blaðið - 21.07.2006, Síða 4
4IFRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006 blaðiö
Samráð í rannsókn
■ Olíufélögin þrjú, Esso, Olís og
Skeljungur, voru sektuö um 2,6
milljarða og gert að greiða þær
i stjómvaldssektir árið 2004
vegna ólögmæts verðsamráðs.
Þeim úrskurði var áfrýjað til áfrýj-
unarnefndar samkeppnismála
sem lækkaði sektirnar um rúman
milljarð.
■ í rannsókn samkeppnisráðs á
verðsamráði olíufélaganna var
talið að félögin hefðu hagnast um
6,5 milljarða á samráðinu. Þessu
hafa olíufélögin þrjú hafnað og
segja þvert á móti að þau hafi
tapað á samráöinu. Sérstakir
matsmenn vinna nú að því að
meta mögulegt tap eða hagnað
félaganna. Lögreglurannsókn
vegna málsins lauk í nóvember-
mánuði í fyrra og þótti hún leiða
í ljós rökstuddan grun um brot á
ákvæðum samkeppnislaga.
■ Ríkissaksóknari vinnur nú að
því að fara yfir rannsóknargögn
en alls hafa 34 einstaklingar
stöðu sakborn-
ings í málinu.
Verðsamráð næg
ástæða til uppsagnar
■ Vilja selja ríkinu eldsneyti ■ Fengu ekki að sjá útboðsskjöl
Eftir Höskuld Kára Schram
Skeljungur og Olíufélagið lögðust
eindregið gegn því að Atlantsolia
fengi aðgang að útboðsskjölum
vegna eldsneytiskaupa ríkisins.
Töldu félögin að með þvi fengi
samkeppnisaðili aðgang að mik-
ilvægum trúnaðarupplýsingum.
Framkvæmdastjóri Atlantsolíu
segir það þjóna hagsmunum al-
mennings að Ríkiskaup efni aftur
til útboðs vegna eldsneytiskaupa
hins opinbera. Ríkiskaup afhentu
i gær forráðamönnum Atlantsolíu
niðurstöður útboðs frá árinu 2003
en félaginu var í fyrstu meinaður að-
gangur að þeim.
„Ég vil sjá hvaða verð þeir eru að
bjóða og gera mér grein fyrir þvi
hversu langt frá núverandi mark-
aðsaðstæðum þessi samningur
er,“ segir Albert Þór Magn-
ússon, framkvæmdastjóri
Atlantsolíu. Honum
voru í gær afhentar
niðurstöður út-
boðs vegna
\ eldsneyt-
| iskaupa
Skýrslan afhent Forráðamenn Atlantsolíu fengu ígær afhentar niðurstöður
útboös vegna eldsneytiskaupa ríkisins.
ríksins sem fram fór árið 2003. 01-
íufélagið og Skeljungur hrepptu
samninginn á sínum tíma en hann
hefur verið tvíframlengdur af hálfu
Ríkiskaupa án útboðs og nú síðast
í apríl á þessu ári. Samningurinn
nær yfir eldsney tiskaup og þjónustu
á rúmlega eitt þúsund bifreiðum í
eigu ríkisins.
Albert segir einkennilegt að ríkið
skuli framlengja samning sem
gerður er við mun verri markaðs-
aðstæður en ríki í dag. Nýtt útboð
muni þjóna hagsmunum almenn-
ings.„Það eru fleiri fyrirtæki á mark-
aðinum núna og alvega klárlega
tækifæri fyrir ríkið að njóta góðs af
vaxandi samkeppni."
1 fyrstu neituðu Ríkiskaup að
veita Atlantsolíu aðgang að útboðs-
kjölunum og þurfti fyrirtækið því
að kæra til Úrskurðarnefndar upp-
lýsingamála. Þá lögðust Olíufélagið
og Skeljungur eindregið gegn því að
samningurinn yrði gerður opinber
þar sem um viðskiptaleyndarmál
væri að ræða. Því hafnaði Úrskurð-
arnefnd og gerði Ríkiskaupum
skylt að veita Atlantsolíu aðgang að
samningnum.
Að sögn Alberts eru nægar ástæður
fyrir hendi til þess að ríkið segi upp
núverandi samningi og vísar í verð-
samráð olíufélaganna máli sínu til
stuðnings. „Við teljum að verðsam-
ráð olíufélaganna sé nægt tilefni til
að segja upp samningnum og bjóða
þetta út aftur.“
hoskuldur@bladid.net
Atlantsolía:
Fréttavefur hakkaður
Brotist var inn á vefþjón Snerpu
eftir hádegi í gær með þeim afleið-
ingum að vefir sem hýstir voru á
þeim vefþjóni voru afmyndaðir.
