blaðið - 21.07.2006, Síða 23
blaöið FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006
23
gæludýr
Met-dýr
Fyrir foreidra seni vilja ekki taka dýr inn á heimilið ætti vefsiðan www.neop-
ets.com að koma að gagni. Þar geta börn og fullorðnir séð um vef-gæludýr
og það gæti kennt börnunum að dýrahald er ekki eins einfalt og það sýnist.
Páfagaukar
Gargandi góður
Páfagaukar hafa lengi verið vinsæl gæludýr ekki
sist vegna greindar sinnar og langrar ævi en
hún getur verið allt að 35 ár.Gárar eru að
líkindum vinsælustu páfagaukarnir og jÁ
hafa verið hér á landi. Á undanförnum
árum hafa þó fleiri tegundir verið fluttar inn til «
landsins. /
Ingólfur Tjörvi Einarsson í Furðufuglum
og fylgifiskum segir að mikill skriður hafi
verið kominn á fuglainnflutning þar til
fuglaflensan kom til sögunnar og innflutn- 'A
ingsbann tðk gildi í október í fyrra. „Fjöl- /Æj
miðlaflensa segi ég. Ég er með tvo fugla í
sóttkví núna svo ég held að þetta sé að
komast á skrið aftur.“
GÁRI Gárar koma frá Ástralíu og er eini fugl-
inn sem áhugamenn hafa ræktað íyfir 100 ár.
Þeirem til í margvislegum litaafbrigðum. Gár-
inn er skapgóður og hentar vel með börnum.
Hann geturnáð 12 ára aldri.
DÍSARPÁFI Er fremur Iftill *
fugl af kakadúaætt. Til eru
mörg litarafbrigði en hann get- V
ur náð allt að 25 ára aldri. Hef- )F
ur fallega söngrödd og nagar «.
ekki mikið, hljóðlátur fugl sem
hentar með bömum.
Barnið sem fer
ekki að heiman
Páfagaukar eru
miklar félagsverur
sem krefjast -mik-
illar athygli og um-
önnunar. Sökum
greindar sinnar
þurfa þeir einnig
að hafa ýmislegt að
glíma við, svo sem ýmislegar
þrautir. Greindin gerir það
einnig að verkum að páfagaukum má
kenna ýmsar kúnstir. Mikilvægt er að
páfagaukurinn treysti eiganda sínum
en með þolinmæði og góðri umönnun
má smám saman fá fuglinn til að
hoppa á fingur, jafnvel öxl og spjalla
við hann. Fuglinum má síðar strjúka
en þessi samskipti verða að þróast hægt og
örugglega. Smám saman má svo kenna fugl-
inum að klifra stiga og fleira.
Tjörvi segir að hér á landi séu um 40
tegundir fugla en hann ræktar sjálfur
nokkar tegundir. „Það er mikilvægt
að fólk kynni sér hvers páfa-
gaukar þarfnast og
hvað umönnun slíkra
dýra hefur í för með sér
áður en það fær
SENEGAL PÁFi Senegalinn er
fagurgrænn meö grátt eða dökk-
grátt höfuð. Hann er ættaður frá
Vestur-Afriku. Hann er miöiungs-
hávær og getur orðið allt að 35
ára gamall.
sér fugl. Þeir eru
barnið sem fer
ekki að heiman.
Égersjálfurmeð
ara, eða arnpáfa,
sem er um 90
sm og hefur um
tveggja tonna
bitkraft. Hann var að leika sér í bununni í eldhúsvaskinum um
daginn og beit hreinlega gat á kranann, slíkur er krafturinn."
Goggunarröðin skýr
Þrátt fyrir að páfagaukar geti orðið ansi stórir er rekstrar-
kostnaðurinn þó ekki svo mikill. „Rekstrarkostnaður fugla er
minni en flestra annarra dýra því þeir geta borðað margt af því
sem við borðum eins og ávexti, grænmeti og korn. Svo kostar
ekkert að skrá þá og þá má jafnvel tryggja líka. Svo má auðvitað
fara með fugla á svæði þar sem
önnur dýr eru bönnuð,“ segir
Tjörvi. „Við ráðleggjum fólki
að klippa af þeim flugfjaðr-
irnar, þær vaxa árlega aftur.
