blaðið - 05.09.2006, Qupperneq 32
40 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2006
blaðið
íþróttir
ithrottir@bladid.net
Geröi honum tilboð sem hann getur ekki hafnað
Eftir slaka byrjun Robertos Donadoni sem landslíðsþjálfara ítala hefur forseti
ítalska knattspyrnusambandsins, Guido Rossi, haft samband við Marcello
Lippi, sem stýrði liðinu á HM í sumar. Rossi hyggst ekki reka Donadoni en vill
gera Lippi að tæknilegum ráðgjafa hans. Rossi fullyrðir að Lippi komi afturtil
starfa þvi hann hafi „gert honum tilboð sem hann getur ekki hafnað.”
Eigendur fótboltaliða:
UEFA gegn
kapítalíseringu
Getumunur á liðum í kvennafótboltanum
Leikmenn veikari liða
veigra sér við efstu deild
■ Þrjú lið gjalda afhroð ■ Þjálfarar kalla á breytingar
í kjölfar þess að stjórn West
Ham tilkynnti mögulega yfirtöku
félagsins af fjársterkum erlendum
aðilum hefur UEFA lýst yfir
áhyggjum sínum af þróun mála í
ensku úrvalsdeildinni, en ekki er
langt síðan Manchester United og
Aston Villa voru seld til banda-
rískra auðkýfinga.
Fulltrúi almannatengsla UEFA,
William Gaillard, sagði í viðtali
við breska fjölmiðla að þróunin
færi í öfuga átt við það sem æski-
legt væri og að fleiri og fleiri félög
komist í eigu fárra útlendinga í
stað þess að eignaraðildin dreifist
meðal ensks almennings.
Enski boltinn:
Alex Ferguson
vill vetrarfrí
Alex Ferguson ásamt fleiri
þjálfurum í ensku úrvalsdeild-
inni hefur beðið enska knatt-
spyrnusambandið um að koma
á vetrarfríi eftir hina árlegu
jólatörn. „Jólatörnin er eitt af því
sem er frábært við ensku deild-
ina og henni má ekki breyta. Ég
hef hins vegar alltaf verið stuðn-
ingsmaður þess að leikmenn fái
frí frá innlendri keppni í byrjun
árs,” sagði Ferguson við breska
fjölmiðla í gær. „Það er mun
skynsamlegra að taka þriggja
vikna frí í janúar og leika aðeins
lengra fram á vorið þegar veðrið
er betra.”
Alex Ferguson sagði að um-
ræðan um vetrarfrí
yrði sífellt
hlálegri því
hann hefði
tekið þátt í
henni frá því
hann kom til
Manchester frá
Aberdeen
árið 1986.
Breyta þarf skipulagi efstu deildar
kvenna segja forsvarsmenn efsta og
neðsta liðs deildarinnar.
Uppákoman á sunnudag, þegar
lið FH mætti ekki til leiks í lokal-
eik Islandsmótsins, kristallar þann
vanda sem kvennaboltinn glímir
við, mikinn getumun á efstu og
neðstu liðum. Sem fyrr voru það
þrjú lið sem guldu afhroð í deild-
inni og náðu aðeins stigum úr inn-
byrðis viðureignum.
Allt of mikill getumunur
Kolfinna Matthíasdóttir, for-
maður kvennaráðs knattspyrnu-
deildar FH, segir allt of mikinn
getumun á milli efstu og neðstu liða
í deildinni. „Það mætti alveg fækka
liðum um tvö í efstu deild. Það væri
betra fyrir öll liðin. Við áttum til
dæmis bara heima í fyrstu deildinni
í sumar” segir Kolfinna og útskýrir
að margar stelpnanna sem hjálp-
uðu liðinu upp i efstu deild síðasta
sumar hafi lagt skóna á hilluna eða
farið til annara liða. „Við áttum
mjög erfitt með að manna lið fyrir
tímabilið og óskuðum eftir því að
fá að draga okkur úr keppni, en það
var ekki samþykkt.”
Veigra sér við efstu deild
Það sama var uppi á teningnum
hjá liði í A í fyrra, en þá voru þær ný-
liðar í efstu deild og urðu fyrir mik-
illi blóðtöku þegar margar ákváðu
að hætta eða fara til annarra liða.
Sigurlið Vals skoraði 90 mörk í
deildinni í sumar og fékk á sig átta,
en FH skoraði 6 og fékk á sig 96 og
svipaða sögu er að segja um liðin
tvö þar fyrir ofan, Þór/KA og Fylki.
En þessi þrjú lið hlutu aðeins stig úr
innbyrðis viðureignum sínum.
