blaðið - 06.09.2006, Blaðsíða 24
32 MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 2006
blaðið
_ _ \f%
íþrottir
ithrnttir@hlaHid nnt
Vildi systur Zidane
Materazzi hefur loksins sagt frá þvi hvaö hann sagöi viö Zidane sem varð til þess að hann skallaði
Materazzi í bringuna í úrslitaleik HM i sumar. „Ég hafði togað í peysuna hans í sókn þeirra á undan
og Zidane segir við mig að ef ég vildi fá skyrtuna hans gæti hann gefið mér hana eftir leikinn. Ég
svaraði að ég vildi heldur fá systur hans,” sagði Materazzi við Gazzetta dello sport, en hann sagð-
ist ekki hafa haft hugmynd um að Zidane ætti systur fyrr en eftir að hann var skallaður i bringuna.
Skeytin inn
Carlos Tevez og Javier
Mascherano eru báðir
komnir til Upton Park en
þeir gerðu hvor um sig fjögurra
ára samning við West Ham.
Tevez sagði á blaðamannafundi
að aðalástæðan fyrir því að West
Ham hafi orðið fyrir valinu en
ekki félög eins og Real Madrid
og Arsenal væri sú að West Ham
hefði sýnt sér mestan áhuga og
hefði boðið mjög rausnarlega.
Mascherano sagði að það hefði
verið æskudraumurinn að spila
á Englandi og að skemmtilegast
væri að spila þar sem manni er
best tekið, því hafi hann valið
West Ham. Mascherano sagði
að ein af ástæðunum fyrir því
að hann hafi ekki valið Manc-
hester United hafi verið að Juan
Veron, sem spilaði eitt tímabil
með Manchester, réð honum frá
því, en eins og kunnugt er náði
Veron sér _ aldrei
á strik
með
rauðu
djöfl-
unum.
Skot halda áfram að ganga
á milli Williams Gallas og
stjórnar Chelsea. Forráða-
menn Chelsea sendu frá sér yfir-
lýsingu í fyrradag um að Gallas
hefði hótað að skora sjálfsmark
yrði hann valinn í lið Chelsea,
en hann setti mikinn þrýsting
á forráðamenn Chelsea um
að komast frá félaginu.
Gallas svaraði því til
við fjölmiðla í gær að
hann væri hissa og
sleginn yfir yfirlýs- .
ingum Chelsea sem |
hann sagði tóman
þvætting.„Chels-
ea á kannski
fullt af pening-
um, en skortir
allan klassa,”
sagði Gallas.
Steven Gerrard hefur átt tvo
frábæra leiki með landslið-
inu síðan David Beckham
var settur út í kuldann af Steve
McLaren þjálfara. Steven Gerr-
ard hefur leikið leikina
tvo á hægri kantinum
og sagði Peter Crouch,
liðsfélagi Gerrards
með Liverpool og
\ í landsliðinu, að
Steven Gerrard
væri besti
leikmaður
í heimi, og
*■ það sem
ógnvekjandi
væri, að
hann ætti
eftir að bæta
sig enn meira.
Vasa
línan
Nú líka með
ALOE VERA
Morten Olsen landsliðsþjálfari Dana býst við erfiðum leik í kvöld:
íslendingar leggja mest
kapp á að vinna Dani
■ íslendingar með betra lið en fyrir fimm árum ■ Mega illa við spjöldum og meiðslum
Annar leikur Islendinga í und-
ankeppni Evrópumóts landsliða
2008 fer fram í kvöld þegar ís-
lendingar taka á móti Dönum á
Laugardalsvelli.
Thomas Gravesen sagðist í sam-
tali við Blaðið búast við hröðum og
föstum leik í kvöld. „Það eru miklar
breytingar á íslenska liðinu frá því
við mættumst á Parken fyrir fimm
árum. Flestir íslensku leikmann-
anna spila nú í toppdeildum í Evrópu.”
Gravesen segir það jafnframt út úr
kortinu að nota leikinn gegn Islend-
ingum fyrir fimm árum sem viðmið
en í þeim leik sá íslenska liðið vart
til sólar og tapaði 6-0. „Fyrir fimm
árum þegar liðin mættust í und-
ankeppni HM áttu Islendingar
engan möguleika á að kom-
ast upp úr riðlinum svo það
var til einskis að vinna fyrir
þá. Nú er allt annað uppi á
teningnum, íslendingar eru
með nýtt, samheldið lið með
mörgum sterkum leik-
mönnum innanborðs
og eru fullir sjálfs
trausts eftir góðan
sigur á Norður-
írum um síðustu
helgi.”
Svíum, Dönum og Spánverjum.
„Eins og íslenska liðið verður skipað
á morgun eru þeir með sterkt lið og
verða mjög erfiðir við að eiga. Spurn-
ingin fyrir íslendinga þegar fram
í keppnina sækir er sú hvort þeim
takist að halda leikmönnum heilum
og frá leikbönnum því ef þeir ætla
að ná árangri mega þeir illa við
meiðslum og spjaldavandræðum,”
sagði Gravesen.
