasti, vera að „skrifa flugvöll". Leifsstöð lifnar við Það er kunnara en frá þurfi að segja að Bandaríkjamenn ætla að draga verulega úr varnaviðbúnaði sínum á landinu. Það kann að hafa komið flestum á óvart með hvaða hætti það bar að, en á hinn bóginn var öllum - sem á annað borð vildu vita - Ijóst að breytingar á tilhögun mála á Miðnesheiði væru á næsta leiti. Auðvitað vissu allir að það væri aðeins spurning um tíma hvenær íslendingar þyrftu að axla frekari byrðar af vörnum landsins og hið nærtækasta í því samhengi var vitaskuld að við tækjum við rekstri Keflavíkurflugvallar. Sem við hefðum auðvitað fyrir löngu átt að hafa gert. Þar er okkar alþjóðaflugvöllur og líflína úr landinu og þessari auðugu þjóð átti ekki að vera neins vant til þess að geta rekið hann. Eins og er nú komið á daginn. Þá blasir við augljós spurning: Er verjandi að fslenska þjóðin kosti rekstur tveggja alþjóðaflugvalla með 50 km millibili? Áuðvitað ekki. Það er hrein fásinna og sóun. Umleiðhafaaugumannahinsvegar opnast fyrir margvíslegum kostum í kringum Keflavíkurflugvöll og Leifsstöð. Augljóst er að þar mun losna mikið land um leið og varnarsvæðinu er breytt og menn hafa nefnt margvíslega nýbreytni Andrés Magnússon til þess að nýta flugvöllinn betur en verið hefur og um leið leita leiða til þess að leysa þann atvinnuvanda, sem blasir við Suðurnesjum þegar þessi umsvifamikli atvinnurekandi hverfur úr landi. Þar hefur Árni Sigfússon, bæjarstjórinn í Reykjanesbæ, gengið á undan með góðu fordæmi og blásið mönnum kapp í kinn. Það er því alls ekki ólíklegt að áður en yfir lýkur verði brotthvarf Bandaríkjahers atvinnulífinu suður með sjó mikil lyftistöng. Eða það vonar maður. Kvakið við Tjörnina En hvaða raus er það þá, sem berst frá Ráðhúsi Reykjavíkur f bland við vorkvak andanna á Tjörninni? Frjálslyndir vilja raunar halda í hernaðarástandið og hafa flugvöllinn í Vatnsmýri uns nær dregur heimsenda. En hinir flokkarnir virðast líka vera á því að það þurfi flugvöll í Reykjavík og finnst fjarstæða að innanlandsflugið flytjist til Keflavíkur. Vilja leggja nýjan flugvöll ef ekki vill betur, úti á skerjum eða í námunda við Keflavíkurflugvöll! Engu virðist skipta að Reykjanesbær og höfuðborgar- svæðið eru fyrir löngu orðin eitt atvinnusvæði og öll teikn á lofti um að sú samþætting verði æ nánari á næstu árum meðfram Reykjanesbraut. Sóun opinberra fjármuna við að hafa tvo flugvelliþar sem einn dygði virðist engu skipta heldur. Að ekki sé minnst á þann óleik, sem Suðurnesjamönnum væri gerður á ögurstundu, með því að halda aftur af vaxtarskilyrðum í kringum Keflavíkurflugvöll með þvf að halda innanlandsfluginu þaðan. Það mætti halda að fjárhagsstaða Reykjavfkurborgar væri bara ekki jafnbagaleg og maður hefur haldið. Fyrir kosningar finnst mönnum kannski þægilegast að skrifa bara flugvöll og vona það besta. En það á að ætlast til meiri ábyrgðar af stjórnmálamönnum. Þeir eiga ekki að velja fyrirstöðuminnstu leiðina heldur þá réttustu. Nú er lag til þess að loka óskapnaðinum í Vatnsmýri og leyfa Suðurnesjum að rétta úr kútnum. Höfundur er blaðamaður. Klippt & skorið Hafliði Helgason, ritstjóri viðskipta- frétta á Fréttablaðinu, veltir fyrir sér umræðunni og stöðunni á fjármála- markaðinum í Fréttablaðinu í gær. Hafliði, sem þekkir blaðamanna best íslenska útrásarhag- kerfið, segir: „Bankarnir og útrásarfyrirtækin hafa nýtt sér kjöraðstæður á markaði. Lánsfé í evrum er ódýrt og eigið fé í íslenskum krónum er verðmeira en áður. Þar við bætist að peningar í umferð innanlands hafa verið umtalsverðir og kjöraðstæður til þess að sækja sér aukið hlutaféá markað." Fyrirþá sem eru menntaðirí gamaldagshagfræði virðist Hafliði vera að lýsa kjöraðstæðum fyrir eignaverðbólgu frekar en traustum grunni fyrir heilbrigðu hagkerfi. R eyndarvirðistathafnamaðurinnBjör- ólfur Thor Björgólfsson sækja vísdóm sinn í gamaldagshagfræði frekar en í íslensku útrásarhagfræðina. (frétt Morgunblaðsins um aðalfund Actavis á þriðju- dag kemur fram að Björgólfur, jl sem er stjórnarformaður lyfjafyr- Cf iftækisins, hafi sagt í ræðu sinni oð hið mikla peningamagn sem er í umferð í íslenska hagkerfinu hafi „þrýst upp gengi bréfa í félögum án sýni- legra breytinga sem réttlætt gætu svo mikla gengishækkun." Auglýsingaherferð lcelandair í Morg- unblaðinu á sér enga líka, en flug- félagið keypti nánast hverja einustu auglýsingu í syst- urblaðinu. Þá þarf þó að undan- skilja dánarfregnir og jarðarfara- auglýsingar, sem fengu að standa óhaggaðar. Markmiðið með þessari herferð er klipptogskorid@vbl.is næsta óljóst þó Jón Karl Ólafsson, forstjóri lcelandair, hafi fylgt hennl úr hlaði og sagt að þannig vildi félagið kynna nýjar áherslur. Miðað við kvartanir farþega í fjölmiðlum að undanförnu virðist sem áhuginn liggi ekki endilega á ferðasviðinu, sem auðvitað er lak- ara hjá flugfélagi. Annars tóku menn eftir því að Pálmi Haraldsson í Fons keypti erlenda (slandsferðaskrifstofu á dögunum og nefndi í því sam- hengi að rekstur hennar færi afar r vel saman við flugrekstur lceland Express. Um það efast fáir, en óneitanlega þykir ýmsum skrýtið að lcelandair - þar sem Pálmi á einnig umtalsverðra hags- muna að gæta - skuli á sama tíma vera búið að selja nánast allan ferðatengdan reksturfrá sér.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.