blaðið - 20.09.2006, Page 26
3 4 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2006
blaðið
•v*
nevtendur
neytendur@bladid.net
Komdu skipulagi á fjármálin
Náðu góðri yfirsýn á fjármálin, settu þér markmið um sparnað og ekki
eyða um efni fram. Það er dýrt að vera í vanskilum.
Vörurfrá Himneskri hollustu
Fyrirtækið hefur fengið lífræna
vottun frá vottunarstofunni Túni.
Himnesk holl-
usta fær vottun
Fyrirtækið Himnesk hollusta
hefur fengið lífræna vottunar-
stimpilinn frá vottunarstofunni
Túni. Vottunin nær bæði til
fyrirtækisins og lífrænnar vöru-
línu þess. Þetta er í fyrsta sinn
sem íslensk vörulína hlýtur
slíka vottun en tekið skal fram
að framleiðendur varanna eru
frá ýmsum löndum.
Himnesk hollusta hefur með-
al annars sérhæft sig í innflutn-
ingi á lífrænum matvörum og
hafa rúmlega 50 vörutegundir
fengið lífræna vottun frá Túni.
Vörurnar sem um ræðir eru af
ýmsum toga svo sem kjúklinga-
baunir, kakóduft, hnetusmjör,
eplamauk, tómatmauk, agave-
síróp og fleira.
Hér á landi hafa 55 aðilar feng-
ið vottun frá Túni fyrir fram-
leiðslu, dreifingu eða vinnslu
lífrænna afurða.
Ungt fólk leitar i auknum mæli aðstoðar vegna greiðsluerfiðleika
Hefur lífið í skuldaklafa
Frá stofnun Ráðgjafastofu um
fjármál heimilanna árið 1996 hafa
verið afgreiddar um 7000 umsókn-
ir um ráðgjöf að sögn Ástu Sigrún-
ar Helgadóttur, forstöðumanns.
„Það má segja að það hafi orðið ákveð-
in fækkun eftir að bankarnir fóru
út á íbúðalánamarkaðinn. Þá fékk
ákveðinn hópur lausn sinna mála
að minnsta kosti tímabundið. Mað-
ur vill alls ekki vera svartsýnn en
vonandi er það til lengri tima. Nú er
náttúrlega mjög gott atvinnuástand
en ef það breytist eitthvað í þeim
efnum þá gæti komið upp hættuleg
staða,“ segir Ásta Sigrún.
Ungt fólk í erfiðleikum
Ásta segir að ungt fólk virðist i
auknum mæli eiga í erfiðleikum.
„Sá aldurshópur sem hefur verið
stærstur meðal okkar viðskiptavina
hefur verið milli þrítugs og fertugs
en í fyrra var stærsti hópurinn milli
tvítugs og þrítugs. Það er í raun og
veru mjög ógnvekjandi og við finn-
um fyrir því að unga fólkið er að
koma mjög skuldsett til okkar. Það
er í raun að hefja lífið í skuldaklafa
sem er vægast sagt mjög slæmt.“
Ásta segir að margar ástæður geti
legið að baki þessari þróun svo sem
gylliboð banka og aukið aðgengi
að lánsfé. „Þetta tengist náttúrlega
líka frelsi á markaðnum og þá reyn-
ir meira á ábyrgð einstaklinganna,"
segir Ásta og bætir við að margir
geri sér ekki grein fyrir hættunni.
Fræðsla umfjármál
„Við höfum líka lagt áherslu á að
auka fræðsluna meðal unga fólksins.
Við höfum meðal annars farið í 10.
bekki. Það er mjög áhugavert og gef-
andi en jafnframt hefur maður oft
verið undrandi á því hvað krakkarn-
ir vita í raun og veru lítið um fjármál.
Krakkarnir halda oft að þetta redd-
ist en við segjum þeim að við hittum
fólk sem á í verulegum greiðsluerfið-
leikum sem er alveg skelfilegt. Þetta
reynir bæði á andlegt og líkamlegt
þrek fólks."
Ásta telur að forvarnir séu fólgnar
í aukinni fræðslu um þessi mál og
hún ætti að vera hluti af námskrá
grunnskóla.
„Það þarf að byrgja brunninn áður
en barnið dettur ofan í hann. Það er
mjög mikilvægt og hefur kannski
aldrei verið jafnmikilvægt og ein-
mitt núna,“ segir Ásta.
Ung og skuldug Ungt fólk leitar íauknum mæli ráðgjafar hjá
Ráðgjafarstofu heimilanna í fjármálum vegna greiösluerfiðleika.
HotelSelfoss
Ráðstefnur
Fundir - Árshátíðir
Nánari upplýsingar og pantanir í síma 480 2500 og info@hotelselfoss.is