blaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 17

blaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 17
blaðið LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2006 VIÐTAL I 17 * inu, að klára daginn. Það er reyndar merkilegt hvað fólk getur oft gert miðað við pressuna sem hvílir á því eins og að fá endalausa viðmæl- endur. Afrakstur af rannsóknar- blaðamennsku kemur ekki fram í svona dagskrárgerð vegna þess að hún byggir á því að miðillinn sé að afhjúpa eitthvað og þegar það er gert er til að mynda oft vonlaust að fá við- mælendur. Þeir sem eiga hagsmuna að gæta vilja ekki endilega koma fram í fjölmiðlum. Við sjáum það að nýjustu frétta- veitur í heiminum er að finna á netinu og byggjast á manninum á næsta götuhorni. Þetta er farið að keppa við hefðbundnu miðlana og blöðin láta undan síga. Það er ekki víst að þessi hraði og hið aukna framboð leiði til aukinnar rann- sóknarblaðamennsku. Ég held að með því að breyta hugmyndafræð- inni þá mætti komast frekar í þá átt. Fjölmiðlamarkaðurinn í landinu veltir í kringum ío milljörðum á ári. Ég held að það sé hægt að gera þó nokkra góða hluti fyrir þennan pen- ing og ég trúi því að lesendur hafi áhuga á rökstuddu og vel unnu efni. Trúverðugleiki er fjöregghvers fjöl- miðils. Þegar þú ferð undir hnífinn hjá skurðlækni þá treystirðu því fyr- irfram að hann kunni til verka. Þú treystir honum í blindni vegna þess að hann er fagmaður og þú verður að reiða þig á það sem hann gerir. Það væri mjög gott ef fjölmiðlafólk væri í þeirri stöðu að almenningur gæti fullkomlega treyst því sem það hefur að segja. Að sumu leyti er það þannig ao fólk treystir fjöl- miðlum og það á’að vera þannig. Ef uppvíst verður að fréttir séu rangar og ekki sannreyndar þá dæmir fjöl- miðillinn sig smám saman út af markaðinum, góðir blaðamenn og auglýsendur leggja á flótta. Þetta er mjög viðkvæmt jafnvægi og ég held að besta lejðin til að auka trúverðug- leika sé að fara á dýptina, hafa alltaf flugufótinn fyrir öllu sem maður segir. Maður eins og Róbert Mars- hall gerði mistök sem snertu valdið í samfélaginu og sagði upp störfum. Hann gerði reyndar svolítið sérstök mistök þar sem hann var ekki bein- línis að halda fram röngum stað- reyndum heldur las vitlaust ákveðna hluti. Mistök gerast en hann axlaði ábyrgðina. Trúverðugleiki er dýru verði keyptur og það tekur langan tíma að byggja hann upp. Frétta- stofa Útvarpsins bar lengi vel höfuð og herðar yfir aðra en nú er meira jafnvægi komið á. Ríkisútvarpið hefur trúverðugleikann svolítið í nafni þess að vera almannaútvarp. Almenningur á heimtingu á því að þeir sem þar starfa séu sínir full- trúar þó svo að stjórnmálamenn séu að berja á ákveðnu fréttafólki. Sjálfstæðið er óvéfengjanlegt, eng- inn stjórnmálamaður og enginn við- skiptajöfur getur valsað inn á útvarp og sagt fólki fyrir verkum." Landsmenn framselja valdið En hvað með ráðningar í stöðu útvarpsstjóra? „Einmitt, þar eru fulltrúar almenn- ings, almenningur hefur framselt þeim vald. Þetta er fulltrúalýðræði og það er þeim sem þóknast að fara svona með valdið. I þessu á alltaf að spyrja um hagsmuni.En þetta með trúverðugleikann skiptir svo miklu máli varðandi einkamarkað- inn af því að það er svo mikið talað um eigendavald og auglýsendavald. Það skiptir máli að leikreglurnar séu það skýrar að kaupendur og lesendur geti treyst því með ein- hverjum hætti að hagsmunir ráði ekki ferðinni. Staðan með ríkisbatt- eríið er töluvert öðruvísi. Ég vil þá segja það að það er eingöngu fjöl- miðlafólkið sjálft sem getur skapað þennan trúverðugleika, það getur ekkert eigendavald gert það og það getur enginn auglýsandi gert það. Það eru alltaf hagsmunir alstaðar og það er hlutverk okkar að spyrja um þá. Stjórnmálamenn misbeita til dæmis valdi sínu oft á tíðum og upp hafa sprottið hugtök á borð við ,einkavinavæðing“ og „kvótagreifar'. Fjölmiðlar eiga að kanna þessi mál og afhjúpa. Landsmenn eiga heimt- ingu á því vegna þess að það eru þeir sem framselja valdið. Nú hefur verið heilmikil umrœða um fjölmiðlalög. Hvaða skoðun hefurþú á því máli? „Ég held mig enn við að það sé engin sérstök þörf á fjölmiðlalögum. Aðalatriðið er að fjölmiðlar eru eins og hvert annað fyrirtæki. Ef fyr- irtæki verða uppvís að ólögmætu samráði eða misbeitingu á mark- aðsráðandi stöðu þá eru til sam- keppnislög. Þessi lög geta alveg náð yfir fjölmiðla og í besta falli mætti hreinlega efla samkeppniseftirlitið og sjá til þess að það vinni vinnuna sína vel. Það að reka almennilegan fjölmiðil er töluvert mál og ef búta á eignarhaldið of mikið í sundur þá verða miðlarnir veikir. Þeir verða að fá að safna saman styrk sínum til að geta staðið undir sér. Ef menn skoða þetta niður í kjölinn þá sjá þeir að stærsta röksemdarfærslan er fjölbreytileiki á markaði. Ég held að fjölbreytileikinn sé mun meiri nú en áður fyrr og þess utan eigum við ekki að halda okkur við tvískipt- inguna: erlendir miðlar, innlendir miðlar. Þegar fólk kemur heim til sín þá velur það á milli 40-50 erlendra sjónvarpsstöðva, fer á netið og flettir þar í tvö þúsund dagblöðum og allt fullorðið fólk er læst á ensku. 1 þessu samhengi tel ég því að það eigi að stefna að vandaðri og trúverð- ugri rannsóknarblaðamennsku. Hvað tekurvið íframhaldinu? Ég þarf ekki að vinna uppsagnar- frestinn, það var niðurstaðan. Það er ekkert ákveðið en ég reikna með að vera áfram í blaðamennsku eða í fjölmiðlum þar sem ég hef þegar orðið var við að enn er eftirspurn eftir mér. jon@bladid.net N V Sjóntækjafræðingur með réttindi til sjónmælinga og linsumælinga Vaxtalaus kjör í allt að 24 mánuði* engin útborgun Þú hefur oftar ráð á nýjum gleraugum 2ja mánaða aðlögun á margskiptum glerjum Mikið úrval snertilinsa Fagleg og góð þjónusta *Gildir ekki um önnur tilboð Það er léttara en þig grunar að endurnýja gleraugun þín Suðurlandsbraut 50, f bláu húsunum viö Faxafen Sími: 568 1800 99......................................................... Það sem mér þykir verst aföllu er þegar ég heyri lesendur, áheyr- endur eða áhorfendur segja að við fjölmiðlafólk séum léleg. Að við séum ekki nógu dugleg að velta við steinum, ekki nógu dugleg við að afhjúpa, að við verðum samdauna valdinu.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.