blaðið - 06.09.2006, Blaðsíða 4

blaðið - 06.09.2006, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 2006 blaAiö INNLENT ÞJÓFNAÐUR Tölvum stolið Tilkynnt var um stuld á tölvu úr heimahúsi í Vesturbænum í Reykjavík um helgina. Annarri tölvu var stolið úr geymslu í borginni. BÖRN Kvenmannsnærbuxum stolið Sérkennilegur þjófnaður átti sér stað í Reykjavík um helgina en þá var kvenmanns- nærbuxum stolið úr sameiginlegu þvotta- húsi í fjölbýli. Þetta mun ekki vera í fyrsta sinn sem slíkt kemur uþþ í húsinu. r* ÖLVUNARAKSTUR Fullur unglingur á bíl Fimmtán ára unglingur var tekinn undir stýri á rúntinum á bíl móður sinnar um helgina. Við nánari eftirgrennslan kom í Ijós að pilturinn var einnig ölvaður sem hjálpaði ekki til. Níu manns voru teknir í Reykjavík um helgina grunaðir um ölvunarakstur og tveir fyrir að aka undir áhrifum lyfja. Þeir lentu báðir í umferðaróhöppum. Afganistan: Drápu sextíu talibana Hátt í sextíu talibanar féllií í stórskotaliðs- og loftárásum her- manna NATO í suðurhluta Afan- istans í gær að sögn talsmanns NATO i landinu. Fjórir dagar eru liðnir frá því að NATO hóf umsvifamiklar hernaðaraðgerðir í Panjwayi- og Kandahar-héruðum í landinu. Unglingsstúlkur: Ógnuðu lögreglunni mbl.is Tólf og þrettán ára stúlkur létu ófriðlega í fjölbýl- ishúsi í borginni. Á leiðinni á lögrelustöð hótuðu þær lögreglu- mönnum öllu illu og viðhöfðu svívirðingar. Nú líka með ALOE VERA Falleg - sterk - náttúruleg Vströito Suöurtandsbraut 10 Sfmí 533 5800 www^imnet-K/strond Fíkniefnainnflutningur: íslendingar oftast teknir í Leifsstöð ■ Algengt að efnin séu í nærbuxum viðkomandi ■ Flestir íslendingar, Danir eða Frakkar Eftir Val Grettisson og Atla Isleifsson valur@bladid.net/atlii@bladid.net Mikið magn fíkniefna hefur verið flutt til landsins það sem af er ári, bæði með Nor- rænu og um Keflavík- urflugvöll. Um fjöru- tíu tilfelli hafa komið upp á Keflavíkur- flugvelli, en sam- kvæmt tölum frá Tollgæsl- í unni á Kefla- víkurflúgvelli eru Islendingar rétt rúmlega helmingur þeirra sem flytja fíkniefnin til landsins. Þeir sem hafa reynt að smygla efnum til landsins hafa verið af ýmsum þjóðernum, en að íslendingum frá- töldum hafa Danir, Frakkar og Lit- háar oftast komið við sögu. Á Keflavíkurflugvelli hafa karlar reynt að smygla efnunum inn í rúm- lega 75 prósent tilfella, en í 25 prósent tilfella hafa það verið konur. Flestir koma með flugvélum frá Kaup- mannahöfn, Amsterdam og París. í helmingi tilfella hafa efnin verið á viðkomandi svo sem í vasa, skóm eða í nærbuxum, í fjórðungi tilfella í far- angri, en í fimmtungi tilfella hefur efnunum verið smyglað innvortis. „Örvandi fíkniefnaneysla hefur stóraukist,“ segir Þórarinn Tyr- fingsson, yfirlæknir á Vogi, en inn- flutningur á kókaini og amfetamíni hefur stóraukist á þessu ári miðað við það magn sem tollgæslan á Keflavíkurflugvelli og Seyðisfirði hafa lagthald á. Samkvæmt Þórarni hefur starfsfólk Vogs fundið fyrir því að árið hefur verið óvenjuerfitt. Hann tekur þó fram að engar tölur séu komnar sem styðji þá tilfinn- ingu. Hann segir að breytingar á neyslumynstri fíkla hafi ekki breyst mikið, né þeir hópar sem sækja sér aðstoð. Stærsti hópurinn er á milli tvítugs og þrítugs og er það í raun gríðarlegt vandamál að mati Þórar- ins. „Þetta er þverskurður af þjóðfé- laginu sem sækir sér aðstoð.