blaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 1

blaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 1
■ MATUR Grillað í landi Kanans ■ ERLENT Ekki í framboði 2008 ■ ÍÞRÓTTIR Yfirboð hjá Real Madrid ■ FRÉTTASKÝRING Ótrygg réttarstaða Mannréttindasamtök hafa VfMlN* motou* laugardagur 17. júní 2006 áhyggjur af stöðu samkyn- hneigðra í nokkrum ríkjum Austur-Evrópu Æ# JK | SÍÐA10 134. tölublað 2. árgangur Nýjustu grill-uppskriftirnar úr Hvíta húsinu M. Pútín Rússlandsforseti útilokar Ótrúleg loforð forsetafram- stjórnaskrárbreytingu bjóðenda | SÍÐA18 Frjálst, óháð & ókeypisl fÍMkt . t ^ MtM, •' SÍÐA6 SÍÐA30 Blaöií/Frikki Segir hættu á óafturkræfum skemmdum í hjarta borgarinnar Dagur B. Eggertsson telur betri leiðir færar en mislæg gatnamót við Kringluna. Eftir Gunnar Reyni Valþórsson Þegar um stórar framkvæmdir er að ræða í borginni er mikilvægt að vanda til verka, segir Dagur B. Egg- ertsson, oddviti Samfylkingarinnar, og vísar til þeirrar ákvörðunar nýrrar borgarstjórnar í Reykjavík að ljúka gerð mislægra gatnamóta við ÍCringluna á kjörtímabilinu. Dagur varar við því að menn sitji uppi með óafturkræfa framkvæmd og vísar til þeirrar óánægju sem risið hefur í kjölfar lagningar nýju Hringbraut- arinnar. Tillögu Dags um samráðs- ferli í málinu hefur verið frestað en hann segist trúa því að hún verði samþykkt. „Ég tel að það séu til miklu betri leiðir til þess að dreifa umferðinni," segir Dagur. „Það má vinna gegn þeim hnútum sem þarna myndast á álagstímum, en ekki síður að dreifa umferðinni betur þannig að henni sé ekki stefnt á einn punkt.“ Dagur segist því vera á þeirri skoðun að skynsamlegra sé að setja öskjuhlíð- argöng og Sundabraut í forgang og búa þannig til þrjár meginæðar frá austri til vesturs. „Þær breytingar sem þegar hafa verið gerðar á gatnamótunum hafa dregið verulega úr slysum sem voru mikið vandamál þarna. Auk þess sem afköst gatnamótanna hafa auk- ist umtalsvert," segir Dagur. Samráð liggur í hlutarins eðli Björn Ingi Hrafnsson, oddviti fram- sóknarmanna, segir að enginn hafi séð tillögu Dags fyrr en á fundinum. Því hefði málinu verið frestað en Björn Ingi segir menn ætla að skoða tillöguna. „Mér sýnist tillagan ganga út á það að hafa samráð við til dæmis íbúa svæðisins. Það felst í hlutarins eðli að þegar mál eru á skipulags- stigi þá þarf að leita samráðs.11 Hann segir að fyrir liggi að kannað verði með hvaða hætti sé skynsamlegast að fara í þá stóru framkvæmd að byggja mislæg gatnamót við Kringlu. „Það liggur algjörlega fyrir að það er vilji til þess að bæta úr stöðunni á þessum gatnamótum. Þetta eru hættulegustu og fjölförnustu gatna- mót landsins og tryggingafélög hafa ítrekað bent á að framkvæmdir þarna væru mjög þjóðhagslega hag- kvæmar," segir Björn Ingi. Ekki hættulegustu gatnamótin Dagur segir það hins vegar ekki rétt að gatnamótin séu þau hættulegustu á landinu, nýgerðar breytingar hafi dregið mjög úr slysum á þessum stað. „Þarna eru menn annaðhvort að vitna í gamlar tölur eða fara einfald- lega ekki með rétt mál.“ Dagur segist þó ekki vilja leggjast í hanaslag um úreltar upplýsingar. „Ég vil að þetta verði unnið á faglegan hátt þar sem samráð verði haft við alla viðkom- andi aðila.“ Sjálfstæðisflokkurinn barðist fyrir lagningu Hringbrautar en hefur nú lýst yfir efasemdum með þá framkvæmd, segir Dagur. „Ég held að það sé að renna upp fyrir öllum, að þegar svona stórar fram- kvæmdir eiga í hlut er mjög mikil- vægt að menn vandi sig. Hættan er sú að menn sitji uppi með óaft- urkræfa hluti og í raun skemmdir í hjarta borgarinnar. Þá er slæmt að átta sig á því eftir á að hægt hefði verið að fara aðrar og betri leiðir.“ Dagur segist ekki trúa öðru en að tillaga hans um samráðsferli við framkvæmdina verði samþykkt í borgarstjórn. gunnar@bladid.net ■ SAGA Fjallkonan fyrr og nú Ertil eitthvað íslenskara en Fjall- konan? Tæpast. Hún er holdger- vingur íslands og margir munu hlýða á ávarp hennar í dag, venju samkvæmt á 17. júní. En þótt rætur Fjallkonunnar liggi djúpt í íslenskri þjóðarsál á hún sér margar systur sem kosið hafa að búa erlendis. Nefna má að Fjallkonan er náskyld Britan- íu hinni bresku, Helvetíu, hinni svissnesku og sjálfri Germaníu sem kemurfrá Þýskalandi. Sagt er frá hinum mörgu andlitum Fjallkonunnar og rótum þessa fyrirbrigðis í Blaðinu í dag. | SÍÐUR20&21 ■ FRÉTTIR Aftur í fremstu röð Eiður Smári Guðjohnsen segir að hann muni spila framar á vellinum með hinu nýja liði sínu, Barcelona, en hann gerði með Chelsea á síðustu leiktíð. Hann gerir ráð fyrir að fimm ieikmenn muni berjast um þrjár stöður framherja hjá liðinu. Eiður kveður Chelsea með trega en segist hlakka til að sýna hvað í honum býr með Evrópu- og Spánarmeisturunum. Og hann hlakkar til að læra ný tungumál, bæði spænsku og katalónsku, enda er þess krafist í samningn- um. Viðmælendur Blaðsins eru sammála um að spænska knatt- spyrnan henti Eiði Smára sérlega vel og hæfileikar hans muni að líkindum nýtast betur en nokkru sinni fyrr. | SÍÐA8 Horfum á hagsmuni Jóhann Hauksson ræðir um fjölmiðla og vald í viðtali við Jón Þór Pétursson i síður i 6 & 17 3. 1 VISALán er ný og hagstæð leið til greiðslu- dreifingar við kaup á vörum eða þjónustu. + Staðgreiðsluverð + Lægri vextir + Lægri kostnaður + Til allt að 36 mánaða + Framlengdur ábyrgðartími + Flutningstrygging + Vildarpunktar Nánari upplýslngar á www.visa.is/visalan eða i síma 525 2000 Spurðu ii ■■ Vl__. - HAGSTÆÐAR AFBORGANIR

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.