blaðið - 05.09.2006, Síða 34
42 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2006
blaöiö
Spólaö
til baka
Krísa á kvik-
myndahátíð
Ég fór í bíó á sunnudag á Penél-
ope eftir Pedro Almodóvar á
lceland Film Festival. Ég beið með
eftirvæntingu enda er myndin
að mati margra ein besta mynd •
snillingsins Pedro Almodóvar.
Það var þó eitthvert tækniklikk í
gangi því þegar myndin hófst var
enginn texti, en myndin er á spæn-
sku. Ofurskvísan Penélope Cruz,
sem leikur aðalhlutverkið, sagði
eitthvað ákaflega áhugavert við
samleikkonur sínar sem einungis
þeir sem spænskumælandi skildu.
Forvitnin óx hjá eftirvæntingar-
fullum bíógestum eins og mér og
þeir fóru að ókyrrast. Auðvitað
vildum við hin líka vita hvað hún
var að segja! Mér fannst eins og
hún væri að segja eitthvað ótrú-
lega mikilvægt, eins og reyndar
allt sem maður einhverra hluta
vegna skilur ekki eða fær ekki
að vita um. Nokkrir bíógestanna
urðu meira að segja svo óþreyju-
fullir og pirraðir að þeir fóru út
úr bíóinu og komu ekki aftur.
Eftir smástund var myndin stopp-
uð og gert örstutt hlé. Þegar mynd-
in, sem var annars vel gerð, þó
frekar hæg og mjög evrópsk, hófst
svo aftur og textinn fylgdi, voru all-
ir glaðir og ánægðir... eða það hélt
ég. Eftir augnablik tók ég nefni-
lega eftir því að textinn passaði
ekki alveg við það sem leikararnir
voru að segja, stundum kom text-
inn of seint og stundum kom hann
alls ekki. Hin fagra Penélope talaði
og talaði en svo kom kannski
bara helmingurinn af því sem hún
hafði sagt. Þetta skapaði ákaf-
lega skrítna stemningu í bíóinu.
Fólk hló í tveimur hollum, þeir
sem skildu spænsku og svo þeir
sem ekki skildu neitt.
Þar sem ég var í
seinni hópnum upp-
lifði ég mig eins og
hálfgerðan kjána
sem er aðeins of
seinn að fatta og
hlær þegar allir hin-
ir eru búnir að hlæja.
Þetta skyggði á upp-
lifun mína og
ég hreinlega
sofnaði und-
ir lokin. Krist-
in Hrefna
Að hverju leitar þú helst í fari karla?
Ég leita helst að fyndnum mönnum, þeir heilla mig mest.
Ég þarf samt ekki mikið að leita lengur því ég er búin að
finna mér einn sem heitir Guðmundur Steingrímsson. Það
sem skiptir mestu máli fyrir mig er húmor og það er hann
sem ég vil helst finna í fari karla.
Hvað er það sem fer mest í taugarnar á þér í sam-
bandi við karla?
Það er að þeir hafa hærri skítaþröskuld en konur. Það líð-
ur sem sagt lengra þangað til þeir taka eftir því að það er
drasl í kringum þá heldur en konur eða að það er skítugt í
kringum þá. Sem sagt hærri skítaþröskuldur en þetta á að
sjálfsögðu ekki við um manninn minn. Karlmenn fara samt
svona yfirhöfuð ekki mikið í taugarnar á mér, þeir eru frekar
skemmtilegir.
Ef þú fengir að vera kari í einn dag, hver myndir þú
vera og af hverju?
Ég mundi vilja vera Johnny Cash og upplifa þessa geðveiki
sem átti sér stað í kringum hann og í höfðinu á honum. Mér
finnst hann alveg magnaður en ég er nýbúin að sjá myndina
og vildi gjarnan prófa að vera hann í einn dag. Hann er ótrú-
lega margslunginn karakter sem heillar mig upp úr skónum.
Ef þú mættir breyta einhverju í heiminum, hverju
myndir þú breyta?
Ég myndi vilja frið á jörð eða eitthvað klassískt. Eða kannski
frekar að allar mæður gætu fætt og klætt börnin sín. Það er
mjög sorglegt að horfa upp á foreldra sem geta ekki alið upp
börnin sín vegna fjárskorts, það finnst mér hræðilegt.
Hvert er átrúnaðargoðið þitt?
Það er amma mín heitin og nafna, Alexía Pálsdóttir. Hún eign-
aðist 11 börn sem hún fæddi og klæddi með stakri prýði. Hún
var mikil hörkukona og er algjörlega átrúnaðargoðið mitt. Hún
bjó í Stykkishólmi og var ólétt nánast stanslaust í fjölmörg ár en
samt var alltaf matur á borðum og nóg handa öllum. Þegar hún
dó þá skildi hún eftir sig 34 barnabörn og 25 barnabarnabörn.
Mér finnst svo fallegt að geta ræktað greinina sína og skilið eft-
ir sig stóran ættboga og fjölmörg börn.
Hefur þú einhvern tíma svikið mikilvægt loforð?
Ég reyni að hafa það að leiðarljósi að lofa ekki upp í ermina á
mér og held því að ég hafi ekki svikið mikilvægt loforð, allavega
ekki svo mikilvægt að ég muni eftir því.
Hvað dreymir þig um?
Mig dreymir um að eiga stóra fjölskyldu með manninum mínum
og geta unnið að listinni. Ég óska þess að ég geti haldið áfram að
hlæja og að kærastinn minn hafi enn húmor fyrir mér eftir 50 ár
og að við getum þá enn hlegið saman.
Hvað er það fallegasta sem karl hefur gert fyrir þig?
Ég var dregin upp í sveit á afmælinu mínu og fékk afmælisgjöf
undir stjörnubjörtum himni sem var ótrúlega fallegt. Ég fékk
glæsilega gulleyrnalokka sem mér þykir mjög vænt um.
Hvað er á döfinni hjá þér?
Ég er á fullu með fyrirtækið mitt, Reykjavík Casting. Þessa dag-
ana erum við að gera auglýsingu með 200 manns sem eru öll alveg
kviknakin. Það er mjög skemmtilegt að fást við að ráða í hlutverk
og það er auðvitað frábær reynsla fyrir leikara að fá að vera hinum
megin við borðið og þegar maður sér auglýsingarnar í fjölmiðlum
fyllist maður stolti. Það gæti verið að við sem vorum í Pörupiltum
gerum aftur eitthvað skemmtilegt og hver veit nema Pörupiltar
fari á stúfana einhvern tíma í vetur.
tískan á götunni
Auður Ómarsdóttir 18 ára
Ég keypti buxurnar í Danmörku,
skóna á Akureyri og jakkann á Spáni.
Blái bolurinn er frá HM og ég keypti
þennan appelsínugula líka á 'Akur-
eyri.
Hákon Pálsson 21 árs
Ég er að vinna í G-star-búðinni og
ég er eiginlega í öllu þaðan. Bolurinn
og buxurnar eru allavega þaðan. Svo
er ég nú bara í Converse-skóm, gamla
góða leðurjakkanum mínum og hattur-
inn er frá Guðsteini.
Elzbieta Baranowska 19 ára
Buxurnar eru úr Retro, stigvélin úr
Spútnik, jakkinn úr All Saints, lopa-
peysan var prjónuð á mig og hlýrabol-
inn keypti ég í Sautján.
Þórir Sæmundsson 26 ára
Buxurnar eru norskar og ég keypti
skóna á Akureyri. Ég man ekkert hvar
ég keypti bolinn en jakkanum gleym-
di einhver þar sem ég vinn og ég hirti
hann bara.