blaðið - 05.09.2006, Qupperneq 24
32 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2006
blaðiö
kolbrun@bladid.net
„Eg dáist að sterk-
um mönnum - með
veikleika.“
Afmælisborn dagsms
LOUISXIV KONUN ~UR, 16^8
WERNER HERZOG LEIKS <,1942
ARTHUR KOESTLER RITHÖFUNDUF. j
JESSE JAMES ÚTLAGI, 1847
UNDA N
IUCRESIN
Klassík í
endurútgáfu
Hjá Vöku-Helgaíelli er komin
út bókin Undan lllgresinu eftir
Guðrún
Helgadóttur.
Bókin kom
fyrst út árið
1990. Guð-
rún Helga-
dóttir er einn
ástsælasti
rithöfundur
þjóðarinnar.
Undanfarna
þrjá áratugi
hefur hún sent frá sér á þriðja
tug bóka sem hafa notið mikilla
vinsælda meðal lesenda á öllum
aldri. Fyrir þessa hörkuspenn-
andi og leyndardómsfullu bók
fékk Guðrún Norrænu barnabóka-
verðlaunin árið 1992.
Vísnabókin í
upprunalegri mynd
Hjá Máli og menningu er komin
út í nýjum búningi Vísnabókin
með
myndum
Halldórs Pét-
urssonar.
Vísnabókin
hefur verið
eftirlæti
íslenskra
barna allt
frá því hún
kom út árið
1946. Hér
eru vísurnar
sem öll börn læra fyrstar, margar
sem lifað hafa með þjóðinni kyn-
slóðum saman, aðrar eftir síðari
tíma skáld.
Bókin á nú í ár 60 ára afmæli. I
tilefni af því hefur hún verið gefin
út í sérstökum hátíðarbúningi.
Hátíðarútgáfan er Ijósprent af
frumútgáfunni sem er töluvert
öðruvísi en seinni tíma útgáfur
þar sem fljótlega var farið að
auka við hana. Bókin er prýdd
hinum sígildu myndum lista-
mannsins Halldórs Péturssonar.
10. útgáfa
af Dimma-
llmm
Sagan af
Dimmalimm
er ein ást-
sælasta og
vinsælasta
barnabók
íslendinga til
margra ára,
ekki hvað síst
fyrir hrífandi myndskreytingar
listamannsins. Tímalaus boð-
skapur ævintýrisins sem í senn
er bæði einfaldur og fallegur
hefur átt hljómgrunn hjá fólki á
öllum aldri á mismunandi tímum.
Ævintýrið um Dimmalimm samdi
Muggur árið 1921 handa lítilli
frænku sinni og er meðal helstu
gersema sem hann lét eftir sig.
Sagan af Dimmalimm hefur verið
þýdd á fjöldamörg tungumál og
upp úr þessu fallega ævintýri
hafa verið samin bæði leik- og
tónverk. íslensku myndskreyti-
verðlaunin sem veitt voru í fyrsta
sinn í desember 2002 eru kennd
við Dimmalimm, en verðlaunin
eru veitt ár hvert fyrir bestu
myndskreytingu í barnabók.
s smmm
m Wmi
; i m
./)
Jmi/ruit
Stefán Hallur Stefansson og Elma
Lísa Gunnarsdóttir í hlutverkum sin-
um „Þegar grimmd og erótík fara saman
eins og íþessu ieikriti, held ég að við
séum komin með þverskurð af mörgu
ástarsamböndum," segir leikstjórinn ‘
hófundurinn Agnar Jón Egilsson.
Jtfaa?
^uslurbæ
Grimmd og erótík
Austurbæ standa yfir sýningar
á leikritinu Afgangar eftir Agn-
ar Jón Egilsson en hann er jafn-
framt leikstjóri verksins.
„Ég skrifaði þetta verk árið 2002.
Ég man reyndar ekkert eftir því
að hafa skrifað það og í því eru at-
riði sem ég skil ekki,“ segir Agnar
Jón.
„í leikritinu fylgjumst við með
manni og konu á hótelherbergi eina
nótt. Þau þekkjast greinilega ekki
vel og eftir því sem líður á kemur
í ljós hversu erfitt er að tengjast
manneskju.