“ FÍKNIEFNI STÆRSTU MÁLIN: ■ 3. april Þrír Islendingar voru hnepptir í gæsluvaröhald fyrir að smygla fimmtán kíló- um af amfetamíni og tíu kílóum af hassi. Mennirnir eru grunaöir um aö hafa falið efn- in í BMW-bifreið sem kom frá Belgíu. Þeir voru handteknir þegar þeir vitjuöu efnanna á fslandi. Öllum mönnunum var sleppt úr gæsluvarðhaldi í síöustu viku. ■ 26. febrúar Lithái var handtekinn meö tvær grunsamlegar vínflöskur. Við efnagreiningu kemur í Ijós aö um amfetam- ínbasa er aö ræöa. Fullunnið er efniö 17 kiló og því mesta magnið sem reynt hefur verið að smygla í gegnum Leifsstöð á árinu. Hann var dæmdur i tveggja og hálfs árs fangelsi. ■ 4. febrúar Þriðja stærsta málið á árinu hingað til. Lithái reyndi að smygla inn amfetamínbasa sem gat numið 13 kílóum fullunninn. Einnig var Lithái búsettur á is- landi handtekinn vegna málsins. Þeir voru dæmdir í tveggja og hálfs árs fangeisi. ■ 6. júlí Aftur var Lithái handtekinn þegar hann reyndi að smygla 12 kílóum af amfetamíni með Norrænu í sumar. Tveir menn voru hnepptir í gæsluvarðhald og bíða þeir dóms. ■ 31. ágúst f lok síðasta mánaðar var Lithái handtekinn þegar hann ætlaði að smygla 10 kílóum af amfetamíni með Nor- rænu. Maðurinn er í gæsluvarðhaldi og er málið í rannsókn. ■ 3. febrúar fslendingur var tekinn í Leifs- stöð með fjögur kíló af amfetamini. Efnin voru falin í fölskum botni á tösku hans. Hann var hnepptur í gæsluvarðhald en ekki liggur fyrir hvort búið sé að dæma hann. ■ 8. mars (slendingur er handtekinn þeg- ar hann kemur með Norrænu frá Danmörku með 4 kíló af hassi og eitt kíló af amfetam- íni. Hann var hnepptur í gæsluvarðhald og var svo dæmdur í átta mánaða fangelsi. ■ 7. mars Pólverji tekinn með 3 kíló af hassi og 50 grömm af kókaíni. Hann var hnepptur í gæsluvarðhald. Málið er í rannsókn og mun hafa verið reynt að finna tengsl mannsins við íbúa hér á landi. ■ 9. ágúst Islensk kona var handtekin í Leifsstöð þegar hún freistaöist til þess að smygla tveimur kílóum af kókaini inn í land- ið. Hún faldi efnið í farangri sínum og hefur hún verið hneppt í gæsluvarðhald. ■ 26. mars Islendingur var tekinn í Leifs- stöð með tæplega 700 grömm af kókaíni sem hann faldi í tölvuturnl. Maður var hnepptur í gæsluvarðhald. MEÐLAGSGREIÐENDUR Meðlagsgreiðendur, vinsam- legast gerið skil hið fyrsta og forðist vexti og kostnað INNHEIMTUSTOFNUN SVEITARFELAGA lagmúla 9 • 108 Reykjovík • 530372 0229 • Bonki: 0111-26-504700 S: 590-7100 • fox: 590 70229 • www.medlag.is fax: 590-7101 Reyndasti þingmaður snýr sér að öðru: Halldór hættir á Alþingi Halldór Ásgrfmsson, fýrrverandi forsætisráðherra og 7. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, afsal- aði sér þingmennsku með bréfi til forseta Alþingis í gær. „Með bréfi þessu afsala ég mér þing- mennsku frá og með deginum í dag að telja. Síðan ég var fýrst kjörinn á Alþingi sumarið 1974 hef ég átt gott samstarf við íjölda fólks á vettvangi þingsins. Ég kveð Alþingi því með söknuði en er jafnframt afar þakk- látur öllu því fólki sem ég hef haft tækifæri til að kynnast og starfa með. Ég færi núverandi alþingismönnum og starfsfólki Alþingis sérstakar þakkir fyrir gott og ánægjulegt sam- starf,“ segir í bréfi Halldórs. Sæti Halldórs Ásgrimssonar á Al- þingi tekur Sæunn Stefánsdóttir, ný- kjörinn ritari Framsóknarflokksins. Hafldór afhendir Sólveigu Péturs- dóttur, forseta þingsins, bréfiö Halldór var með mesta þingreysnlu.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.