blaðið - 05.09.2006, Page 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2006
UTAN ÚR HEIMÍ
Senda lið til Líbanons
Stjórnvöld í Katar lýstu því yfir í gær að þau
myndu senda þrjú hundruð manna lið til frið-
argæslu í Líþanon. Katar er fyrsta Arabaríkið
sem hefur tilkynnt að það muni taka þátt í
friðargæsluliði Sameinuðu þjóðanna.
Lána Venesúelamönnum
Kínverski þróunarbankinn hefur
ákveðið að lána stjórnvöldum í
Venesúela um 800 milljarða krónatil
uþþbyggingar á húsnæði víðsvegar
um landið. Kínverjar og Venesúela-
LÍBANON C:
menn hafa aukið með sér samstarf
á ýmsum sviðum undanfarin misseri
en þeir fyrrnefndu hafa boðið þeim
síðarnefndu upþ á ýmsar ívilnanir
gegn samningum um umsvifamikil
olíuviðskipti.
Annan miðlar málum
Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna,
hefur samþykkt að miðla málum á milli
(sraela og vígamannana Hizþallah sem hafa
ísraelsku hermennina tvo í haldi. Talsmaður
Annan staðfesti þetta í gær.
Smábátum hefur fækkað um 165 á tveimur árum:
Metfiskirí trillukarlanna
Sjómenn:
Þrettán
sagt upp
mbl.is Þrettán mönnum úr áhöfn
ísfiskstogarans Harðbaks EA
hefur verið sagt upp störfum.
Þetta er meirihluti skipverja.
Brim gerir skipið út og að sögn
Reynis Georgssonar, útgerðar-
stjóra Brims, er þetta liður í
skipulagsbreytingum hjá félaginu.
Hann segir öllum mönnunum
hafa verið boðin störf á öðrum
skipum félagsins. „Það er engin
að missa vinnuna. Þetta eru
bara skipulagsbreytingar,“ segir
Reynir.
Um fimmtán eru í áhöfn skips-
ins í einu og því er ljóst að um
mikinn meirihluta skipverja er að
ræða. Reynir segir að mönnunum
hafi verið tilkynnt um skipulags-
breytingarnar fyrir um hálfum
mánuði.
■ Veiðiheimildir hafa þjappast saman Fimmtungsfækkun trilla á tveimur árum
Eftir Atla ísleifsson
atlii@bladid.net
Smábátum á íslandi hefur fækkað
mikið á síðustu árum. Örn Pálsson,
framkvæmdastjóri Landssambands
smábátaeigenda, segir að fjöldi smá-
báta sem lönduðu afla hafi verið
mjög stöðugur um árabil en fækkað
umtalsvert á síðustu tveimur árum.
Heildarfjöldi smábáta á landinu
minnkaði úr 1.063 árið 2004 í 898 á
síðasta ári.
„Helsta ástæða þessarar fækkunar
smábáta er að sóknardagakerfið,
þar sem einungis var heimilt að
veiða með handfærum, var lagt
niður fyrir tveimur árum,“ segir
Örn og bætir við að bátarnir hafi
þá farið á kvóta. „Margir töldu sig
ekki hafa nógu mikinn kvóta til að
það myndi borga sig að gera út. Því
seldu þeir veiðiheimildirnar, sem
hafa eitthvað þjappast saman.“
Örn segir aðra ástæðu vera að
stærri bátar hafi byrjað að veiða
innan krókaaflamarksins, sem hafi
orðið til þess að meiri eftirspurn
varð eftir veiðiheimildum. „Verð
hækkaði þannig að margir hafa
séð hag sinn í því að selja kvótann.
Fækkunin virðist hlutfallslega hafa
verið mest á Austurlandi.“
Að sögn Arnar er fækkun smá-
báta á landinu einfaldlega þróun
sem hefur átt sér stað. „Þessir
stærri bátar eru enn að koma inn
í kerfið svo ég sé ekki neitt annað
í stöðunni en að þróunin muni eitt-
hvað halda áfram. Lög voru hins
vegar sett á Alþingi síðasta vetur
þar sem sett var ákveðið þak á eign-
araðild manna á kvótanum þannig
að það gæti eitthvað heft þróun síð-
ustu ára.“
Heildarafli krókabáta er þegar
kominn yfir 75 þúsund tonn, sem er
veruleg aukning frá fiskveiðiárinu
2004/2005 þegar aflinn var 62 þús-
und tonn. „Þetta fiskveiðiár er al-
gert met. Afli bátanna jókst í öllum
fisktegundum. 1 tonnum talið varð
mest aukning í ýsu, 6.500 tonn, eða
aukning um fjörutíu prósent.“
Þú gengur að gæðunum vísum!
FYRSTA FLOKKS
Fartö vur
...á frábæru
kynningarverði!
