blaðið - 05.09.2006, Page 22
30 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2006
blaðiö
fólk
folk@bladid.net
HVAÐ FINNST ÞER?
Varstu þá laumukommi
eftir allt saman?
„Nei, ég var það ekki. En það sjá allir hugsandi menn á hvaða
vegferð Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið undanfarin ár."
Guðjón A. Kristjiinsson, nlþingismnð-
itrog föritinður FrjólslyiuUi flokksins
i fréttum Rikisútvarpsins í gærkvöldi viðurkenndi Guð-
jón Arnar að hann hafi tekið vinstri snúning frá því hann
sjálfur var þingmaður í Sjálfstæðisflokknum.
Tek frænku hlutverkið alvarlega
HEYRST HEFUR...
Silvía Nótt hefur undan-
farnar vikur dvalið í mik-
illi glæsivillu í stórborginni
Los Angeles
við upptökur
á plötu sem
kemur út á
náestu miss-
erum. 1 Kana-
veldi hefurým-
islegt á daga
hennar drifið.
Meðal annars fór hún að hitta
Magna í Supernova og vakti
vitanlega mikla athygli þar-
staddra eins og við er að búast
af þessari háttprúðu stúlku.
Eins og venja er með drottn-
inguna hefur hún í kringum
sig mikið starfslið en nú hefur '
bæst í hópinn svokallaður
Life Coach sem hvetur hana
til dáða. Ekki nóg með það
heldur er hún líka með sinn
eigin gúrú sem sér til þess að
hún haldi andlegu jafnvægi
í vinnutörninni. Eflaust ekki
vanþörf á.
Sú saga gengur fjöllunum
hærra að þegar sé búið að
ákveða að Lukas Rossi fari
með sigur af
hólmi í raun-
veruleikaþætt-
inum Rock
Star: Sup-
ernova, sem
íslendingar
halda ekki
vatni yfir
þessa dagana. Hljómsveitin
knáa er sögð hafa ákveðið
þetta í samráði
við ýmsa mark-
aðsráðunauta
sína og tilgang-
urinn með þætt-
inum er sagður
vera að auglýsa
hljómsveitina og
hala inn tekjur. Það sama á að
hafa verið uppi á tengingnum
í fyrstu þáttaröð Rock Star,
þegar hljómsveitin INXS
valdi sér J.D. Fortune sem
söngvara.
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir,
háskólanemi og fjölmiðlamaður,
segist ekki alveg vera viss hverju
hún eigi að svara þegar hún er
spurð að því hver ástríðan hennar
sé. „Þessa dagana er nýfædd dóttir
vinkonu minnar mín helsta ástríða.
Það kemst voða lítið annað að en
að heimsækja hana enda var ein
besta vinkona mín að eignast sitt
fyrsta barn. Það snýst því allt um að
kaupa barnaföt og reyna að vera góð
frænka enda tek ég þetta hlutverk ro-
salega alvarlega.“ Ragnhildur Stein-
unn segir að þetta sé reyndar ekki
fyrsta barnið í vinkonuhópnum en
fyrsta barn þessarar tilteknu vin-
konu. „Ég er einmitt á þeim aldri að
það eru allir að koma með lítið kríli
og manni finnst maður eiginlega
hálfhallærislegur að vera ekki með.
Ég vinn svo mikið og vil njóta þess
ásamt því að klára námið áður en ég
kem með barn. En þangað til tek ég
frænkuhlutverkið alvarlega."
Allur lærdómur nýtist
Ragnhildur Steinunn hefur
stundað nám í sjúkraþjálfun í
Háskóla íslands og á einungs verk-
námið eftir. Hún segir að vitanlega
sé viss ástríða sem fylgir bæði starfi
og námi. „Ég mun sennilega klára
verknámið í vetur en ég var nýlega
í mánuð á Landspítalanum í verk-
námi. Á meðan ég á ekki ritgerðina
eftir þá finnst mér ég eiginlega vera
búin en námið hefur verið mjög
skemmtilegt. Hins vegar hef ég
oft verið spurð að því af hverju ég
sé að læra sjúkraþjálfun og vinni
við fjölmiðla en það er þannig að
námið nýtist mér, hvað sem ég geri.
Ég held að það sé þannig með allt
nám, maður getur alltaf nýtt það
sem maður lærir,“ segir Ragnhildur
Steinunn sem hefur nóg að gera í
vinnunni og náminu. „Það kemst
voða lítið að annað en fjölskyldan,
vinirnir, námið og vinnan. En mér
finnst ég rosalega heppin að vinna
við það sem ég hef gaman af.“
svana@bladid.net
SU DOKU talnaþraut
3 7 2 9 8 6 4 1 5
6 8 4 2 1 5 7 9 3
5 9 1 7 3 4 2 6 8
9 2 6 8 5 3 1 7 4
4 1 5 6 2 7 3 8 9
8 3 7 4 9 1 5 2 6
7 5 8 1 4 9 6 3 2
1 4 9 3 6 2 8 5 7
2 6 3 5 7 8 9 4 1
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum
frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig
að hvertala komi ekki nema einu sinni
fyrir (hverri línu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan hvers n(u
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins:
5 4 2 6 1
2 1 4 7 3
8 3 6 2 9
7 9 2 4 6
9 3
4 6 7 8
9 8
2 3
5 7
eftir Jim Unger
„Þú sporar allt út!"
SPURNING DAGSINS
Hver er besti tími
dagsins?
Guðmundur Ingólfsson, nemi
Besti tími dagsins er klárlega í
hádeginu
Nökkvi Gislason, nemi
íslenska.
Melinda Kumbalek, þýðandi
Morgnarnir, því að þá er allt svo
hljóttog enginn áferli.
Anna Valdis Guðmundsdóttir,
tómstunda- og félagsmálafræð-
ingur, og Rebekka Rós
Ég hugsa að það sé morgnarnir.
Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir,
nemi
Kvöldin, þar sem ég er alltaf svo
þreytt á daginn.