Þarf að huga að innra starfi
Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari
Valsstúlkna, segir að munurinn
felist fyrst og fremst í innra starfi
félaganna. „Þessi félög þurfa að
athuga hvers konar umhverfi þau
bjóða leikmönnum sínum. Það er
oft verið að gagnrýna okkur efstu
liðin fyrir að ræna leikmönnum af
öðrum liðum, en við erum að bjóða
leikmönnum upp á allt annað um-
hverfi. Úrvalsdeildarlið kvenna
eru varla með samningsbundna
leikmenn utan þrjú, og það eru þrjú
efstu liðin, Valur, Breiðablik og KR
segir Elísabet.
Breytinga þörf
Elisabet segir að núverandi fyrir-
komulag deiídarinnar gangi ekki
eins og staðan er.
„Það er ljóst að núverandi fyrir-
komulag gengur ekki.Við þjálfar-
arnir höfum rætt þetta okkar á
milli og sjáum þann kost helstan
að þessi 8 lið sem eru í úrvalsdeild-
inni spili einfalda umferð sín á
milli og fjögur efstu liðin eftir hana
spili svo í sérdeild það sem eftir er
og fjögur neðstu liðin sér. Þá gætu
farið fram 3-4 umferðir milli þess-
ara liða.
Uppstokkun flókið mál
Birkir Sveinsson, mótastjóri KSÍ,
segir að afar flókið sé að eiga við
einhvers konar uppstokkun deild-
arinnar og að margar tillögur hafi
verið nefndar í því sambandi.
„Sumir hafa lagt til 6 liða deild,
en það er erfitt að sjá hverju það
myndi breyta. Þá yrðu það áfram 2-
3 neðstu liðin sem aðeins taka stig
hvert frá öðru. Það sama gildir ef
fyrirkomulagið er eins og Elísabet
leggur til, að deildinni sé skipt upp
eftir eina umferð.
Þá eru eitt eða tvö lið í efri hlut-
anum sem eru miklu veikari en
þau tvö efstu.”
Islandsmeistarar Vals að
skora eitt 90 marka sinna í
sumar Valsstúlkur töpuðu að-
eins einum leik i sumar meðan
FH-stúlkur unnu aðeins einn.
BRIDSSKÓLINN
Innritun
á haustönn
Bvriendanámskeið: Hefst 25. september og stendur yfir í 10
mánudagskvöld frá kl. 20-23.
Viltu læra brids? Á byrjendanámskeiði Bridsskólans er ekki gert ráð
fyrir neinni kunnáttu og ekki er nauðsynlegt að koma með „makker“.
Það er fólk á öllum aldri og af báðum kynjum sem sækir skólann.
Láttu slag standa og lærðu brids í góðum félagsskap.
Framhaldsnámskeið: Hefst 27. september og stendur yfir í 10
miðvikudagskvöld frá kl. 20-23.
Viltu verða betri spilari? Á framhaldsnámskeiði Bridsskólans gefst
þér gott tækifæri til að bæta við kunnáttuna. Þú lærir nútíma sagnir,
hvassa spilatækni og samvinnu við makker í vöminni. örugg og
skemmtileg leið til framfara.
Nánari upplýsingar og innritun
f síma 564 4247 milli kl. 13 og 18 virka daga.
Námskeiðin eru haldin í húsnæði Bridssambands fslands, Síðumúla 37, Reykjavík.
Sjá nánar á netlnu: Brídge.is (undir „fræðsla")
Stóru töpin skaðleg fyrir ungar stúlkur:
Stelpurnar orðnar
andlega gjaldþrota
„Þetta er það sem getur gerst þegar
svona ofboðslegur munur er á getu
liðanna í deildinni, þær hafa hrein-
lega verið andlega gjaldþrota og
ekki lagt í að taka við enn einum
skellinum,” segir Jóhann Ingi Gunn-
arsson íþróttasálfræðingur um fjar-
veru FH-stúlkna í leiknum gegn Val
um helgina.
„Þetta eru mikið til 14-15 ára
stelpur sem eru á miklu mótunar-
tímabili i sínu lífi og svona stór töp
fyrir svona ungar stelpur hvað eftir
annað getur verið gríðarlegt áfall
fyrir sjálfstraustið og sjálfsmyndina”
segir Jóhann. FH-liðið tapaði öllum
leikjum sínum nema einum í sumar
áður en þær mættu ekki í lokaleik
sinn á íslandsmótinu.
„Eðlilega verður svo fjölmiðlaum-
fjöllunin neikvæð í garð FH-stúlkn-
anna sem ekki mæta til leiks en við
verðum að reyna að setja okkur í
spor þessara stelpna.”
Jóhann bætir við að niðurstaða
mótsins hljóti að innihalda skilaboð
til KSl og íslenskrar kvennaknatt-
spyrnu um að fara vel í gegnum
hlutina og draga af þeim einhvern
lærdóm.