blaðið - 26.04.2006, Blaðsíða 37

blaðið - 26.04.2006, Blaðsíða 37
blaðið MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 20066 DAGSKRÁI 37 Jagger hefur opinberlega iýst því yfir að hann hafi verið á móti innrásinni í frak Örlagasvítan Rokkarinn Mick Jagger hefur neit- að að gefa eftir svítu á Austurrísku hóteli eftir að aðstoðarmaður Bush bandaríkjaforseta hafði einnig reynt að bóka hana. Forsprakki Rolling Stones borgar rúmlega fimm þúsund evrur á sólar- hring fyrir lúxussvítuna á Imperial hótelinu í Vín. Aðstoðarmenn Banda- ríkjaforseta hafa biðlað til Jaggers um að gefa herbergið eftir án árangurs. Jagger hefur opinberlega lýst því yfir að hann hafi verið á móti innrásinni í Irak og ef til vill er þetta hans leið til að sýna hernaðarveldinu að það er ein hótelsvíta sem þeir ráða ekki yfir. Grœðir á tá og íingri Velska leikkonan Catherine Zeta Jo- nes er sú stjarna sem græðir hvað mest á auglýsingasamning eftir að hafa samið við samskiptafyrirtæk- ið T-Mobile. Fyrir þann samning fær hún litlar 16.2 milljónir evra. Catherine var eina breska stjarnan sem komst inn á topp tíu listann með tekjur langt yfir leikkonurnar Angelina Jolie og Nicole Kidman. Að mati Adweek er þessi samningur enn talinn einn sá veglegasti í brans- anum fyrr og síðar. ókeypis til illllllli heimila og fyrirtækja alta virka daga FRJÁLST ÓHAÐ Dugar ástin ein? Rómantíska gamanmyndin Prime með Umu Thurman og Meryl Stre- ep verður frumsýnd föstudaginn 28. apríl í Smárabíói og Regnbogan- um. Myndin gerist á Manhattan og fjallar um ástir og undirferli aðalper- sónanna og hvernig fólk sem verður ástfangið við fyrstu sýn tekst á við amstur hversdagsins. Uma Thurman leikur hina 37 ára Rafi, sem er nýskilin. Hún hittir ungan mann að nafni David, sem leikin er af Bryan Greenberg. Dav- id er 23 ára nemi sem hefur nýlokið námi. Dr. Lisa, leikin af Meryl Stre- ep, er sálfræðingur Rafi og reynir að hjálpa henni að takast á við ótta sinn við nánd. Málið flækist illilega þegar Lisa uppgötvar að Rafi er í tyggjum við einkason sinn Dav- id. Rafi og David þurfa þannig að takast á við 14 ára aldursmun, afar ólíkan bakgrunn og hina mjög svo hefðbundnu móður Davids. Leikstjórn er í höndum Ben Youn- ger sem skrifaði einnig handritið en hann leikstýrði síðast myndinni Bo- iler Room. Með helstu aðalhlutverk fara Uma Thurman, Meryl Streep, Bryan Greenberg og Jon Abrahams. Rafi og David þurfa þannig að takast á við 14 ára aldursmun, afar óiíkan bakgrunn Bul rií ultingarkennd nýjung ikamsrækt __OO 3 5TRIVE Komdu og prófaðu nýja skemmtilega tíma í Hreyfingu sem gefa topp árangur. Árangur 1,2,3. - Alhliða hópþjálfun á einni klukkustund. Mikil fitubrennsla, þolþjáifun, styrktarþjálfun. Hópþjálfun með skemmtilegri tónlist og þú kemst í fínt form fyrir sumarið. SMART STRENGTH Strive 1,2,3.-tækin veita einhverja virkustu styrktarþjálfun í heimi! Vöðvar eru þjálfaðir á þrjá mismunandi vegu sem skilartopp árangri á skemmri tíma. ■ Kynntu þér málið. Hringdu í síma 414-4000 eða sendu post á radgjafar@hreyfing.is HReynnc Faxafeni 14 414 4000 www.hreyftng.l8

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.