blaðið - 20.09.2006, Page 32
4 0 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2006
blaðið
BMX
BMX-hjólin komu fyrst fram i Kaliforníu seint á sjöunda áratugnum.
Fyrstu BMX-hjólin voru hefðbundin hjól sem krakkar breyttu til að
geta notað þau í torfærum.
jaðarsport
WF iadarsport@bladid.net
Úr Klifurhúsinu
Dænómótið er frábrugðið hefð-
bundnum erfiðleikaklifurmótum og
reynir á stökkgetu keppenda.
Dænómót í
Klifurhúsinu
Svokallað dænómót verður hald-
ið í Klifurhúsinu á sunnudaginn
klukkan 14. Þetta er í fyrsta
skipti sem slíkt mót er haldið
hér á landi. Mótið er ekki liður
í íslandsmeistarakeppninni
enda frábrugðið hefðbundnum
klifurmótum að því leyti að þar
reynir öðrum þræði á stökkgetu
þátttakenda.
„Það er keppt í vegg með um
tuttugu gráðu halla og fyrir-
komulagið er mjög svipað og í
hástökki. Byrjað er á ákveðinni
hæð, fólk fær þrjár tilraunir og
síðan er hækkað,“ segir Hjalti
Rafn, rekstrarstjóri Klifurhúss-
ins, um mótið.
Flugdrekaíþróttin hefur
gengið í endurnýjun líf-
daga á undanförnum ár-
um eftir að menn fóru að
tvinna hana saman við
aðrar greinar á borð við skíða- og
snjóbrettaiðkun og brimbrettasigl-
ingar. í þessum greinum notast
menn við svokallaða kraftdreka en
það eru stórir flugdrekar með mjög
mikla vindmótstöðu. Á Islandi er að
myndast samfélag áhugamanna um
kraftdreka og má meðal annars nálg-
ast upplýsingar um það á siðunum
kiteland.net og vindsport.is.
Hálfgert leynisport
Snjódrekaflug (snowkiting) hef-
ur rutt sér til rúms hér á landi og
skyldi engan undra þar sem hvorki
skortir snjó né vind. Eins og nafnið
gefur til kynna gengur íþróttin út á
það að menn nota kraftdreka til að
draga sig áfram á skíðum eða snjó-
bretti. Að sögn Einars Garðarssonar
hjá Vindsporti stunda þó nokkrir
íslendingar íþróttina en ekki er þó
til neinn formlegur félagsskapur í
kringum hana. „Við erum nokkr-
ir sem höfum verið að rotta okkur
saman. Þetta er hálfgert leynisport,"
segir Einar og bætir við að hún sé
aðallega stunduð á suðvesturhorni
landsins en einnig séu nokkrir á Ak-
ureyri og á ísafirði sem stundi hana.
íþróttin er ung og sjálfur hefur
Einar aðeins stundað hana í um
þrjú ár. Engu að síður er áhuginn
slikur að hann er farinn að flytja
inn og selja búnað auk þess að bjóða
upp á snjódrekaferðir á Langjökli
á sumrin. Fjölmargir útlendingar
hafa komið til íslands til að prófa
íþróttina undir handleiðslu Einars
og félaga hans. Á veturna hafa snjó-
drekaiðkendur meðal annars lagt
stund á íþróttina á Bláfjallasvæðinu
og á ísi lögðu Rauðavatni.
Auðvelt að stjórna drekanum
Einar segir auðvelt að hafa stjórn
á drekanum og aðeins taki einn dag
að læra réttu handtökin. „Maður
hefur mjög góða stjórn á honum og
getur beint honum hvert sem maður
vill. Það er líka hægt að ferðast lang-
ar vegalengdir á þessu ef maður vill
og maður getur náð miklum hraða.
Ég hef náð 70 km hraða en erlendis
hafa menn náð um 100 km hraða.“
Að sögn Einars hentar snjódrekafl-
ugið jafnt þeim sem eru að leita að
spennu og átökum og hinum sem
kjósa að taka því rólegar. „Þetta býð-
ur til dæmis upp á mikla möguleika
fyrir brettafólk til að stunda frístæl-
æfingar og opnar því nýjar víddir,“
sesir Einar.
Iþróttin er ekki með öllu hættu-
laus og dæmi eru um að slys og
óhöpp hafi orðið vegna þess að
óvarlega var farið. Mikilvægt er að
stunda hana á opnum og öruggum
svæðum þar sem ekki eru hindranir
svo sem grjót eða mannvirki.
