blaðið - 06.09.2006, Side 12

blaðið - 06.09.2006, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 2006 blaöiö HVAÐ MANSTU? 1. Hver hringdi fyrstur manna út fyrir jörðina? 2. Hvað hét bílategundin Jaguar fram til 1935? 3. Hver er framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar? 4. A4 örkina þekkja allir, en hversu stór er AO örkin? 5. Á Valhúsahæðinni er verið að krossfesta mann. Og fólkið kaupir sér far með strætisvagninum til þess að horfa á hann. Með hvaða leið? Svör: cf _ 5 II w r co S F : - £ ie ■ w ö) EE “■> .co : «2 i 52 3 S œ ' GENGI GJALDMIÐLA KAUP SALA Bandarikjadalur 68,84 69,16 Sterlingspund 130,78 131,42 Dönsk króna 11,835 11,905 Norsk króna 10,861 10,925 Sænsk króna 9,478 9,534 Evra 88,3 88,8 Könnun VR: Meirihluti nýt- ur hlunninda Um þrír af hverjum fjórum félagsmönnum VR njóta hlunn- inda af einhverju tagi sem hluta af launakjörum. Það er mikil aukning frá árinu 2004 þegar 43 prósent sögðust fá hlunn- indi á móti 73 prósentum í ár. Fleiri karlar fá hlunnindi en konur eða átta af hverjum tíu en tæplega sjö af hverjum tíu konum. Algengustu hlunnindin eru styrkir til líkamsræktar og greiddir símreikningar. Gistinætur á hótelum: Mikil aukning milli ára Gistinóttum á hótelum í júlí fjölgaði úr 158 þúsund í 176 þús- und milli ára, sem er rúmlega ell- efu prósenta aukning. í frétt Hag- stofunnar segir að gistinóttum hafi fjölgað í öllum landshlutum, en að aukningin hafi verið mest á samanlögðu svæði Suður- nesja, Vesturlands og Vestfjarða. Fjölgun gistinátta á hótelum í júlí árið 2006 má bæði rekja til íslendinga og útlendinga, en gistinóttum útlendinga fjölgaði um 12 prósent og Islendinga Portúgal: Hitabylgja í níu héruðum mbl.is Yfirvöld í Portúgal hafa lýst yfir næsthæsta viðbúnað- arstigi í níu héruðum af átján vegna hitabylgju. Spáð var hita frá 34 til 4i°C þar í gær. Heilbrigðisyfirvöld hafa ráðlagt fólki að drekka mikið af vatni, vera innandyra og í skugga. Auk þess er fólk beðið um að fylgjast með heilsu ætt- ingja sinna og nágranna. I sjö öðrum héruðum er gult viðbúnaðarstig, það næstvæg- asta. í tveimur héruðum er ekki búist við svo miklum hita að hætta geti stafað af, í Aveiro og Faro. í ágúst 2003 létust um 2.000 af völdum hita með einum eða öðrum hætti í Portúgal. I kjölfar þeirrar hitabylgju var þessu við- vörunarkerfi komið á. Vinnuhópur leitar úrræöa til að bæta eftirlit með erlendum starfsmönnum: Verður að breyta lögum ■ Vinnumálastofnun ræður ekki við málaflokkinn ■ Verkalýðshreyfingin vili taka ábyrgðina Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net „Atvinnurekendur geta leikið lausum hala og þúsundir erlendra starfsmanna eru fyrir utan kerfið. Kerfið er steinrunnið og það hreyf- ist ekki í þessum málum,” segir Kristján Gunnarsson, formaður Starfsgreinasambandsins. I ljós hefur komið að ýmis vand- kvæði eru á eftirliti með erlendu vinnuafli og svört atvinnustarfsemi er víðtæk. Vinnuhópur á vegum ráðuneyta, skattayfirvalda, Þjóð- skrár, Vinnumálastofnunar og verkalýðshreyfingarinnar vinnur nú hörðum höndum að því að sam- ræma skráningar og eftirlit með erlendu starfsfólki. Kristján hefur af því áhyggjur að málaflokkurinn hafi ekki verið settur undir rétta stofnun. „Veikleikinn er sá að setja mála- flokkinn undir Vinnumálastofnun sem fyrir var að kafna í verkefnum. Vænlegast er að mínu mati að vista málaflokkinn annars staðar og verkalýðshreyfingin hefur til dæmis boðist til að axla frekari ábyrgð. Til þess þarf að auka lagaheimildir verkalýðsfélaganna og auðvelda þeim aðgang að öllum málsgögnum,” segir Kristján. Abyrgð atvinnurekenda Kristján segir mikilvægt að skerpa þurfi á lögum um hver ábyrgð atvinnurekenda sé gagnvart erlendum starfsmönnum. „Okkar aðalvonbrigði eru þau að ríkisvaldið hefur ekki með skýrum hætti varpað ábyrgðinni á notenda- fyrirtækin. Þau fyrirtæki sem nýta sér starfskrafta erlends vinnuafls eiga klárlega að bera ótvíræða ábyrgð á því. Það er aðeins búið að skerpa á þessu en taka þarf ábyrgð- ina mjög skýrt fram í lögum,” segir NOKKRAR BREYTINGATILLÖGUR Færa malaflokkinn annaö Gera ábyrgö vinnuveitenda ótvíræða Stimpluð ferilskrá fyrirtækja fylgi tilboöum Starfsmenn beri skllríki á vinnustað Eftirlit með útlendingum