blaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 22

blaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 22
-1 i I Stéttarfélög og Alcoa Fjarðaál hafa gert nýstárlegan vinnustaðarsamning fyrir starfsmenn í framleiðslu- og viðhaldsstörfum í álverinu á Reyðarfirði. Samningurinn hvílir á gagnkvæmu trausti og sameiginlegum árangri og miðar að því að búa til framúrskarandi vinnustað. Launakjör ráðast af verksviði, ábyrgð, fjölhæfni og frammistöðu starfsmanna. í stað hækkana vegna starfsaldurs er umbunað fyrir aukna hæfni, ábyrgð, þátttöku í stoðstarfsemi og hlutdeild í bættum árangri fyrirtækisins. Reyðfirðingurinn Cuðný Björg Hauksdóttir sér um ráðningar hjá Alcoa Fjarðaáli. Knattspyrnuæfing í Fjarðabyggð Óskar Borg, framkvæmdastjóri innkaupasviðs Fjarðaáls, setti upp svuntuna og bakaði vöflur fyrir samningamenn þegar skrifað var undir vinnustaðar- samninginn. Laun framleiðslustarfsmanna Byrjunarlaun framleiðslustarfsmanns eru 3.316.000 kr. á ári fyrir fullt starf í vaktavinnu með orlofsuppbót, desemberuppbót, yfirvinnu vegna vakta- fyrirkomulags, stoðferlaálagi og 1 5% árangursávinningi sem viðmiði. Markmiðið er að allir framleiðslustarfsmenn öðlist pá hæfni og nái þeim árangri að þeir fái hærri laun samkvæmt samningnum. Þegar framleiðslu- starfsmaður hefur fengið þjálfun og vottun til að vinna á tilskildum fjölda starfsstöðva eru sambærileg viðmiðunarlaun yfir árið 3.732.000 kr. Laun iðnaðarmanna Byrjunarlaun iðnaðarmanns, með sveinspróf og minna en þriggja ára starfsreynslu í faginu, eru 4.108.000 kr. fyrir fullt starf í vaktavinnu með orlofsuppbót, desemberuppbót, yfirvinnu vegna vaktafyrirkomulags, stoð- ferlaálagi og 1 5% árangursávinningi sem viðmiði. Þegar iðnaðarmaður, með sveinspróf og þriggja ára starfsreynslu í faginu, hefur staðist hæfnismat í viðhaldsstarfi eru sambærileg viðmiðunarlaun yfir árið 4.915.000 kr. Arangurstenging Sameiginlegur frammistöðuávinningur starfsmanna er 0-30% af mánaðar- launum, vaktaálagi og unninni yfirvinnu, með 1 5% sem viðmiði fyrir eðlilega frammistöðu. Tilgangurinn er að deila ávinningi fyrirtækisins með starfs- mönnum og tryggja að liðsheildin vinni saman að því að ná stöðugt betri árangri eftir áherslum í starfseminni hverju sinni, svo sem á sviði framleiðslu, öryggis, umhverfis og þjónustu. Allir styðja alla Allir þeir sem samningurinn nær til fá 19.000 kr. stoðferlaálag á mánuði fyrir að taka þátt í margvíslegum verkefnum sem styðja álframleiðsluna og málm- vinnsluna. Þannig öðlast starfsmenn betri skilning á starfseminni í heild sinni og hafa meiri áhrif á starfsumhverfi sitt. Stuðningsverkefni geta meðal annars tengst stöðugum endurbótum, vinnu- vernd, umhverfi, þjálfun, móttöku gesta eða samþættingu vinnu og fjölskyldulífs. Stuðningsverkefni koma til viðbótar daglegum störfum en vinnast innan reglulegs vinnutíma. Nútímaálver er hátæknivæddur vinnustaður. Greiðsla fyrir fjölhæfni Alcoa Fjarðaál leggur áherslu á að starfsmenn auki stöðugt hæfni sina og vinni fjölbreytt störf. Þegar framleiðslu- starfsmaður hefur hlotið þjálfun og vottun á tilteknum fjölda vinnustöðva fær hann greitt sérstakt fjölhæfniálag, 5%af grunnlaunum, vaktaálagi og unninni yfirvinnu. Þjálfunin geturtekið 1 8-36 mánuði. Til þess að fá 5% fjölhæfniálag þarf iðnaðarmaður að k. standast hæfnismat í viðhaldsstarfi Hluti af starfsmönnum Fjarðaáls fær þjálfun í álveri Alcoa í Kanada. T

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.