blaðið - 30.03.2006, Page 30
30 I ÍPRÓTTIR
FIMMTUDAGUR 30. MARS 2006 blaöiö
■ Utan vallar með Dagnýju Lindu Krstjánsdótiir, skiðakonu
Ætlaði að verða strákur
Fæðingardagur og ár?
8. nóvember 1980.
Besta bíómynd?
Nonni og Manni.
Besta bók?
Les mikið en Arnaldur Indriða er
alltaf góður.
Besta hljómsveit/tónlistarmaður?
Ég hlusta á nánast allt en U2 klikkar
svo sem aldrei.
Besti matur?
Kæst skata.
Hvað gleður þig mest?
Hamingja mín og annarra.
Hvað fer mest í taugarnar á þér?
Óheiðarleiki.
Hvað ætlaðir þú að verða
þegar þú varst barn?
Ég ætlaði mér að verða strákur.
Mestu vonbrigðin á
íþróttaferlinum?
Hnémeiðsli í janúar 2004.
Mesta afrek innan vallar og utan?
Innan vallar: Árangur minn á Ó1
í Tóríno í vetur. Utan vallar: Ég er
alltaf innan vallar.
Uppáhalds lið í enska boltanum?
Hef ekki tíma fyrir enska boltann.
Uppáhalds íþróttamaður
fyrr og síðar?
Lasse Kjus, skíðamaður frá Noregi.
Ef þú þyrftir að skipta um íþrótt,
hvaða íþrótt yrði fyrir valinu?
Sennilega fótbolti en annars kemur
nánast allt til greina.
(slandsmeistaratitill eða
1. vinningur ílottói?
Það bættust þrír íslandsmeistara-
titlar við í safnið um síðustu helgi
og mig vantar alltaf pening svo það
væri fínt að fá einn lottóvinning.
Hvaða persónu vildirðu helst
lokast inni í lyftu með?
Kærastanum mínum.
Hvaða dýri finnst þér
þú helst líkjast?
Ætli ég líkist ekki apa, því ofar sem
ég kemst því betra.
Hvert myndirðu fara ef
þú ættir tímavél?
Miðað við lýsingar væri ég til í að
fara í aldingarðinn í Eden - paradís
á jörðu.
Hvað myndi bíómyndin um þig
heita og hver ætti að leika þig?
„Dæja“ og Kata systir fengi hlutverkið
því hún líkist mér einna helst.
Hvernig myndi einkamála-
auglýsingin þín hljóma?
Ég myndi aldrei skrifa
einkamálaauglýsingu.
Hver er tilgangur lífsins?
Ef ég gæti svarað því væri ég senni-
lega einn mesti snillingur sögunnar.
Hver viltu að lokaspurningin verði
og hvernig myndirðu svara henni?
Einhverjum sem þú vilt þakka að
lokum? Mömmu og pabba fyrir lífið
og stuðninginn í gegnum það.
smellu-
rammar
Auövelt að skipta
um myndefni
verð frá
kr. 2.490 +24,5% vsk.
inm- ,u.
skilti
Hægt að
fella saman
verð frá
kr. 9.900 +24,5% vsk.
Wt
www.samskipti.is
upplýsingar í
síma
580 7820
S4*SKIPTí»SC
prentlausnir fyrir skapandi fólk
Síöumúli 4 S:
Hverfisgota 33 s:
Hæðasmári 4
Smiójuvegi 1
580 7800
580 7860
580 7880
580 7870
Mido bíður ekki endalaust
Tottenham gæti misst af Egyptanum
Mido hafi liðið ekki hraðar hendur
og kaupi hann af Roma. Þetta segir
umboðsmaður leikmannsins, Mino
Raiola, en Mido hefur verið I láni hjá
Lundúnaliðinu frá því rómverska
frá því á síðasta tímabili. Spurs
hefur ítrekað lýst yfir að vilji sinn
sé að halda Mido til frambúðar en
félagið hefur þó ekki komist að sam-
komulagi við Roma um kaupverð.
Mido hefur átt gott tímabil með
Lundúnaliðinu í vetur og hefur
sjálfur sagst vilja vera þar áfram.
„Ég er vonsvikinn með að hafa ekki
náð samningum við Tottenham
og mér finnst framganga þeirra í
þessu máli undarleg. Ég er farinn að
halda að liðið vilji ekki borga fyrir
hann,“ sagði Raiola. „Við eigum í við-
ræðum við Tottenham, við eigum í
viðræðum við Roma og við erum
líka að tala við önnur lið. Við höfum
ekki útilokað Tottenham en önnur
lið þykja nú líklegri til að klófesta
Mido,“ bætti hann við.