Ég sem höfundur og við sem leik-
hópur spyrjum í lokin: Þorum við
að elska? Erum við nógu hugrökk
þegar við hittum ástina í lífi okkar
að henda örygginu?"
Mikilvægur undirtexti
Er þetta svartsýnt eða bjartsýnt
leikrit?
„Það fer alveg eftir því hvar áhorf-
andinn stendur. Okkur sýnist sem
áhorfendur lesi þetta út frá sínu eig-
in lífi. Ein sautján ára sagði: Þetta er
greinilega eldra fólk sem er að horfa
aftur til dagsins þegar það hittist, en
fólk sem kemur á sýninguna og stend-
ur í skilnaði fer að gráta. Aðrir segja:
Hvað er þetta, auðvitað er maður
hræddur þegar maður kynnist nýrri
manneskju en það eru bara viðvörun-
arbjöllur sem verða til þess að maður
bregst við til hins betra.“
Heldurðu að mannleg samskipti
séu erfið?
„Ég held að við séum svolítið
hrædd, og fyrst og fremst hrædd við
að vera glöð. Ég get vel ímyndað mér
að stór hluti hins vestræna heims
eigi erfitt með að sitja kyrr og njóta
sólarlagsins."
Það eru einungis tveir leikarar í
þessu leikriti. Hvernig er að skrifa
leikrit þar sem persónur eru einungis
tvœr?
„Það er mjög gaman. Mér finnst
texti í leikhúsi almennt leiðinlegur
og uppskrúfaður. Ég hef engan áhuga
á skáldskap. Ég hef áhuga á að segja
sögu. I þessu leikriti er undirtextinn
merkilegri en það sem sagt er.“
Magnaður texti
Leikendur í Afgöngum eru Stef-
án Hallur Stefánsson og Elma Lísa
Gunnarsdóttir. „Bæði hlutverkin eru
draumahlutverk og mjög krefjandi
og spanna allan tilfinningaskalann,
allt frá því fallegasta í sambandi yfir
í það grimma og ljóta,“ segir Elma
Lísa.
Hvernigfinnst þér textinn?
„Ég hef aldrei áður séð leikhústexta
sem er eins og talmál. Handritið er
140 síður af samtölum. Það var dálít-
ið erfitt að læra þann texta en við vor-
um samt fljót að því og þegar maður
flytur hann á sviði er hann ótrúlega
magnaður.“
Rétt er að taka fram að leikritið,
sem er erótískt, er bannað innan
14 ára. Leikstjórinn og höfundur-
inn Agnar Jón á lokaorðin: „Þegar
grimmd og erótík fara saman, eins
og í þessu leikriti, held ég að við sé-
um komin með þverskurð af mörg-
um ástarsamböndum.“
Dr. Zhivago kemur
út í Bandaríkjunum
menningarmolinn
Á þessum degi árið 1958 kom
skáldsagan Dr. Zhivago eftir Boris
Pasternak út í Bandaríkjunum. Bók-
in var bönnuð í Sovétrikjunum en
sovésk yfirvöld töldu að í bókinni
væri dregin upp glansmynd af yf-
irstétt Rússlands og að lýsingar á
bændum og verkamönnum sem
höfðu barist gegn keisaraveldinu
væru niðurlægjandi. en aðdáend-
'j Aiot Vfns ■
Vaseline ^
Vaseline
°CK ft
Nú líka með
ALOE VERA
Vaseline
Intensive Cíire
varasalvi
ur rithöfundarins
smygluðu bókinni
úr landi og hún
var fyrst gefin út á
Ítalíu árið 1957. Ári
síðar kom hún út í
Bandaríkjunum.
Pasternak fékk
Nóbelsverðlaun í bók-
menntum árið 1958 en
sovésk yfirvöld bönnuðu
honum að taka við verð-
laununum. Pasternak lést ár-
ið 1960. Árið 1965 var Dr. Zhivago
gerð að frægri kvikmynd þar sem
Omar Sharif fór með aðalhlutverkið.
5%2 ® A ** BSsT
'rtrMft. ‘ • 1
Bókin kom ekki út í Sovétríkjunum
fyrr en árið 1987.