íslendingar Ifk-
legir til árangurs
Gravesen segist
meta íslenska liðið líklegt
til árangurs í riðlinum og
það geti hæglega blandað
sér í baráttuna um sæti
upp úr riðlinum ásamt
Leggja mest kapp á að vinna okkur
Morten Olsen þjálfari Dana sagð-
ist í samtali við Blaðið búast við erf-
iðum leik í kvöld. „Þetta er fyrsti
leikur okkar í keppninni, Islend-
ingar hafa þegar innbyrt góðan sigur
á útivelli og koma í leikinn fullir
sjálfstrausts,” sagði Olsen.
„Það er alltaf mjög sérstakt and-
rúmsloft í leikjum Dana og íslend-
inga,” segir Olsen og bætir við að
þetta sé sá leikur í riðlinum sem
íslendingar leggi hvað mest
kapp á að vinna. Morten
Olsen vildi ekkert gefa
upp um leikaðferð
danska liðsins í kvöld
en sagði að líklega
myndu verða breyt-
ingar á leikaðferð
liðsins frá síðasta
leik því Danir
væru nú með full-
skipaðliðsemþeir
voru ekki með í
leiknum gegn
Portúgölum
um síðustu
helgi.
Morten Olsen, landsliðsþjálfari
Dana Morten Olsen segir Islendinga
leggja mest kapp á að vinna Dani
Aðspurður um hver styrkleiki
danska liðsins væri svaraði Olsen
að það skipti ekki máli hvað honum
fyndist heldur hvað íslenska þjálfar-
anum fyndist og vísaði til skáklist-
arinnar í því sambandi.
Höfum aldrei unnið Dani
íslendingar og Danir hafa ást
við nítján sinnum, 14 sinnum hafa
Danir farið með sigur af hólmi,
fimm sinnum hefur orðið jafntefli
en aldrei hefur okkur tekist að berja
á Baunanum í knattspyrnu. I leikj-
unum 19 hafa íslendingar skorað
13 mörk en fengið á sig 63. Síðast
áttust íslendingar og Danir við í
undankeppni HM 2002 þar sem Is-
lendingar töpuðu 6:0 í Parken. Það
Thomas Gravesen, leikmaður
danska liðsins og Glasgow Celtic
Segir lið fslendinga mun betra en fyrir
fimm árum
var jafnframt kveðjuleikur Eyjólfs
Sverrissonar, fyrrum landsliðsfyrir-
liða og núverandi þjálfara íslenska
liðsins, svo óhætt er að segja að Eyj-
ólfur eigi harma að hefna.
Uppselt er á leikinn sem
verður sýndur í sjónvarpi allra
landsmanna.
Helgi Númason skoraði í 14-2 tapi íslendinga á Parken
Ekki sami sóknarbragur og 1967
„Já, þú ert að tala um jafnteflisleik-
inn,” svarar Helgi Númason, þegar
hann er beðinn um að rifja upp 14-2
tapið gegn Dönum á Parken 1967, en
hann skoraði annað mark íslands.
„Málið var náttúrlega að þetta
var fyrsti leikur íslendinga sem var
sýndur í sjónvarpi og átti að spila
sóknarleik, með þessum árangri. Ég
gerði fyrsta markið í seinni hálfleik
og minnkaði muninn í 6-1. Það var
þannig að ég komst inn í sendingu
og þar með einn inn fyrir og klobb-
aði markmanninn. Svo voru auð-
vitað margir spaugarar í þessum
hópi sem voru ekkert að bölsótast
yfir því þótt við værum að tapa
svona stórt sem fullyrtu að nú væru
Danirnir uppgefnir og við myndum
raða á þá mörkunum,” segir Helgi.
„Seinna markið var mjög spes,
en við Hemmi vorum búnir að
gera samning eftir níunda markið
hjá Dönunum, en við vorum tveir
frammi, um að ég hlypi inn fyrir
vörnina og hann sendi á mig og
ég kæmist þar með í gott færi. Það
gekk allt eftir nema að Hemmi
sendi ekki boltann heldur óð upp
völlinn sjálfur og skaut svolítið fyrir
utan teig sem endaði með glæsilegu
marki,” rifjar Helgi upp.
Helgi spáir 0-0 í kvöld. „Það
verður ekki sami sóknarbragur á lið-
inu og á Parken um árið, og marka-
laust jafntefli væri ákjósanlegt.”
S \ 1
A L 0 C VtflA \ ,
Vaseline
/>0CKll
Vaseline
PtTROltUM
Jlttv
Helgi Númason Klobbaöi markmann Dana í fyrsta sjónvarpsleik Islendinga.
Blaöið/Frikki