ZEPTb 6214W
Kraftmiki! og nett
ZEPTO 4015SE
Fjölhæf og þolgóð
15" XCA 1024x768 skjér v-V.
l,5Ghz Intel Celeron M370 1MB örgjörvi
512MB DDR2 667Mhz vinnsluminni
80Gb 5400rpm Hitachi harður diskur
Dual Layer DVD skrifari
Innbyggt 54Mbps þráðlaust netkort, minniskortalesari, Gigabit netkort,
modem, 4xUSB2.0, Firewíre, VGA, Parallel og TV tengi
Allt að 5 klst. rafhlöðuending
14,1'WXGA 1280x 800 skjár
l,83Ghz Intel Core Duo T2400 örgjörvi
Nvidia Geforce Go 7600 512Mb skjákort
1024Mb DDR2 667Mhz vinnsluminni
80Gb 5400rpm SATA Hitachi harður diskur
Sony Dual Layer DVD skrifari
Innbyggt 54mbps þráðlaust netkort, Bluetooth, modem, Gigabit netkort,
minniskortalesari, 4xUSB2.0, VGA, Firewire, S/PDIF og TV tengi
Lftil og létt - aðeins 2,35 kg
ZEPTO 2425W
Öflug og skemmtileg
ZEPTO 6615WD
Sú öflugasta
15,4' WXGA+ Crystal Clear 1280 x 800 skjár
Intel Core DuoT2400 l,83Ghz örgjörvi
15,4" WSXGA 1680 x IÓ50 breiðljaldsskjár
Intel Core Duo T2500 2,00Ghz örgjörvi
NVidia Geforce Go 7600 512MB skjákort
1024MB DDR2 667Mh2 vinnsluminni
100Gb 7200rpm SATA harður diskur (Hitachi)
Sony Oual Layer DVD skrifari
Innbyggt 54mbps þráðlaust netkort, Bluetooth, 4x USB2.0, VGA, Firewire,
Infrarautt, Ix S/PDIF, hljðð inn/út, minniskortalesari, Gigabit netkort, TV tengi
(s-video), 56K Modem
Innbyggð vefmyndavél
Nvidia Geforce Go 7600 256MB skjékort
1024MB DDR2 667Mhz vinnsluminni
100Gb 5400rpm SATA Hitachi harður diskur
Sony Dual Layer DVD skrifari
Innbyggð vefmyndavél og fingrafaralesari
Innbyggt 54mbps þráðlaust netkort og Bluetooth, modem, Gigabit netkort,
minniskortalesari, express kortarauf, 4x USB2.0, VGA, Firewire, S/PDIF og TV tengi
9-cell rafhlaða - allt að 3 Vi klst. ending
m
Tölvukaupalán
ORMSSON
KEFLAVÍK ■ Sími 421 1535 I SlÐUMÚLA 9 ■ Sími 530 2800
Kennitölulausir útlendingar á íslandi:
Tappinn er
hjá Þjóðskrá
„Tappinn er hjá þjóðskrá og al-
gjörlega óviðunandi eins og þetta
er núna. Það er óþolandi að þjóð-
skrá hafi ekki brugðist við með
því að ráða fleira starfsfólk," segir
Þorbjörn Guðmundsson, formaður
Samiðnar.
Þjóðskráhefur verið ívandræðum
með að afgreiða kennitölur fyrir út-
lendinga og biðtíminn þar er orðinn
sex til átta vikur. Hún hefur vísað
vandanum á atvinnurekendur og
segja umsóknir um kennitölur ófull-
nægjandi. Atvinnurekendur hafa á
móti bent á ófullnægjandi leiðbein-
ingar á heimasíðu Þjóðskrár. Kenni-
töluleysið skapar ýmsan vanda fyrir
atvinnurekendur og starfsfólk.
„Þegar svona stifla er í kerfinu þá
vindur það upp á sig því það er erfitt
að skrá nokkuð í kerfinu án kenni-
tölu. Atvinnurekendur geta ekki
skilað inn skilagreinum og ekki
er hægt að nýta persónuafsláttinn.
Þó svo að atvinnurekendur reyndu
þá geta þeir ekki farið eftir settum
lögum og því alvarlegt hversu illa
er staðið að þessum málum af hálfu
stjórnvalda. Alvarlegasti bresturinn
er hjá þjóðskránni,“ segir Þorbjörn.
Til þess að leigja sér vídeóspólu
eða DVD-mynd á Islandi er skilyrði
að gefa upp kennitölu. Þorvaldur Þor-
láksson, framkvæmdastjóri Bónus-
vídeó, segir þetta yfirleitt ekki hafa
verið vandamál hjá fyrirtækinu.
„Skilyrðin fyrir því að leigja spólu
er að gefa upp kennitölu og því segja
reglurnar að þetta sé ekki leyfilegt.
Hins vegar man ég ekki eftir þvi
að upp hafi komið vandræði með
þetta,“ segir Þorvaldur.
Íöíldcclingar!
Stefnum hugum vorum að
Bíldudalskirkju 1. sunnudag
í aðventu nk. og fögnum 100
ára afmæli.
séra Bragi, séra Flosi, séra Agnes,
séra Dalla, séra Sigurpáll, séra
Hörður, séra Auður Inga, séra
Sveinn og séra Jakob.
SMÁRALIND • Sími S30 2900 I AKUREYRI ■ Sími 461 5000