blaðið - 30.03.2006, Page 28
28 I ÍPRÓTTIR
Draumalið Erics Cantona
TIL SÖLU
Þegar þú vilt þægindi
//
Opið þri.-fim.l 0.00-17.00 fós. 10.00 -16.00
S:568-2878 Síðumúla 13,108R
www.praxis.is praxis@praxis.is
Knattspyrnugoðið og fyrrum
leikmaður Manchester United,
Eric Cantona, valdi á dögunum
draumalið sitt fyrir knattspyrnu-
tímaritið FourFourTwo. Liðið er
skipað n stórkostlegum leik-
mönnum og ekki síður miklum
persónuleikum.
Svarta perlan Pele, sem margir
telja besta knattspyrnumann fyrr
og síðar, fær ekki sæti í liði Frakk-
ans en það gerir hins vegar Diego
Maradona sem Cantona heldur
fram að standi Pele miklu framar.
Sóknarparið samanstendur af
Mario Kempes og George Best og
þá er Roy Keane, fyrrum sam-
herji Cantona, á meðal liðsmanna.
Þessir leikmenn mynda besta
knattspyrnulið sögunnar að mati
Frakkans:
Hægri bakvörður - Junior
„Hann var sterkur leikmaður og mik-
ið karlmenni. Góður að verjast og
gat verið frábær fram á við líka. Lék
lykilhlutverk í brasilíska landslið-
inu á HM 1982 sem sumir segja að
sé besta liðið af þeim sem unnu ekki
keppnina.“
Miðvörður - Franz Beckenbauer
„Fæddur leiðtogi sem hafði mikla
hæfileika og var virðulegur á velli.
En hann hryggbraut mig þó þegar
ég var átta ára. Ég var að horfa á úr-
slitaleik heimsmeistaramótsins 1974
og hélt með Hollandi sem var að
keppa við Vestur-Þýskaland. Beck-
enbauer fór fyrir síðarnefnda liðinu
- sem vann. Ég hágrét eftir leikinn og
var mjög leiður. En í dag kann ég vel
að meta snilli keisarans.“
Pizza 67, Austurveri
Háaleitisbraut 68, Sími 800 6767
Umbúöarlausnir Eigum lausnina
fyrir þig. Allt til umbúðarpökkunar fyrir
fyrirtæki og verslanir. Umbúðastanda,
pappír, pokar og bönd. Danco ehf., Simi
575-0200 www.danco.is
Vinstri bakvörður - Gi-
acinto Facchetti
„Það verður að vera ítalskur varnar-
maður í liðinu og þá er enginn betri
en Facchetti. Ég var of ungur til að
sjá hann spila sjálfur en ég hef séð
myndbönd með honum og varð sam-
stundis ástfanginn. Hann var göfug-
ur leikmaður og hæfileikaríkur og
skoraði grimmt miðað við varnar-
mann.“
Allar pizzur af matseðli
+ 9" hvítlauksbrauð á
aðeinsllSOkr
eða
16" pizza með 2/álegqjum
+ 9"hvítlauksbrauo á
aöeins 1150 kr.
TIL SÖLU, BEYKI INNRÉTTING,
KAUPANDI TEKUR SJÁLFUR NIÐUR.
NÁNARI UPPL.S',659-4102 E.KL.17:00.
Svefnskáli
Til sölu 18,75 fm skáli.
Svefn-pláss fyrir 3. Setu-
stofú- og eldhúsaðstaða.
Ferðaklósett fylgir. Skápar
og raftnagnsofnar.
Hentugur til flutnings. Uppl.
í s: 5540332, 8980332 og
4061
Snillingurinn Cantona á harðaspretti.
Markvörður - Carlos Valderrama
,Hann var alltaf að gera einhverjar
kúnstir og ég vil hafa skemmtikrafta
í mínu liði. Vissulega gerði hann mis-
tök inn á milli en á heildina litið var
hann frábær markvörður sem gerði
knattspyrnuna skemmtilegri. Sporð-
drekamarkvarslan gegn Englandi
segir allt sem segja þarf.“
Varnartengiliður - Roy Keane
„Þarf ég að segja meira? Hann var sá
besti á miðjunni og gat spilað hvar
sem er. Hann varðist betur en flest-
ir en gat líka brunað upp völlinn og
skorað mörk. Ég get sagt ykkur að
það var góð tilfinning að hafa hann
fyrir aftan mig fjögur tímabil."
