blaðið - 26.04.2006, Blaðsíða 8

blaðið - 26.04.2006, Blaðsíða 8
8 i FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2006 blaðið Einhliða launa- hækkanir Stjórn Samtaka fyrirtækjaí heilbrigð- isþjónustu (SFH) ákvað einhliða i gær að hækka laun starfsmanna hjúkrunarheimila frá og með 1. maí næstkomandi. Ákvörðun SFH kom í beinu framhaldi af því að upp úr slitnaði í samningarviðræðum þeirra við fulltrúa starfsmanna Eflingar. Tveir þriðju launahækkunarinnar kemur til framkvæmda þann 1. maí næstkomandi og síðan 4% hækkun þann 1. september á þessu ári. Með þessari aðgerð vonast stjórn SFH að koma í veg fyrir boðaðar hópuppsagnir starfsmanna hjúkr- unarheimila í næsta mánuði. Þingmaður setur íslandsmet Sigurjóni Þórðarsyni, þingmanni Frjálslynda flokksins er greinilega margt til lista lagt. Auk þess að tala af miklu kappi í ræðustól Alþingis er hann einnig keppnismaður á öðrum sviðum. Um síðustu helgi tók Sigurjón þátt í Islandsmóti 25 ára og eldri í sundi sem haldið var í Hafnarfirði og gerði sér lítið Sigurjón Þórðarson fyrir og setti Islandsmet í 100 metra bringusundi í flokki 40 til 45 ára. Þingmaðurinn skýrir frá þessu á heimasíðu sinni á hógværan hátt og tekur fram eins og sönnum íþrótta- manni sæmir, að aðalatriðið sé ekki að vinna, heldur að vera með. Táragasi skotið að mótmaelendum í Aþenu í Grikklandi í gær. Reuters Mikil mótmæli í tilefni af heimsókn Condoleezza Rice Bílar voru brenndir og rúður brotnar í miklum mótmælum í miðborg Aþenu í gær. Lög- reglan beitti táragasi gegn mannfjöldanum, sem mótmælti utanríkisstefnu Bandaríkjanna. Grískar lögreglusveitir skutu táragasi að mótmælendum í miðborg Aþenu, höfuðborgar Grikklands, í gær þegar þeir réyndu að komast gegnum ör- yggisgirðingu sem sett var upp vegna komu Condoleezza Rice, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, til landsins. Múgurinn var að reyna að komast að fundarstað Rice og Dora Bakoyi- anni, utanríkisráðherra Grikklands. Mótmælendur svöruðu fyrir sig með því að kasta bensínsprengjum, grjóti og öðru lauslegu að lögreglu. Talið er að um fimm þúsund manns hafi tekið þátt í tvennum mótmæla- göngum sem voru skipulagðar af kommúnistum og andstæðingum alþjóðavæðingar. Asamt átökum á milli lögreglu og mótmælenda voru bílar brenndir og rúður brotnar í verslunum í miðborg Aþenu. Utanríkisstefnu Bandaríkjanna mótmælt Mótmælin beindust fyrst og fremst gegn utanríkisstefnu Bandaríkjanna en mikil andstaða var við innrásina í Irak í Grikklandi. Stjórnmálamenn á vinstri kanntinum lýstu þvi yfir í fjölmiðlum í aðdraganda komu bandaríska utanríkisráðnerrans að erindi hans væri að tryggja stuðning griskra stjórnvalda við hernaðarað- gerðir gegn I ran vegna kjarnorkuáætl- unar klerkastjórnarinnar í Teheran. Mótmælendur í Aþenu endurómuðu þessa skoðun og báru skilti og borða þar sem á stóð að Bandaríkin ættu að láta írani í friði. Eftir fund utanríkisráðherranna lýsti Bakoyianni því yfir að grisk stjórnvöld væru andvíg kjarnorku- stefnu Irana en gaf ekkert upp hvort að Grikkland, sem á sæti í öryggis- ráði Sameinuðu þjóðanna, myndi styðja viðskiptaþvinganir láti stjórn- völd í Teheran ekki af auðgun úrans. Rice var einnig varkár í orðavali. Hún sagði á fundi með blaðamönnum í gær að íranir væru að einangrast frá alþjóðasamfélaginu en ekkert væri ákveðið með næstu skref. Óvíða meiri andúð á banda- rískum stjórnvöldum í Evrópu Stjórnmálaskýrendur telja að and- staða við Bandaríkin sé óvíða meiri í Evrópu en í Grikklandi. Er sú andstaða meðal annars rakin til stuðnings stjórnvalda í Washington D.C. við herforingjastjórnina sem fór með völdin í landinu á árunum 1967 til 1974. Heimsókn Rice er fyrsta opinbera heimsókn bandarísks emb- ættismanns til landsins í tuttugu ár, en þegar George R Shultz heimsótti landið 1986 sprengdu mótmælendur styttu af Harry S. Truman af stalli sínum í miðborg Aþenu. Þótti sú sprenging afar táknræn. Colin Po- well, þáverandi utanríkisráðherra, þurfti að fresta tveimur opinberum heimsóknum til Grikklands 2003 og 2004 vegna ótta við að mótmæli yrðu óviðráðanleg. Ferðalag Condoleezza Rice um Evrópu heldur áfram. Hún hélt til Ankara í gærkvöldi og mun hitta ráðamenn Tyrklands í dag, miðviku- dag. Það mun hún fljúga til Búlgaríu og sitja fund utanríkisráðherra aðild- arríkja NATO. MWflD Heimsmeistaramót í Íshokkí 3. deild karla Skautahöllinni Laugardal 27.APRÍI KL 20:00 500 kr. leikdagurinn 1500 kr. mótsmiði á alla leiki % IIHF

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.