blaðið - 06.09.2006, Síða 11

blaðið - 06.09.2006, Síða 11
blaðið MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 2006 11 Strætó 1 Arbænum: Fáar ferðir og fullir vagnar Ákvörðun um að hefja akstur á leið S5 um Árbæjarhverfið á ný liggur hjá borgaryfirvöldum og þá verður aukfjárveiting að koma til, segir aðstoðarframkvæmdastjóri Strætó bs. fbúar í hverfinu hafa stofnað undirbúningshóp til að efna til aðgerða gegn niðurskurði á þjón- ustu Strætó. Tala þeir um ófremdar- ástand í almenningssamgöngum og krefjast þess að leið S5 verði tekin upp að nýju. „Strætó er ekkert að vanbúnaði að hefja akstur á leið S5 að nýju en end- anleg ákvörðun liggur hjá borgaryf- irvöldum," segir Pétur U. Fenger, að- stoðarframkvæmdastjóri Strætó bs. „Þeirri ákvörðun þurfa þó að fylgja fjármunir.“ Strætó ákvað síðastliðið vor að leggja niður hraðleið S5 um Árbæj- arhverfið og fækka ferðum á leið 19 i kjölfar mikils hallareksturs á síðasta ári. Ákvörðuninni hefur verið harðlega mótmælt af hálfu íbúa Árbæjarhverfis sem segja hana hafa í för með sér mikla þjónustu- skerðingu fyrir hverfið. Þeir hafa nú stofnað sérstakan undirbúningshóp til að mótmæla niðurskurðinum og boðað til opinna funda um málið. I yfirlýsingu sem hópurinn sendi frá sér í gær kemur fram að ófremd- arástand ríki á háannatíma og vagnar yfirleitt yfirfullir. Krefjast þeir þess að ferðum verði fjölgað og hraðleið S5 tekin upp að nýju til að mæta þessu ástandi. Pétur segir að þegar ljóst varð að grípa yrði til niðurskurðar vegna hallareksturs hafi niðurfelling leiðar S5 verið besti kosturinn. „Fyrir- tækið var í þeirri stöðu að það þurfti að bregðast við því. Þarna sáu menn leið til að skerða þjónustu eins lítið og mögulegt er.“ Pétur bendir ennfremur á að um afar litla þjónustuskerðingu sé að Árbæingar reiðir Vilja fleiri strætisvagna ræða og í raun hafi aðeins þrjár bið- tíðni eftir að háannatíma lýkur. Svo stöðvar verið felldar niður. „Leið S5 er samræmdum við aðrar ferðir og fjöl- svipuð og leið S6 þannig að þegar við guðum bílum á háannatíma þannig tókum út S5 þá vorum við í reynd bara að í raun ætti heildarferðatími frá Ár- að fella út þrjár biðstöðvar og draga úr bænum í miðbæinn ekki að lengjast.“ Eldri borgarar: Tvö hundruð íbúðir byggðar mbl.is 1 ræðu Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar borgarstjóra á fyrsta fundi borgarstjórnar eftir sumarfrí í gær, kom meðal annars fram að Reykjavíkur- borg stefnir að þvi að undirrita fljótlega viljayfirlýsingu um uppbyggingu um það bil 200 þjónustu- og öryggisíbúða fyrir eldri borgara. Ibúðirnar verða tengdar þjón- ustukjörnum á tveimur stöðum í borginni, og er verið að kanna rækilega byggingu annars vegar um 100 íbúða við Spöngina í Grafarvogi og hins vegar um 100 íbúða við Sléttuveg. Noregur: Komið upp um mansal mbl.is Lögregla í Tékklandi hefur handtekið fimmtán sem eru grunaðir um mansal til Noregs. Mennirnir voru handteknir við landamæri Þýskalands, að sögn talsmanns lögreglunnar, Blanka Kosinova. Segir Kos- inova að þeir séu grunaðir um smygl á ungum konum frá norðausturhluta Tékklands og Slóvakíu til Noregs þar sem þær eru seldar í vændi i Ósló. Er talið að yfir eitt hundrað konur hafi seldar í vændi frá þessum löndum til Noregs undanfarið ár. Átta eru í haldi lögreglu og eiga þeir yfir höfði sér allt að fimmtán ára fangelsi verði þeir fundnir sekir. Sjö hefur verið sleppt. Líbanon: Herkví aflétt Kofi Annan, aðalritari Sam- einuðu þjóðanna, sagði í gær að hann gerði ráð fyrir að ísraelar myndu aflétta herkvi á Líbanon fyrir morgundaginn. Israelar settu herkvína á landið í kjölfar þess að til átaka kom á milli þeirra og vígamanna Hizballah til þess að korna í veg fyrir að þeim síðarnefndu bærust vopn og birgðir frá Sýrlandi og íran. Njótum þess að borða hollt! Trefjaríkar Úr heilu korni @ Heilsukolvetni (Pre-biotic) # Stökkar flögur # Minni sykur # Fitulitlar Weetaflakes eru nýjar heilkornaflögur frá Weetabix fyrir alla fjölskylduna. Gómsætar, léttar og stökkar flögur og þær fyrstu sem innihalda heilsukolvetni (Pre-biotic) sem veitir magastarfseminni nauösynlegan stuöning.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.