blaðið - 18.10.2006, Blaðsíða 27
blaöió
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2006 35
Vitra-hönnunarsafnið
er í svíssneska bænum Weil am Rhein og er byggingin hönnuö af arkitektinum Frank 0 Gehry.
Safnið geymir eitt stærsta safn á nútíma húsgögnum í heiminum og sýnir þverskurð af hönn-
unarsögunni. Svissneski húsgagnaframleiðandinn Vitra hefur gert menningarlegan skilning á
hönnun að mikilvægum þætti í stefnu fyrirtækisins. Vitra framleiðir sígilda hönnun auk þess
sem fyrirtækið framleiðir einnig einstaka gripi og litlar seriur eftir áhugaverða hönnuði.
Uppstoppaður krossviður
Vlaemsch er belgískt ungt og ferskt
hönnunarfyrirtæki sem stofnað
var af belgíska hönnuðinum Cas-
imir. Fyrirtækið stendur fyrir
flæmskar hefðir og húmor, einfaldleika,
röksemi, gæði og heiðarleika í hönnun og
sameinar hugmyndaauðgi og gæði. Vör-
ur fyrirtækisins eru mjög nýstárlegar og
óvenjulegar og gæða heimilið lífi og gleði.
Hönnuðir Vlaemsch koma hvaðan-
æva að úr heiminum en sameinast í að
hanna undir formerkjum húmors
og viljans til að brjótast undan
viðurkenndum reglum. Efnisnotkun og
tækni eru nýtt á nýstárlegan hátt. Dæmi
um hönnun frá Vlaemsch eru hreindýrs-,
dádýrs- og elgshausar úr krossviði sem
minna á uppstoppaða hausa sem héngu
gjarnan fyrir ofan arna á fínni heimilum
borgarastéttar Evrópu. Hönnuðurinn,
Augustin Scott de Martinville, vildi gera
þessi stöðutákn, sem eru mjög
dramatískir hlutir tengdir drápi
og uppstoppun á dýrum, á þann
hátt að þau væru í senn húmorísk
en um leið með sterka tengingu
við frummyndina. Hægt er að velja um
dádýrs-, hreindýrs- eða elgshausa og þeir
koma í flötum einingum sem eig
andinn púslar saman sjálfur.
loa@bladid.net
Hreindýrið fyrir
minni heimili,
verð 16.900
Verslunin Þrjár hæðir á Laugaveginum
selur hönnunina frá Vlaemsch.
Dadyrið goðlegt og
fallegt, verð 8.300
Bgur voldugur og nýtur
sín vel yfir arinhillum,
verð 23.900
Blo6i6/FMi
I Þýska tímaritió Auto Bild valdi j Opel bestu þýsku biltegundina I í Þýskalandi árió 2006 Ingvar Helgason Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 ih.is Opið: Mánudaga -föstudaga kl. 9:00-18:00. Laugardaga kl. 12:00-16:00.
Aukahlutir á mynd: álfelgur