blaðið - 30.03.2006, Page 23
blaðið FIMMTUDAGUR 30. MARS 2006
MATURI 23
mjnnesk
05
150 g O
OUUflNlECT A AKURINN
sl'’tlUfl *ies (ttðsiAosij
TWsM
Að lœra að njóta matarins
Hugrœn atferlismeðferð er árangursrík við að hjálpafólki að grennast en þá er skoðað hvaða hugsanir liggja að baki ofáti
gera eitthvað allt annað, einhverja
ósamrýmanlega hegðun. Til dæmis
væri það ósamrýmanleg hegðun að
fara í heitt freyðibað og setja á sig
húðkrem í stað þess að láta eftir þess-
ari skyndihvöt. Þetta hjálpar til þess
að dreifa huganum og það hjálpar
mörgum að standast skyndihvatir.“
Orsökog afleiðing
Helma segir að fólk sé mjög vanafast
en smám saman sé hægt að breyta
hegðun og hugsun. „Það getur tekið
einhvern tima en það er mjög ein-
staklingsbundið. Það er oft erfiðast
að byrja en verður auðveldara þegar
árangur fer að sjást og aðrir tala um
það. Það hjálpar mikið til enda er
það mikil styrking fyrir viðkomandi.
En aftur vil ég leggja áherslu á að allt
er þetta nú einstaklingsbundið. Hjá
sumum veit maður ekki hvað er or-
sök og hvað er afleiðing. Sumir þjást
kannski af þunglyndi og maður veit
ekki hvort það er orsök eða afleiðing
á meðan sumir þurfa kannski bara
fræðslu um mataræði.“
svanhvit@bladid.net
Helma Rut Einarsdóttir, sál-
fræðingur:,, Þegar fólk finnur
fyrir svona skyndihvöt þá skiptir
ofboðslega miklu máli að gera
eitthvað allt annað, einhverja
ósamrýmanlega hegðun."
Það má segja að hugarfarið sé
sterkasta aflið sem við mannfólkið
höfum því með það eitt að vopni má
ná ýmsu fram. Flestir vita að til að
breyta lífi sínu til hins betra er hug-
arfarsbreyting það fyrsta sem ganga
þarf í gegnum. Svipað á við þegar
verið er að grenna sig eða breyta um
lífsstíl. Það hvaða augum einstak-
lingur lítur á matinn sem hann inn-
byrðir getur haft gríðarleg áhrif.
Helma Rut Einarsdóttir, sálfræð-
ingur, segir að hugarfar sé hluti af
hollu mataræði þótt hegðun sé vit-
anlega mismunandi á milli einstak-
lingá. „Að læra að njóta matarins
getur verið hluti af meðferð. Fólk
sem borðar einn lítra af ís og heilan
snakkpoka í einni lotu er löngu
komið með ógeð á matnum en heldur
samt áfram að borða. Vitanlega er
þetta mismunandi og til dæmis er
til átröskunarsjúkdómur sem heitir
lotuát. Fólk sem þjáist af lotuáti er
mjög þungt og borðar í köstum. Eitt
kvöld borðar það kannski máltíð
sem samsvarar mörgum máltíðum
en það er alls ekki þannig að allir
sem eru of þungir séu með lotuát,“
segir Helma og bætir við að hug-
arfarsbreyting geti breytt mörgu í
hegðun fólks.
99....................
„Það er skoðað hvaða
hugsanir liggja að baki
miklu áti eða vanlíðan.
Hvað gerðist áður en
einstaklingurinn borð-
aði óhóflega mikið eða
fékk þunglyndiskast."
Stanslaust að tala við okkur
„Stór hluti af þessu er að læra að
breyta hegðuninni beint og annar
hluti er að skoða hvað maður er að
hugsa um,“ segir Helma. „Hugræn
atferlismeðferð hefur verið mjög ár-
angursrík meðferð við þunglyndi,
kvíða og mörgum kvillum. Það er
að sýna sig að hún er líka árangurs-
rík við að hjálpa fólki að grennast.
Þá er verið að skoða hugsanirnar
og hvað við segjum við okkur sjálf
því við erum stanslaust að tala við
okkur. Það er skoðað hvaða hugsanir
liggja að baki miklu áti eða vanlíðan.
Hvað gerðist áður en einstaklingur-
inn borðaði óhóflega mikið eða
fékk þunglyndiskast? Út frá þessu
lögmáli er gengið þegar hugræn at-
ferlismeðferð er notuð til að vinna á
þunglyndi eða kvíða.“
Skyndihvatir nokkrum
sinnumádag
Samkvæmt Helmu eru þessar hugs-
anir oftar en ekki ómeðvitaðar og
viðkomandi gerir sér sennilega ekki
grein fyrir þeim. „Það er hluti af
meðferð að gera þær meðvitaðri og
vinna með þær. Smátt og smátt þjálf-
ast fólk og getur jafnvel breytt hugs-
unum sínum á staðnum en ekki
eftir á. Hjá mörgum er stór hluti af
breyttum lífsstíl að læra að þykja
vænt um sjálfa sig. Oft eru þetta
skyndihvatir sem gera ferlið erfiðara
en skyndihvöt er þessi hvöt að þurfa
allt í einu að fá sér súkkulaði eða eitt-
hvað annað sætt. Rannsóknir sýna
að fólk fær skyndihvatir að meðal-
tali 4-7 sinnum á sólarhring. Sumir
sem glíma við þetta vandamál finnst
sem þeir hugsi um mat allan daginn
og þurfi alltaf að passa sig. En þetta
er kannski bara fjórum sinnum yfir
daginn og svo líður það hjá en það
tekur nokkrar mínútur. Þegar fólk
finnur fyrir svona skyndihvöt þá
skiptir ofboðslega miklu máli að
HIMNESK
„Salatið frá Himneskri hollustu er unnið úr fyrsta flokks eiturefnalausu
hráefni, rekjanlegt beint a akurinn, sem þýðir meiri gæði og aukinn ferskleika.
Þú þekkir mig á myndinni.'1 - Solla
HOLLUSTA