Vinnu- hópur er að fara yfir eftirlit með erlendu vinnuafli til þess að reyna að stoppa upp i götin í ferlinu. Veikleiki að setja raála- flokkinn undir Vinnumála- stofnun. Kristján Gunnarsson Formaður Starfs- greinasambandsins Kristján. „Stór hluti arðsins af vinnu útlendinganna fer framhjá kerfinu og starfsfólkið sjálft verður af öllum launa- og félagslegum rétt- indum á meðan ekki er haldið betur utan um hlutina.” Einfalda þarf ferlið Þorbjörn Guðmundsson, for- maður Samiðnar, segir vinnuhóp vera að fara yfir þessi mál til að stoppa upp í götin í eftirlitinu. „Það er ljóst að einfalda verður fer- ilinn þannig að nýtist öllum þeim sem þurfa á að halda,” segir hann. Það er ljóst að einfalda verður skrán- ingarferilinn. Porbjörn Guðmundsson Formaður Samiðnar „Helsti bresturinn er hjá Þjóðskrá og einnig skráningarnar hjá Vinnu- málastofnun. Það verður farið yfir öll þessi atriði sem þið hafið fjallað » um. Þorbjörn telur tvö mikilvæg atriði koma inn til skoðunar og vonandi verði þau tekin inn f lög á komandi þingi- „Við teljum mikilvægt að skylda verktakafyrirtæki til að leggja fram ferilskrá þegar tilboð eru gerð. Þannig verði sú skrá að vera við- urkennd af Vinnumálastofnun og skattayfirvöldum þannig að ekkert óhreint geti leynst í pokahorninu,” segir Þorbjörn. „Annar liður f eftirliti með út- lendu verkafólki er að skylda aðila til að bera persónuskilríki á vinnustað. Á þeim skilríkjum komi fram nafn, vinnuveitandi og kennitala þannig að til þess að upp- fylla skilyrðin þurfi að tilkynna með eðlilegum hætti viðkomandi starfskraft.” Nauðsynleg hjálpartæki Kristján telur þær hugmyndir sem Þorbjörn nefnir vera þess eðlis að hjálpa til við eftirlit með fjölda erlendra verkamann og svartri atvinnustarfsemi. „Auðvitað eru persónuskilríkin dálítið kommúnísk aðferð en gæti virkað til að byrja með á meðan þessum málum er komið í eðlilegt horf,” segir Kristján að lokum. Landsvirkjun býst ekki við bakreikningum frá Impregilo: Bara gerist eitthvað stórt „Við gerum ekki ráð fyrir neinum frekari bakreikningum frá Impregilo, nema eitthvað stórt komi upp á,“ segir Sigurður St. Arnalds, verkfræðingur hjá Landsvirkjun. ,Við verðum að vóna það besta með það, en f nýju arðsemismati vegna Kárahnjúkavirkjunar höfum við reiknað með þann kostnað sem við teljum að orðinn sé af töfum framkvæmdanna." Landsvirkjun birti í síðustu viku nýtt arðsemismat vegna Kárahnjúkavirkjunar. Sigurður segir að í kostnaðaráætlunum allra framkvæmda geri menn ráð fyrir verkframkvæmdum, auk ófyrirséðs kostnaðar vegna erfiðleika sem menn vita ekki hvort upp komi eður ei. „Um tíu prósentum er bætt ofan á allar áætlanir, en það er svolítið misjafnt eftir verkþáttum. Þær breytingar sem þegar hafa orðið á framkvæmdinni, stíflunum og jarðgöngunum, hafa verið greiddar af þessu fé sem heitir ófyrirséður kostnaður." Ómar R. Valdimarsson, upplýsingafulltrúi Impregilo, vildi ekki upplýsa hvort fyrirtækið færi fram á greiðslur vegna ófyrirséðs kostnaðar. Það væri trúnaðarmál milli Impregilo og Landsvirkjunar. Að sögn Sigurðar þolir Lands- virkjun ekki fleiri umtalsverðar breytingar á áætlunum því þá verði farið fram úr kostnaðaráætlun. ,Enn sem komið er erum við hins vegar á réttu róli og við erum farin að sjá fyrir endann á mörgum framkvæmdunum. Vegna þessa eigum við ekki von á neinum frekari óvæntum eða ófyrirséðum kostnaði í kringum stífluna.“ Sigurður segir eina möguleikann á frekari ófyrirséðum kostnaði tengjast þeim jarðgöngum sem eftir á að bora. „Búið er að semja um kaup á öllum búnaði og öllu sem nöfnum tjáir að nefna. Við erum hins vegar búin að gera ráð fyrir kostnaði við alla þá verkþætti sem búið er að framkvæma, þar með talið hina margumræddu stóru stíflu." Lögreglumaður: Smyglaði munntóbaki Fyrrverandi lögreglumaður var dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur á mánudaginn fyrir tilraun til þess að smygla munn- tóbaki til Islands. Afbrotið átti sér stað i desember á síðasta ári. Hann reyndi að smygla 720 grömmum af munntóbaki í 30 dósum í gegnum Leifsstöð en þá vann hann sem lögreglumaður við embætti lögreglustjórans á Kefla- víkurflugvelli. Hann þarf að borga 7500 króna sekt.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.