blaðið - 26.04.2006, Blaðsíða 1

blaðið - 26.04.2006, Blaðsíða 1
92. tölublaó 2. árgangur miðvikudagur 26. apríl 2006 Friálst, óháð & ókeypis! Segja byggingarleyfi lykta af klíkuskap og hagsmunagæslu Mikil óánægja er ríkjandi meðal íbúa Seláshverfis í Árbænum vegna nýs deiliskipulags við Rænt í eigin giftingarveislu Þrír Zimbabwe-búar komu i veg fyrir að faðir þeirra gerðist sekur um fjölkvæni með því að ræna honum rétt áður en gifting- arathöfnin átti að fara fram. Dagblaðið Sunday Mail sem gefið er út í Zimbabwe greindi frá þessu. Synirnir komu þung- vopnaðir til athafnarinnar og beindu öxum og hnífum að gest- unum er þeir tóku föður sinn, neyddu hann inn í bifreið og óku á brott á mikilli ferð. Brúðurin hélt á brott hágrát- andi. Presturinn sem gefa átti fólkið saman hvatti gesti til að njóta veitinga og skilja eftir gjafir sínar. „Þótt hér verði papp- írar ekki undirritaðir mun ég skilja eftir gjöf mína og segja: Guð blessi þessa fjölskyldu,” sagði hann. Mikil spenna á Sri Lanka Tíu manns, hið minnsta, týndu lífi í sjálfsmorðsárás sem gerð var í gær í Colombo, höfuðborg Sri Lanka. Tilræðismaðurinn sprengdi sig í loft upp í höfuð- stöðvum stjórnarhersins í borg- inni. Hermdu fréttir að tilræð- ismaðurinn hefði verið kona og hefði hún látið sem hún væri ófrísk og þannig tekist að dylja sprengiefnið sem hún bar innan klæða. Yfirmaður stjórnarhers- ins særðist alvarlega í árásinni og gekkst hann undir aðgerð. Stjórn- völd brugðust við tilræðinu með sprengjuárásum á stöðvar skæru- liða tamíla og sýnir myndin liðs- menn sveita þeirra í viðbragðs- stöðu nærri bænum Tricomalee. Reuters Elliðaár. Tæplega 200 manns hafa skrifað undir mótmælalista sem afhentur verður í dag. Hópur íbúa í Seláshverfi í Ár- bænum telur að klíkuskapur ráði því að borgaryfirvöld hafi gefið leyfi til húsbyggingar á bökkum Elliðaánna. Á annað hundrað íbúa í hverfinu hafa skrifað undir lista þar sem húsbyggingunni er mótmælt. Forsvarsmaðurundirskriftarlistans segir borgaryfirvöld vera að brjóta °v . SKIÐASVÆÐIN S. 530 3000 www.skidasvaedi.is á rétti íbúanna og hann óttast að úti- vistarsvæðinu við Elliðaár sé stefnt í hættu. 235 fermetra einbýlishús Málið snýst um 1.100 fermetra lóð sem liggur á svæði milli Selás- hverfis og Elliðaáa. Þar hefur sum- arbústaður staðið frá því áður en Árbær byggðist en þarna var lengi vel blómleg sumarbústaðabyggð. í upphaflegu deiluskipulagi frá árinu 1966 var gert ráð fyrir því að lóðin yrði gerð að útivistarsvæði og sum- arbústaðurinn rifinn. Eigendum yrði í stað þess boðin annar staður. Það vildu eigendur hins vegar ekki sætta sig við og hefur bústaðurinn því staðið utan deiliskipulags allt þar til nú. Samkvæmt nýju deiliskipulagi sem nú er í kynningu hefur lóðin verið færð inn í Seláshverfi með götunúmerið Þykkvibær 21. Þá hefur eigendum verið gefið leyfi til byggingar nýs 235 fermetra einbýlis- húss á lóðinni allt að fjórir og hálfur meter að hæð. Hið nýja deiliskipulag hefur valdið töluverðri óánægju meðal íbúa í hverfinu sem telja að með því séu borgaryfirvöld að brjóta á rétti þeirra. Þá telja íbúarnir að bygging- arleyfið sé á skjön við almennar reglur í aðalskipulagi Reykjavíkur þar sem ekki er talið æskilegt að byggt sé nær ám og vötnum innan þéttbýlissvæðis en sem nemur 100 til 250 metrum. Undirskriftarlisti gengur meðal íbúa og hafa hátt á annað hundrað manns nú skrifað undir hann. Listinn verður afhentur skipu- lagsfulltrúa Reykavikurborgar i dag. Frestur til að skila inn athuga- semdum vegna deiluskiplagsins rennur út á morgun. Einkennilegt mál Theodór S. Marinósson, íbúi í Sel- áshverfi og forsvarsmaður undir- skriftarlistans, segir útivistarsvæð- inu við Elliðaár stefnt í hættu verði byggingarleyfið samþykkt af borg- aryfirvöldum. Hann segir íbúa í hverfinu hafa staðið í þeirri trú að bústaðurinn yrði rifinn og lóðin gerð að útivistarsvæði. „Ef leyfa á þarna stórar byggingar þá er verið að eyðileggja útivistarsvæðið fyrir borgarbúum. Við teljum að þetta leyfi geti bara verið byrjunin á fleiri framkvæmdum.“ Theodór segir nýju bygginguna koma til með að valda töluverðri sjónmengun fyrir íbúa á svæðinu og segir undarlegt að borgin skuli taka sérhagsmuni af þessu tagi fram yfir hagsmuni almennings í borginni. „Þetta er mjög einkenni- legt mál og það lyktar af klíkuskap og sérhagsmunagæslu." BMit/SteinarHugi Fjör í frímínútunum Kátir krakkar í Snælandsskóla í Kópavogi létu hryssingslegt veðrið í sumarbyrjun ekki hafa áhrif á sig og skemmtu sér vel í frímínútum í gær. Þessi strákur gæti verið að undirbúa sig undir glæstan frama í slökkviliðinu þegar fram líða stundir. ww 1.000,- Notaðu þessa ÞjóðarGjöf til bokakaupa ---------- t* ---- ------- Pjóðiu:0_tÚbóUkAup<-i mmkwmmm Notaðu þína ávísun!

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.