blaðið - 05.09.2006, Side 17
blaðiö
ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2006 17
New York:
Lögregla trúði
ólöglegu skilti
íbúum við götu eina í Brook-
lyn-hverfi í New York brá heldur
í brún á miðvikudagsmorgun
þegar þeir vöknuðu á dögunum
og sáu að gatan var bíllaus og
komust að því í kjölfarið að
lögreglan hafði látið draga allar
bifreiðarnar í burtu.
Við nánari eftirgrennslan
kom í ljós að einhver framtaks-
amur brandakarl hafi fest skilti
sem bannar bifreiðastöður við
götuna. Lögreglan tók skiltið trú-
anlegt og tók að fjarlægja alla
bílana. íbúar við götuna þurftu
að borga allt að sextán þúsund
krónur til þess endurheimta
bílana sína.
Lögregluyfirvöld í borginni
hafa lofað endurgreiðslu og
hyggjast fjarlægja skiltið.
Náttúruvemdarsamtök:
Lítill arður af
Kárahnjúkum
Náttúruverndarsamtök ís-
lands áætla að tapið af fjárfest-
ingu Landsvirkjunar í Kára-
hnjúkavirkjun nemi um tuttugu
til þrjátíu milljörðum króna.
Samtökin byggja útreikninga
sína á tölum sem Landsvirkjun
gaf upp í endurskoðuðu arðsem-
ismati framkvæmdarinnar.
f frétt sem samtökin senda
frá sér segjast þau ítrekað hafa
gagnrýnt neikvæða arðsemi
Kárahnjúkavirkjunar og sérstak-
lega hve litlar kröfur Lands-
virkjun hefur gert til arðsemi
fjárfestingarinnar.
Framhaldsskólar:
Kennslukonur
fleiri en karlar
Konur eru í fyrsta sinn meiri-
hluti framhaldsskólakennara.
Samkvæmt tölum frá Hagstof-
unni hefur þeim fjölgað veru-
lega síðustu fimm árin. Konur
voru 52 prósent allra starfs-
manna við kennslu í nóvember í
fyrra, en 44 prósent árið 2000.
Brottfall úr kennarastéttinni
hefur minnkað, en nú fara rúm-
lega sjötíu prósent kennara að
kenna strax að námi loknu. Þá
virðist sem kennarastéttin sé að
eldast, en um þriðjungur kenn-
ara er á aldrinum 50 til 59 ára.
íslenskir læknar:
Vilja stofna sjálf-
stæðan spítala
Tryggja þarf eðlilega samkeppni
milli spítala og heilbrigðisstofnana
til að ná fram hagræðingu og stuðla
að framförum að mati Læknafélags fs-
lands. Á aðalfundi þess hvatti félagið
til að sjúkrahúsum á höfuðborgarsvæð-
inu verði fjölgað og jafnvel komið upp
sjálfstæðum spítala í Fossvoginum.
Formaður félagsins segir ekki verið
að hvetja til einkavæðingar í heilbrigð-
ismálum. „Það er alltaf verið að ala á
þeim misskilningi að einkareknar
lausnir séu eitthvað slæmar, “ segir Sig-
urbjörn Sveinsson, formaður Læknafé-
lags fslands. „Við höfum notað einka-
reknar lausnir og öff sérfræðiþjónsta
er einkarekstur.“
í ályktun Læknafélagsins kemur
fram að sú hagræðing sem stefnt hafi
verið að með sameiningu Fossvogs-
spítala og Landspítala hafi ekki skilað
tilætluðum árangri. Skerða hafi þurft
þjónustu og minni tími sé til vísinda-
starfa. Félagið vill að hafinn verði
undirbúningur að sjúkrahúsrekstri á
eigin vegum og að Tryggingastofnun
kaupi þjónustu af sjúkrahúsinu.
Sigurbjörn segir að með þessu sé
hægt að tryggja ákveðnu hagræðingu
og fjölbreytni fyrir sjúklinga. Fyrst og
Sigurbjörn Sveinsson,
formaður Læknafélags
íslands Er ekki að hvetja
til einkavæðingar
fremst hafi þó markmiðið verið að
vekja athygli á þessu máli. „Við viljum
vekja umræðu um þann mögufeika að
starfrækja áffam heilbrigðisþjónustu
í Fossvogssjúkrahúsinu eftir að upp-
bygging hefst við Landspítalann.
Verð frá 1.589 þús.
Suzuki Swift er bíll sem hefur sett ný viðmið í hönnun, útliti og aksturseiginleikum
fólksbila og hefur fengið fádæma góðar viðtökur um allan heim. Suzuki Swift var valinn
bíll ársins á íslandi 2006 af BIBB samtökum íslenskra bílablaðamanna. Suzuki Swift
var einnig valinn „Car of the Year“ 2005 af virtasta bílablaði Bretlands „Car magazine“.
Hann var valinn bíll ársins á írlandi, Nýja-Sjálandi, Astralíu, Kina, Malasíu og Japan.
í Japan fékk Suzuki Swift líka „most fun special special achievement award“
og „Design award of the year“.
$
SUZUKI
...er lífsstill!
SUZUKI BlLAR HF. SKEIFUNNI 17. SlMI 568 51 00.
www.suzikibilar.is