blaðið - 30.03.2006, Blaðsíða 32

blaðið - 30.03.2006, Blaðsíða 32
321 MENNIWG FIMMTUDAGUR 30. MARS 2006 blaöiö Reykingabann bjá leikurum Skoskir leikarar og sjónvarps- og kvikmyndaframleiðendur eru ekki sáttir við reykingabann sem tekið hefur gildi í Skotlandi. Lögin skilgreina kvikmynda- og upptökuver sem vinnustaði og þar ber því að fylgja reykingabanninu. Fyrir vikið verða persónur í sjón- varpsmyndum að láta af reykingum. Þetta á til dæmis við um lögreglufull- trúann Rebus en fjölmargir vinsælir sakamálaþættir hafa verið gerðir þar sem þessi keðju- reykingamaður leysir glæpi. Frést hefur að handrita- höfundar þáttanna hafi brugðist við lögunum með því að skrifa inn í næstu þáttaröð atriði þar sem lögreglufulltrú- inn brýtur bannið þegar hann kveikir sér í sígarettu á eftirlæt- iskrá sinni og lendir fyrir vikið í klandri. „Hann hefur alltaf reykt svo það er erfitt að ímynda sér að hann fari á krá eða fái sér í glas heima án þess að reykja,“ segir Ian Rankin, höfundur Rebus bókanna. Þessi nýju lög hafa vakið hörð við- brögð og eitt þekkt- asta leikritaskáld Skota, John Byrne, segist íhuga mjög alvarlega að flytja frá Skotlandi. Leik- ritaskáldið John Mortimer segir að lögin séu fáránleg. Leikstjórinn Peter Hall segir lögin bera vott um pól- itíska rétthugsun sem sé ekkert annað en eins konar rit- skoðun. I ágúst næst- komandi mun Hall setja á svið leik- Tálkvendið Gilda varð enn eftir- minnilegri vegna sígarettunnar. (kvikmynd George Clooney Good Night and Good Luck er sígarettan aldrei fjarri Ed Murrow. rit John Osborne, Horfðu reiður um öxl en aðalpersónan, Jimmy Porter, reykir pípu. Á gullaldarárum Hollywood voru reykingar oft stór þáttur í róm- antískum atriðum, eins og þegar Betta Davis þáði sígarettu hjá Paul Henreid í Now Voyager. Helstu töffarar hvíta tjaldsins, til dæmis Humphrey Bogart, sáust varla án sígarettu og tálkvendið Gilda sem Rita Hayworth lék varð enn eftir- minnilegri vegna sígarettunnar. í Kaliforníu er bannað að reykja á opinberum stöðum og vinnu- stöðum en kvikmyndaver og sjón- varpsstöðvar fá undanþágur og í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum sjást persónur því enn kveikja sér í sígarettu. I nýlegri kvikmynd George Clooney, Good Night and Good Luck, er sígarettan aldrei fjarri Ed Murrow, aðalpersónu myndarinnar. Karlakór Reykjavíkur á afmælistónleikum Karlakór Reykjavíkur á áttatíu ára afmæli á þessu ári. í tilefni þess heldur kórinn sex tónleika í Lang- holtskirkju og verða þeir fyrstu næstkomandi sunnudag. A efnis- skránni eru íslensk og erlend lög, þar á meðal eftir Sigurð Þórðarson, stofnanda kórsins og Pál Pampic- hler Pálsson sem stjórnaði kórnum í 30 ár. Einnig verða sungin verk eftir meistara á borð við Schubert, Beethoven og Rossini. Diddú verður sérstakur gestur á tónleik- unum og við píanóíð verður Anna Guðný Guðmundsdót tir sem hefur starfað með kórnum í 16 ár. Friðrik S. Kristinsson er stjórn- andi Karlakórs Reykjavíkur en hann er einnig stjórnandi Drengjakórs Reykjavíkur. „Félagar í Karlkórnum eru 75, sá elsti um sjötugt og sá yngsti 22 ára. Við auglýsum eftir nýjum félögum á haustin og þróunin hefur verið sú að hópurinn er alltaf að yngj- ast. Endurnýjun er því mikil og það þykir gaman og fínt að vera í karlakór. Sumir kórfélagar hafa komið beint úr Drengjakór Reykjavíkur yfir í Karla- kór Reykjavíkur. Drengjakórinn er því eins konar uppeldisstöð," segir Friðrik. „Æfingar eru tvisvar í viku og í staðinn fyrir að menn fari á fót- boltaæfingar fara þeir á kóræfingar. Það er gaman að fást við ný verkefni og