Það er mikil-
vægt að
inn nái
of mikilli
flughæð,
þá er hann
v i ð r á ð -
anlegri.
Fuglinn lítur svo á að komist hann yfir
höfuðið á þér þá ráði hann. Þannig er gogg-
unarröðin hjá fuglum að sá sem ofar er ræður
meiru.“
Rétt og gott mataræði páfagauka er afar mik-
ilvægt en það getur lengt ævi þeirra töluvert og
gefið þeim næga orku til að vera sprækir og
skemmtilegir. Ferskir ávextir, frækorn og
baunir eru gott fóður en mikilvægt er
að huga að mörgum þáttum í fóðrun
páfagauka og því rétt að ráðfæra sig
við sérfræðinga. Margvíslegur heilsu-
brestur getur komið til af röngu
mataræði og ýmsu öðru og finna
má afar gagnlegan lista yfir kvilla
L páfagauka, líklega orsök og
RÓSHÖFÐI Er ættaður frá
Suðvestur-Afriku. Ástúðlegur oq
athafnasamur fugl sem þolir illa
aörar fuglategundir i kringum sig.
Getur orðið 30 ára.
Hermikrákur
Ekki allir
páfagaukar geta lært að tala.
Þeir eru fyrst og fremst eft
irhermur og mis minnugir
svo hæfileikar þeirra til þess
að herma eftir þeim hljóðum
sem þeir heyra eru ólíkir. Kven-
raddir henta betur fyrir tal-
kennslu páfagauka þar
sem þær eru skærari.
Mikilvægast er, ef
kenna á páfagauki
að tala, að halda
honum frá öðrum
fuglum. Best er að
einbeita sér að einu orði og endurtaka það í sí-
fellu fyrir fuglinn. Hann á að líkindum erfiðast
með að læra fyrsta orðið en þegar það er komið
gengur honum betur að bæta við orðaforðann.
Tjörvi segir að dísur af kakadúaætt, ásamt gár-
unum, séu vinsælustu fuglarnir enda henti þeir
vel með börnum. Hann segir þó að betra sé að fá
handmataðan fugl, fugl sem hefur verið vaninn af
mönnum frá byrjun. „Þá lítur fuglinn á manninn sem mömmu
sína og eltir hann. Þannig fugl er meðfærilegri og gæfari. Það
kostar auðvitað meiri vinnu, tekur frá sex vikum til þriggja
mánaða en handmataðir fuglar eru miklu skemmtilegri.“
lækningu
á vefsíðu
Dagfinns
dýralæknis
MASKAR! Er af ástargaukaætt
og getur náö 30 ára aldri. Hann
er ættaður frá Tansaníu og er
miðlungshávær. Er afar stjóm-
samur og hentar ekki fyrir böm.
Fallegar og mjúkar
Kanínur njóta sífellt meiri vinsaelda sem gæludýr enda eru þær Ijúfar og
auðveldar að temja. Þær eru einnig leikglaðar og skemmtilegt að fylgj-
ast með þeim í daglegu bjástri. Kanínur eru sérlega félagslyndar svo
mikilvægt er að sína þeim athygli og leika við þær. Það má venja þær
við að gera stykkin sína á þar til gerða staði og gæta þarf þess að þær
hafi sifellt eitthvað að naga þannig að gott er að hafa nægilega mörg
nagleikföng nærri sér. Eins þarf að hafa þau svæði sem kanínunni er
leyft að valsa um, kanínuheld. Kanínum þykir ágætt að brýna tennurnar á
parketlistum og ýmsum öðrum heimilisbúnaði af því taginu svo húsgögn
þarf að verja. Þær þurfa frekar stór búr og þær geta þarfnast dýralæknis-
aðstoðar sem getur gert umhirðu þeirra kostnaðarsama. Á hinn bóginn
kostar ekki mikið að fóðra kanínur.
Allar gæludýravörur
30 % - 50 % AFSLÁTTUR
Full búð af nýjum vörum
TOKYO
gæludýravörur Lau 10-16 • Sun 12-16
Hjallahraun 4 • Hafharfirði s.565-8444