blaðið - 21.07.2006, Side 15

blaðið - 21.07.2006, Side 15
blaðið FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006 15 Dj Shaft sér um grúvið Það er Groove helgi á Q-Bar. í kvöld mun Dj Shaft (Skapti) spila á þessum nýja stað sem fengið hefur nafnið Q-Bar, þar sem Ari í Ögri var áður. Shaft hefur reynslu af því að mixa saman lounge tónlist sem hæfir staðnum mjög vel eftir breytingarnar. Hrísey Hríseyingar gera sér glaðan dag um helgina if * '*s ! VHHk 'V"1' Fjölskylduhátíð fullveldisins Synt gegn mansali Hápunktur undirbúningsins fyrir Ermasundið - Reykjavíkur- sund gegn mansali 2006 - hefst í dag. Um leið hefst áheitasöfnun gegn mansali en það má sjá allt um sundið, dagskrá hugsjón-og annað á www.ermasund.is. Það er Benedikt Lafleur, útgefandi og sjósundkappi, sem mun þreyta sundið mikla. Hægt er að hringja í tvö númer og veita áheit á sundið: 905 20 20 og verða 1.500 kr. gjaldfærðar af sím- reikningi hringjandans og 562 3500 en þar er hægt að gefa áheit með frjálsum framlögum. Ágóðinn rennur í sjóð Sakleysis sem er ætlað að sporna gegn man- sali og öðrum skuggahliðum al- þjóðlegrar klámvæðingar. Verndari sjóðsins er Guðrún Agnarsdóttir, fyrrverandi þingmaður og forstjóri Krabbameinsfélagsins. Sundið hefst kl. 03.00 aðfararnótt laugardags í Nauthólsvík. Stefnt er að því ljúki upp úr klukkan 19:00 á bryggjugarði, bryggjuhverfinu í Grafarvoginum á laugardagskvöldið. Synt er í þremúr áföngum þar sem tvær tveggja til þriggja stunda pásur verða teknar. Málefnið er brýnt og samin hefur verið áskorun til ríkisstjórnar Islands, undirrituð af fimm sam- tökum: UNICEF og UNIFEM á íslandi, íslandsdeild Amnesty International, Kvennaathvárfinu, Stígamótum og Benedikt S. Lafleur um að hún fullgildi samninga um mansal. íbúar Hríseyjar standa í ströngu þessa dagana því von er á fjölda gesta til eyjarinnar nú um helgina. Tilefnið er fjölskylduhátíð fullveldis- ins sem blásið verður til á föstudag. Hríseyingar búast við allt að 4000 manns og því er ljóst að Hrís- eyingar mega hafa sig alla við að sinna gestum sínum því í mörg horn er að líta. Skipuleggja þarf dag- skrá, gera tjaldstæðin klár, annast gæslu og þrífa allt hátt og lágt fyrir komu gestanna. Valgeir Magnússon situr í undir- búningsnefnd hátíðarinnar.„Und- irbúningurinn hefur gengið prýði- lega og allir hafa lagt hönd á plóg. Við erum að leggja lokahönd á allt saman til þess að hægt sé að taka á móti öllu þessu fólki sem kemur til með að sækja okkur heim. Spáin er prýðileg fyrir helgina og við hlökkum til að eiga saman góðar stundir í eyjunni um helgina." Hátíðin er haldin til þess að minn- ast þess að þennan dag árið 1997 var tillaga um sameiningu Dalvíkur og Hríseyjar felld. „Þá kviknaði nokkur þjóðerniskennd meðal Hrís- eyinga og þessi hátíð hefur verið haldin æ síðan þó Dalvík hafi nú reyndar sameinast Akureyri. Þó var sérstaklega samið um það að Ak- ureyringar hefðu ekkert um Hrísey að segja þessa helgi.“ Valgeir segir hátíðina hafa gengið ákaflega vel fyrir sig undanfarin ár. Öll fjölskyldan ætti að geta fundið eitthvað við sitt hæfi en dagskráin er fjölbreytt og skemmtileg. Þar munu m.a. stíga á stokk Ómar Ragn- arsson, Hljómsveit Geirmundar Val- týssonar og leikarar úr barnaleikrit- inu Ávaxtakörfunni. Valgeir segir. það ekki vandkvæðum bundið að taka á móti öllum þessum fjölda. „Hér eru næg tjaldstæði og einnig getur fólk tekið með sér tjaldvagna í ferjuna. Gott er þó að hafa sam- band við skipráðendur áður til þess að panta far fyrir tjaldvagna," segir Valgeir og vonast til þess að sem flestir leggi leið sína til Hríseyjar um helgina. 20% afsláttur Húðvörumarfrá Gamla apótekinu eru án viðbættra litar- og ilmefna. Þær eru góður kostur fyrir alla, ekki síst þá sem þola illa aukaefni í kremum. Afsláttur gildir út júlí í verslunum Lyf og heilsu Sumar- tónleikar The Dyers í Gallerí Humar eða frægð Blue Brasil á jazzhátíð Fjórðu tónleikarnir í tónleika- röðinni Sumartónleikár í Akureyr- arkirkju verða haldnir sunnu- daginn 23. júlí klukkan 17:00. Flytjandi að þessu sinni er orgelleikarinn Guðný Einars- dóttir. Á tón- leikunum mun Guðnýleika verk eftir Dietrich Buxte- hude, Georg Böhm, Johann Sebastian Bach, Jehan Alain og Charles Marie Widor. Guðný Einarsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1978. Hún stundaði planónám við Tónlistarskólann í Reykjavík og orgelnám við Tónskóla Þjóðkirkjunnar þar sem kennari hennar var Marteinn H. Friðriksson. Tónleikarnir standa í klukkustund án hlés og er aðgangur ókeypis. Reykvíska nýrokksveitin The Dy- ers verður með stutta seinniparts- tónleika í Gallerí Humar eða frægð í dag klukkan 17:30. Hljómsveitin var stofnuð árið 2004 af þeim Kjart- anl*f>órssyni, Helga Reyni Jónssyni og Guðmundi Einarssyni. Sameig- inlega höfðu þeir áhuga á tónlistar- mönnum á borð við Steppenwolf, Thin Lizzy, Bruce Springsteen og fleiri. The Dyers tók þátt í Músíktil- raunum árið 2005, hafnaði þá í þriðja sæti og fór í kjölfarið í upptökur í Stúdíó Sýrlandi í Hafnarfirði (áður Hljóðriti). Þar tóku þeir upp nokkur lög undir stjórn Sigurðar Inga Þor- valdssonar. Hljómsveitin hefur ný- verið klárað disk sem verður gefins á tónleikum sveitarinnar í Gallerí Humar eða frægð. The Dyers Rokksveitin Reykviska nýrokk- sveitin The Dyers verður með stutta seinni- partstónleika i GalleríHumar eða frægð Hljómsveitin hefur undanfarið verið að vekja athygli á sér, meðal annars með spilun í Kastljósi og á öldum ljósvakans. Nú stendur yfir jazzhátíðin, Django Jazz Festival, á Akureyri en hún er tileinkuð gítarsnillingnum Django Rheinhardt. I kvöld mun Ola Kvernberg, jazzf- iðlari frá Noregi spila með þýsku hljómsveitinni Blue Brasil, en hana skipa Sandra Hempel á gítar, Iris Kramer á trompet, Hrólfur Vagns- son á harmonikku, Derek Scherzer á trommur og Arndt Geise á kontrabassa. Tónleikarnir fara fram í Ketilhús- inu og hefjast klukkan 21:30.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.