sérlega skemmtilegt þegar kemur að tónleikum því þá heyrir maður af- Karlakór Reykjavíkur á áttatíu ára afmæli á þessu ári og heldur afmælistónleika í Lang- holtskirkju. rakstur vetrarins." f maí heldur Karlakór Reykjavíkur austur á firði, verður á Höfn í Horna- firði 11. maí og á Eskifirði 13. maí og í haust liggur leiðin til Auturríkis og Þýskalands. Tónleikar kórsins í Langholtskirkju verða sem hér segir: Sunnudag 2. apríl kl. 17.00 og 20.00, mánudag 3. apríl kl. 20.00, miðvikudaginn 5. apríl kl. 20.00, fimmtudag 6. apríl kl. 20.00 og laugardag 8. apríl kl. 16.00. Á síð- ustu tónleikunum 8. apríl munu eldri félagar Karlakórs Reykjavíkur koma fram og flytja nokkur lög undir stjórn Kjartans Sigurjónssonar. Metsölulistinn - erlendar bækur ^ The Historian Elizabeth Kostova Philip 's Concise World Atlas Philip's 3 With No One As Witness Elizabeth George 4 Honeymoon James Patterson & Howard Roughan 5 8age Jonathan Kellerman 6 The Chairman Stephen Frey ? Vendetta ' Fern Michaels g No Place Like Home Mary Higgins g The Earth From The Air Yann Arthus-Bertrand 10 TheTwelfthCard Jeffery Deaver Metsölulistinn - allar bækur ^ Draumalandið: sjálfshjálparbók handa... Andri Snær Magnason ^ Flugdrekahlauparinn - kilja Khaled Hosseini 3 Munkurinn sem seldi sportbílinn sinn - kilja Robin Sharman Fullur skápur af lífi Alexander McCall Smith 5 Sálmabók Ýmsir höfundar 6 Tími nornarinnar - kilja Árni Þórarinsson ^ Gæfuspor Gunnar Hersveinn 8 Draumaiand: svefn og svefnvenjur... Arna Skúladóttir . Dýraríkið Penelope Arlon 1Q Lost in lceland Sigurgeir Sigurjónsson Listinn er gerður út frá sölu dagana 22.03.06 - 29.03.06 ( Listinn er gerður út frá sðlu dagana 22.03.06 - 29.03.061 Bókabúðum Máls og menningar, Eymundsson og Pennanum Bókabúðum Máls og menningar, Eymundsson og Pennanum Óbeisluð öfl íslands JPV útgáfahefur sent frá sér bókina fslands óbeisluð öfl eftir svissneska ljósmyndarann Max Schmid. Bókin kemur út á fjórum tungumálum: fs- lensku, ensku, þýsku og frönsku. Eldur og ís, hverir og fossar, iða- grænir vellir og svartir sandar, ótamin jökulfljót og hrikalegar klettastrendur, miðnætursól og langir skuggar, álfar, tröll og sögur og svo auðvitað fiskur- inn - þetta er ísland, eyjan sem kennd er við andstæður en líka við frelsi víð- áttunnar og tign. íslands óbeisluð öfl erprýdd 250 ljós- myndum eftir Max Schmid, hver ann- arri stórkostlegri. Þar er ljósmyndari á ferð sem er mikill íslandsvinur og gjörþekkir landið. Hann kemur okkur sífellt á óvart með undurfögrum og dulúðugum myndum af íslenskri nátt- úru sem, að hans eigin sögn, bera þess vitni að í þessu nánast ósnortna landi geta menn ennþá fengið útrás fyrir æv- intýraþrá sína. Max Schmid, sem fæddist í Wintert- hur í Sviss 1945, er landslagsljósmynd- ari og mikill náttúruunnandi. Hann kýs helst að starfa á afskekktum stöðum, hefur ferðast mikið um fram- andi lönd og staðið fyrir mörgum Ijósmyndaleiðöngrum. Með kynngi- mögnuðum ljósmyndum, sem birst hafa í yfir tuttugu Ijósmyndabókum, tímaritum og á dagatölum, hefur hann skapað sér sess meðal fremstu ljósmyndara nútímans. SU DOKU talnaþrautir Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóörétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Gáta dagsins 7 3 9 8 9 2 7 5 1 3 5 8 4 2 8 5 4 6 9 3 7 9 9 4 2 7 5 2 8 6 3 7 1 5UDDKU BHDP. IS ©G610015 Lausn siðustu gátu 6 7 9 3 8 5 4 1 2 5 8 2 1 6 4 3 7 9 3 4 1 9 7 2 5 6 8 4 9 3 7 1 8 6 2 5 7 1 6 5 2 3 8 9 4 8 2 5 6 4 9 7 3 T 9 3 7 8 5 1 2 4 6 1 5 4 2 3 6 9 8 7 2 6 8 4 9 7 1 5 3

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.