blaðið - 26.04.2006, Blaðsíða 23

blaðið - 26.04.2006, Blaðsíða 23
blaðið MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2006 BRÚÐKAUP I 23 Leikir og skemmtun i brúðkaupsveislunni Stemning myndast meðal boðsgesta effarið er í skemmtilega leiki I brúðkaupsveislum er fólk saman komið til þess að gleðjast með brúðhjónunum. Glaumur og gleði einkenna flestar veislur og er það yfirleitt svo að brugðið er á leik. Nokkrir leikir hafa verið sérstak- lega vinsælir í veislum hérlendis á undanförnum árum en þá má út- færaáýmsavegu. Barbie og Ken leikurinn er alltaf vinsæll en hann snýst um hversu vel brúðhjónin þekkja hvort annað. Leikurinn fer þannig fram að brúð- hjónin stilla sér upp fyrir framan gestina, bak í bak með Barbie og Ken í höndunum. Þau fá síðan skemmtilegar spurningar um til dæmis heimilisstörf og eiga þá að gefa til kynna með dúkkunum hver sér um hvað á heimilinu. Þessi leikur vekur gjarnan mikla kátínu þar sem brúðhjónunum ber oftar en ekki, ekki saman um hver sinnir hvaða störfum á heimil- inu. Varast skal þó að halda þessum leik gangandi ef hiti færist í leikinn meðal brúðhjónanna vegna ósættis um hver geri hvað. Leikurinn Slá í glasið er einnig vinsæll en hann er þannig að í hvert skipti sem einhver slær í glasið sitt þá þurfa brúðhjónin að standa upp á stól og kyssast. Ekki skal of- gera þessu þar sem það getur verið afskaplega þreytandi að þurfa að standa upp á stól á 5 mínútna fresti, sérstaklega ef brúðurin er á háum hælum og í miklum kjól. Þessi leikur er skemmtilegur í upphafi veislu til þess að slá aðeins á formlegheitin. Myndasýning er góð skemmtun fyrir alla svo lengi sem hún er ekki of löng. Það er um að gera að tína til gamlar og nýjar myndir af brúðhjónunum og segja frá þeim á skemmtilegan hátt. Þetta er snið- ugt fyrir foreldra eða systkini brúð- arinnar eða brúðgumans að gera. Nú hafa líka flestir veitingasalir aðstöðu þar sem fólk getur nálg- ast græjur fyrir myndasýningu en það er um að gera að athuga það tímanlega. Tilvalið er að bjóða brúðkaups- gestum að skrifa heilræði til brúð- hjónanna en þetta er hægt að gera á ýmsa vegu og krefst ekki mikils undirbúnings. Gestirnir skrifa heilræði á miða og er miðunum svo safnað saman og heilræðin lesin fyrir brúðhjónin. Svo að veislan verði ekki of form- leg er sniðugt að hafa lifandi tón- list og hvetja fólk til þess að dansa eða syngja saman. Ýmist er hægt að skipuleggja hópdansa eins og fugla- dansinn eða hringdans þar sem konur eru í innri hring og karlar í ytri. Þegar tónlistinn stöðvast þá dansa þau saman sem snúa hvort að öðru. Ef reyna á að fá gestina til að syngja saman þá er sniðugt að vera búin að prenta út söngtexta svo að allir geti verið með. Við hjá Dansskóla Jóns Péturs og Köru tökum að okkur að kenna verðandi brúðhjónum brúðarvalsinn sívinsæla, Oft er reynt að nota lag sem er í uppáhaldi þeirra og aðlögum við brúðardansinn efidr því. Hjá okkur er einfaldleikinn í fyrirrúmi og fyrir mestu að hinum verðandi brúðhjónum liði vel í dansinum og þau njód stundarinnar. undirfataverslun fyrir allar konur Glæsilegur undirfatnaður frá Vanity Fair og Lauma Einkaumboðsaðili fyrirVanity Fairá íslandi Frábær verð og gæði. Persónuleg þjónusta www.ynja.is Útsölustaðir:Esar Húsavík • Dalakjör Búðardal Hamraborg 7, Kópavogi, Sími 544 4088 Rómantík og rólegheit í Reykjavík 45 fm lúxussvítur með öllu, intemeti, dvd, kapalsjónvarpi og jacuzzi. Sértílboð til brúðhjóna sumarið 2006 Aðeins 21.900 með morgunmat og kampavfnsflösku. Sjá icelandica.com eða upplýsingar í síma 822-1963 og 534-0444. góða gjöf Sœngurfataverslun, Glœsibœ • Sími 552 0978 www.damask.is Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-16. Auglýsingar *J I I blað

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.