Þar á meðal voru fréttavefirnir pat-
reksfjordur.is og snerpa.is. Tölvu-
þrjótarnir skildu eftir sig síðu sem
benti á heimasíðu fyrirtækisins
mkhost. Er sú síða vistuð í Make-
dóníu. Þetta mun vera í annað sinn
sem patreksfjordur.is verður fyrir
árás tölvuþrjóta.
Fróðasti ferðafélaginn
— Stútfullur af nýju efni-
Nýútgáfa
HANDBÓK\U
Ferðumst og fræðums
Vegahandbókin sími: 554 7700
Skilaðu gömlu bókinni í næstu bókabúð og fáðu 1.000.- kr. afslátt
Þyrlurnar verða í Reykjavík
Furðuleg niðurstaða
■ Vonbrigði, segir verkalýðsforinginn ■ Stóð aldrei til, segir forstjórinn
Eftir Gunnar Reyni Valþórsson
„Þetta eru fyrst og fremst mikil
vonbrigðisegir Kristján G. Gunn-
arsson, formaður Verkalýðs- og
sjómannafélags Keflavíkur og
nágrennis, um þá niðurstöðu að
þyrlubjörgunarsveit Landhelgisgæsl-
unnar verði áfram í Reykjavík, ekki
á Suðurnesjum eins og heimamenn
höfðu vænst.
Georg Kr. Lárusson, forstjóri
Landhelgisgæslunnar, segir að ekki
hafi komið til tals að flytja þyrlu-
sveitina til Keflavíkur. „Það hefur
verið mjög góð reynsla af því að hafa
björgunarmiðstöðina í heild sinni í
Skógarhlíðinni. Ég tel, að ef um ein-
hvern flutning til Keflavíkur yrði að
ræða, þá þyrfti að flytja alla starf-
semi björgunarmiðstöðvarinnar
suður. Það hefur ekki komið til tals.“
1 tillögum starfshóps um fram-
tíðarskipulag þyrlubjörgunarþjón-
ustu á Islandi kemur fram að hag-
kvæmnis- og öryggissjónarmið
krefjist þess að þyrlusveitin hafi
bækistöð á einum stað og í tengslum
við höfuðstöðvar Landhelgisgæslu
Kristján Georg
Gunnarsson Lárusson
Islands. Björn Bjarnason, dómsmála-
ráðherra, kynnti niðurstöður starfs-
hópsins fyrir ríkisstjórn á dögunum.
Gæslan hefur nýverið flutt starfsemi
sína í Skógarhlíð í Reykjavík og er
þar í nábýli við björgunarmiðstöð-
ina í Skógarhlíð og er reynslan af
því fyrirkomulagi mjög góð að sögn
Georgs Kr. Lárussonar. í kjölfar
brotthvarfs varnarliðsins frá Kefla-
víkurflugvelli vöknuðu hugmyndir
um að þyrlusveitin yrði staðsett á
Keflavíkurflugvelli en samvæmt til-
lögum starfshópsins virðist sú hug-
mynd ekki fá byr undir báða vængi.
„Þeir komast aldrei út úr Reykja-
víkþessir háu herrar," segir Kristján
Gunnarsson og bendir á að dóms-
málaráðherrann sé þingmaður Reyk-
víkinga. „Maður veltir því fyrir sér
hvort að það hafi verið að þvælast
fyrir honum í þessu máli. Auðvitað
eru þetta djöfuls vonbrigði ef þetta
verður niðurstaðan, verandi með
alla þessa aðstöðu, húsnæði og fleira
til staðar á Keflavíkurflugvelli.“
Kristján segir að sér finnist það
vægast sagt furðulegt að menn skuli
ekki komast að annarri niðurstöðu.
„Maður veltir því fyrir sér hvort að
menn meini eitthvað með því sem
þeir sögðu þegar talað var um að
gera eitthvað í málum Suðurnesja-
manna til þess að reyna að efla hér
atvinnu í kjölfar þess að varnarliðið
er á förum. Ég held að þetta risti bara
ekki dýpra og menn eru greinilega
ekki að meina neitt með því þegar
þeir eru að kvaka um þessi mál. Ætli
Suðurnesjamenn verði ekki bara að
leysa úr þessu sjálfir eins og þeir eru
vanir, ég er farinn að hallast að því,“
segir Kristján.
gunnar@bladid.net
HEREFORD
S T E I K H Ú S
Laugavegur 53b • 101 Rcykjavík
5 1 I 3350 • www.hcrcrord.is
Fimmtudaga til sunnudaga
Glæsilegur 3ja rétta maíseðill á aðeins 5.2 00, ■tpántanir