Mido segir þjálfara egypska
landsliðsins til syndanna þegar
sá síðarnefndi gerðist svo kræf-
ur að skipta honum af leikvelli á
Afríkumótinu.
LENGJAN
LEIKIR DAGSINS
Spiiaðu á næsta sölustað eða á lengjan.is
Japan - Ekvador 1,70 2,85 3,25
Trabzonspor - Konyaspor 1,45 3,10 4,25
Diyarbakispor - Fenerbache 5,15 3,50 1,30
Levski Sofia - Schalke 2,55 2,65 2,10
YF Juventus - Bellinzona 1,90 2,75 2,80
Rapid Búkarest - Steaua Búkarest 2,05 2,65 2,60
Basel - Middlesbro 1,95 2,70 2,75
Sevilla - Zenit St.Petersburg 1,45 3,10 4,25
Edmonton - Los Angeles 1,80 3,50 2,45
Montreal - Washington 1,45 4,00 3,25
New Jersey - Buffalo 2,05 3,25 2,25
Ottawa - NY Rangers 1,70 3,65 2,60
Tampa Bay - Atlanta 1,80 3,50 2,45
Skeytin inn
Islandsmeistarar FH hafa
samið við tvo danska knatt-
spyrnumenn um að leika
með liðinu í sumar. Um er að
ræða þá Allan Dyring, sem er
26 ára gamall sóknarmaður, og
Peter Matzen, sem er 29 ára gam-
all varnarmaður. Þá tilkynnti
FH að Ólafur Páll Snorrason og
Tómas Leifsson hefðu skrifað
undir nýja samninga við félagið.
FH-ingar halda í æfingaferð til
Portúgal í næstu viku þar sem
þeir munu m.a. leika æfinga-
leik við sænsku meistarana
Djurgarden.
Arsene Wenger, stjóri
Arsenal, segir að þrátt
fyrir að liðið fari með
2-0 sigur í veganesti í seinni
viðureign liðsins við Juventus í
meistaradeildinni, eigi liðið ein-
ungis helmings möguleika á að
komast áfram. „Við verðum að
halda okkur á jörðinni og spila
fótbolta," sagði Wenger. „Eg met
þaðsvoaðvið
eigum 50%
möguleika á
að komast í
undanúrslit.
Ég hef trú á
því að við
getum það
en í augna-
blikinu vil ég
bara hugsa um leikinn við As-
ton Villa á laugardaginn,“ sagði
Wenger. Hann sagðist einnig
naga sig í handabökin yfir að
hafa ekki náð að bæta við þriðja
markinu en Arsenal fékk urmul
færa í leiknum og þá fengu tveir
leikmanna Juventus rautt spjald
undir lokin.
Steve McClaren, stjóri
Middlesbrough, segir að
leikmenn sínir verði að
bera virðingu fyrir Basel sem sé
sýnd veiði en ekki gefin. Boro
og Basel mætast í fjórðungsúr-
slitum Evrópukeppni félagsliða
annað kvöld en leikurinn, sem
er sá fyrri, fer fram í Sviss.„Basel
er með virkilega gott lið og hefur
mikla reynslu af Evrópukeppn-
inni. Heimavöllurinn þeirra er
geysilega erfiður heim að sækja
og nægir að líta til Liverpool,
Manchester United og Inter
sem hafa öll lent í miklum vand-
ræðum þar,“ sagði McClaren.
Miall Quinn hefur áhuga
á því að kaupa botnlið
ensku úrvalsdeildar-
innar, Sunderland, sem hann
lék sjálfur með um árabil. Nú-
verandi stjórnarformaður, Bob
Murray, hefur lýst því yfir að
hann vilji selja 56,8% hlut sinn
í félaginu sé einhver tilbúinn að
greiða uppsett verð fýrir. Quinn,
sem er 39 ára, er sagður hafa
legið undir feldi undanfarnar
vikur og velt því fyrir sér hvort
Sunderland sé hagkvæmur
kostur. Talsmenn Sunderland
hafa ekki enn viljað tjá sig um
málið. Liðið hefur sem kunnugt
er átt hörmulegt tímabil og situr
langneðst á botninum með 10
stig eftir að hafa unnið aðeins
tvo leiki af 31 á leiktíðinni.