Brimbretti og kraftdrekar
í sjódrekaflugi (kitesurfing) er
tvinnað saman brimbrettaiðkun
og flugdrekaflug. Menn standa á
bretti og eru dregnir áfram af kraft-
dreka á sjó eða vatni. íþróttin er
líkt og snjódrekaflugið frekar ung
og eru þeir teljandi á fingrum ann-
arrar handar sem stunda hana að
staðaldri hér á landi. Einn þeirra
er Geir Sverrissbn sem einnig hefur
mikla reynslu af snjódrekaflugi. „Ef
menn ætla að prófa þetta er sniðugt
að byrja á snowkiting. Það er auð-
veldara að ná tökum á því og engin
hætta á að maður sökkvi í vatnið,“
segir Geir.
Geir segir að fólki sé ráðlagt að
taka námskeið í íþróttinni en reyna
ekki að læra hana á eigin spýtur.
Vandamálið sé hins vegar að hér á
landi séu engin slík námskeið í boði.
Að sögn Geirs eru góðar aðstæður
til að stunda íþróttina hér á landi.
„Útlendingar sem koma hingað verða
margir hverjir heillaðir af þessu. Hér
er allt við höndina. Það er hægt að
fara upp á jökul til að stunda snowk-
iting og svo eru fallegar sandfjörur
fyrir kitesurfing,” segir Geir. Tals-
verðan vindstyrk þarf til að stunda
sjódrekaflug en hann er því miður
ekki alltaf til staðar og segir Geir
það mikinn misskilning að það sé
alltaf rok á íslandi.
Öryggið ofar öllu
„Það er mikilvægt að fólk læri
að bera virðingu fyrir vindinum,
kynni sér veðurspána og fari aðeins
út þegar aðstæður eru réttar. Þá er
stranglega bannað að vera einn á
ferð ef eitthvað kemur upp á,“ segir
Geir sem setur öryggið ofar öllu.
Gúmmívinnustofan
SP dekk
Öryggi bílsins byggist á góðum hjólbörðum
HEILSÁRSDEKK
VETRARDEKK
JEPPLINGADEKK
RAFGEYMAR
GÚMMÍVINNUSTOFAN
Skipholti 35 105 RVK
Sími: 553 1055
www.gummivinnustofan.is
t HEILDARPAKKINN
| 1. Grunnur 2. Grafík 3. Skrifstofan
I %0i. WmdowsXP áB l. Photosbop 6.0 Bl. Word2003
1 3 02. Outlook Express Sð 2. Photoshop verkefni S 2, Word 2003 PRO
1 M 03. Internetid ðí 3. Premiere Pro iÍ 3. Excsl 2003
1 04. Metreiósfeikennarfnn 4. Premíere Elements S 4. ExMl 2003 PRO |
I ? 05. Ðrellur 00 bröoð 0 5. Flash MX (í vinnslu) 5. OudOOlr 2003
1 ^ 06. Ffeght Stmulator 2004 0 6. Stafrænar myndavólar 3 6. Outlook 2003 PRO 1
X 07. GulU Byogir 1. 1 fá 08. Vírusvarrwr $ 7. Photoshop CS2 517. FrontPao® iá 6. PowarPoint 2003 |
C 09. Netnanny I tí 10 Nero Burrong ROM Íath I Þú getur fengiö prufuaögang 1 r 5 9. Offtce 2007
þer aö kostnaóarlausu
www.fjarkennsia.is - sími: 5114510
Þingvellir í
Kajak á Þingvallavatni
Maður fær áðra sýn á Þing
velli með því að róa á kajak
á Þingvallavatni:
Kayakklúbburinn verður með dags-
ferð á Þingvallavatni á laugardaginn
klukkan 11. Farið verður frá strönd-
inni rétt innan við Valhöll, yfir í Vatns-
vík að Arnarfelli og jafnvel komið við í
Sandey. Gert er ráð fyrir að ferðin taki
um 4-5 klukkustundir eftir því hvern-
igvindarblása.
Ásta Þorleifsdóttir sem situr í ferða-
nefnd klúbbsins segir að fólk sjái þjóð-
garðinn í nýju ljósi með þessum hætti.
„Á þessum tíma er himbriminn
gjarnan farinn að hópa sig og eitt haust-
ið voru þarna um 400 himbrimar. Það
var alveg ótrúleg upplifun. Ef það er
gott veður og haustútirnir speglast í
vatninu þá er maður með sjónarhorn
sem maður hefur ekki með neinum
öðrum máta. Þetta er töluvert öðru
vísi en að vera á vélbát því að þú ert
einn með náttúrunni. Fyrir stressað
þekkingarsamfélag þá er þessi aðgang-
ur að náttúrunni alveg frábær," segir
Ásta.
Að sögn Ástu taka félagar í Kayak-
klúbbnum að sér að skipuleggja ferðir
sem þessar og í sumar hafa þær verið
allnokkrar. Meðal annars var farin
ferð um Breiðafjörð fyrir tæpum mán-
uði og á hverju ári er róið á Langasjó.