Hægri miðjumaður - Rene Higuita
„Margir muna kannski bara eftir
hárinu á honum, en hann var líka
frábær knattspyrnumaður. Við lék-
um saman hjá Montpellier og það
var mikil skemmtun. Hann var ekki
líkamlega sterkasti leikmaðurinn
en hann var mikill hugsjónamaður
og gat komið boltanum hvert sem
hann vildi. Síðan hann hætti hefur
Baráttujaxlinn Roy Keane er eini leikmaðurinn í draumaliðinu sem er ennþá spilandi.
Argentinska goðsögnin Diego Maradona verður alltaf sá besti, að mati Eric Cantona.
kólumbíska landsliðið ekki getað
neitt og það segir mikið.“
Vinstri miðjumaður - Di-
ego Maradona
„Sumir segja Pele vera besta leik-
mann allra tíma, en ekki ég. Marad-
ona verður alltaf sá besti. Hann vann
keppnina 1986, tapaði naumlega í úr-
slitum 1990 og hefði kannski getað
unnið 1994 ef hann hefði ekki verið
settur í bann. Meginmunurinn á
Pele og Maradona er að Pele var allt-
af umkringdur frábærum leikmönn-
um en ekki Maradona. Ef Maradona
hefði ekki verið í argentínska lands-
liðinu hefði það aldrei unnið HM, en
Brasilía hefði getað unnið án Pele.“
Hægri kantmaður - Garrincha
„Því miður hef ég ekki séð mikið
af upptökum af honum á velli, en
hann er nákvæmlega sá leikmaður
sem ég vil hafa í liðinu mínu. Það
sem ég hef lesið og heyrt um hann
er einfaldlega þess eðlis. Þó hann sé
ekki mikils metinn í dag væri hann
vafalaust einn sá besti í heiminum
ef hann væri að spila núna.“
Vinstri kantmaður - Johan Cruyff
„Ég elskaði hollenska landsliðið á
áttunda áratugnum og Cruyff var
bestur af þeim. Hann var hetja mín
í barnæsku og ég var með stórt vegg-
spjald af honum í herberginu mínu.
Hann kom af stað byltingu í knatt-
spyrnunni með leik sínum, svo
skapandi var hann. Ef hann vildi
gat hann verið besti leikmaðurinn í
hvaða stöðu sem er á vellinum"
Sóknarmaður - Mario Kempes
„Kempes er helst minnst fyrir að
hafa leitt argentínska landsliðið til
sigurs á HM 1978 en hann var ekki
síður frábær hjá Valencia á Spáni.
Hann gat skorað mörk, en það sem
meira er þá gerði hann það þvílíkum
glæsibrag. Hann var stór og sterkur
skallamaður en ekki síður snöggur
og hafði frábæra tækni.“
Sóknarmaður - George Best
„Hann var frjálslyndur með afbrigð-
um og hafði mikla persónutöfra.
Með George og hina leikmennina
er ég viss um að það væri mjög gam-
an að ferðast í liðsrútunni. Hann
elskaði lífið en þegar kom að knatt-
spyrnu var hann alltaf mjög einbeitt-
ur og gaf allt sem hann átti. Hann
skildi eftir sig frábærar minningar á
Old Trafford þrátt fyrir að hafa farið
frá liðinu ungur.“
Knattspyrnustjóri - Eric Cantona
„Ég ætlaði að velja Cruyff sem spil-
andi þjálfara því hann var svo mik-
ill hugsuður og vildi stöðugt bæta
leikmennina sína. Ég veit hvers lið-
in hans eru megnug og mér er enn
minnisstætt þegar ég horfði á Barc-
elona sigra United 4-0 1994. En svo
hugsaði ég með mér að fyrst ég valdi
liðið ætti ég að fá að stjórna því. Ég
myndi elska að stýra þessu liði. Ég
veit að við myndum eiga góðar
stundir saman.“
NÁMSKEIÐ í GLERMALUN!
Alla fimmtudaga kl. 20.00
(einnig aðra daga eftir eftirspurn)
Byrjendur geta mætt
hvenær sem er.
Skapaðu þín eigin listaverk!
Upplifðu einstæða litatöfra
glermálningarinnar frá
Frakklandi sem
ekki þarf að brenna!!!
(3000 kr skiptið)
- efniskostnaður innifalinn -
Innritun í síma: 55 - 282 - 55
Listasetur Lafleur
Hólmaslóð 4,101 Rvk
S: 55-282-55
VERSLUN
UR OG SKARTGRIPIR
Full búðaffallequm
fermingargjöfum
Strandgötu 37 220 Hlj
Opið mán-fös. 08-18 lau. 11-16
Sími 565-4040 Fax 552-4567
www.gunnimagg.is
lovedsign.is