blaðið - 18.10.2006, Blaðsíða 30
38 MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2006
blaðið
íþróttir
ithrottir@bladid.net
r
Mikilvægara en fótbolti
Jose Mourinho, stjóri Chelsea, hefur lýst yfirfuröu sinni og óánægju með
aö þaö hafi tekið sjúkrabíl hálftima að koma á vettvang eftir að Petr Cech,
markvörður liðsins, höfuðkúpubrotnaði í leik Chelsea og Reading um síð-
ustu helgi. „Þetta er mun mikilvægara en fótbolti,” sagði Mourinho sem
hyggst leggja fram formlega kvörtun vegna seinagangsins.
Skeytin inn
Fyrirliðinn Steven Gerr-
ard verður ekki með liði
Liverpool sem mætir
Bordeaux í Frakklandi í kvöld,
en hann tognaði lítillega aftan
í læri í leik gegn Blackburn um
síðustu helgi. Rafa Benitez,
stjóri Liverpool,
vonast til að
Gerrard verði
klár í leikinn
gegn Manc-
hester Un-
ited um
næstu
helgi. Mo-
hamed
Sissoko
og Dirk
Kuyt, sem
eiga báðir
í ökklam-
eiðslum,
eru báðir komnir til Bordeaux
þótt óvíst sé að þeir geti spilað
leikinn. Þá eru Dan Agger og
Robbie Fowler enn frá vegna
meiðsla.
Italinn stuttfætti hjá
AC Milan, Gennaro
Gattuso, bar í gær til
baka sögur um að hann
hygðist enda feril sinn
hjá Glasgow Rangers,
en það var fullyrt
í skosku
dagblaði í
■' fyrradag.
Gattuso
sagðiskoska
blaðið hafa
haft rangt
eftir sér og að
hann hefði þegar
gefið loforð um
að enda feril sinn
hjá AC Milan. „Ég vil
bara biðja fólk um
að róa sig niður. Það verður
ekkert annað Shevchenko-mál,”
sagði Gattuso á heimasíðu Míl-
anó-liðsins í gær.
Arsenal hefur stimplað sig
inn í kapphlaup
eftir hollenska
framherjanum
Klaas-Jan Hunt-
elaar sem gekk
til liðs við Ajax
frá Heerenveen
í janúar. Nú
þegar bítast ensku
liðin Manchester
United, Newcastle
og Portsmouth um leikmann-
inn. Huntelaar er 23ja ára og
skoraði 33 mörk í hollensku
deildinni á síðasta tímabili.
•N'y.
vitamin.is
0% sykur
0% kolvetni
Nýtt á
íslandi
Ármúla 32 sími 544 8000
Opnunartimar: Mán-fös 10-18 Lau 11-15
Akureyn: Granufélngsg. 4 sími 466 2100
Opnunartímar: Man-fós 16-18 30
Chelsea tekur á móti Barcelona:
Eiður Smári
í eldlínunni
á Brúnni
Talar ekki við Terry ■ Mun fagna marki á „viðeigandi hátt”
tí
\ f á
L
I Meistaradeildinni í kvöld mætast Chelsea og
Barcelona á Stamford Bridge í Lundúnum í fyrri
viðureign liðanna í A-riðli Meistaradeildarinnar.
Lítil lognmolla hefur verið í kringum viðureignir
liðanna og oftar en einu sinni hefur soðið upp
úr. Leikurinn í kvöld er sá fimmti milli liðanna
á tveimur árum en síðustu tvö árin hafa Chelsea
og Barcelona dregist saman í útsláttarkeppni og
hafa hingað til skipt með sér sigrunum. Tíma-
bilið 2004/2005 fór Chelsea með sigur af hólmi
samanlagt, 5-4, en tímabilið 2005/2006 hafði
Barcelona betur, 3-2.
Chelsea stendur betur að vígi í riðlinum með
sex stig eftir tvo leiki en Barcelona gerði jafntefli
við Werder Bremen um daginn og er með fjögur
stig eftir tvo leiki.
Eiður í byrjunarliði?
Miklar líkur eru taldar á því að Eiður Smári
hefji leikinn með Barcelona gegn sínum gömlu
félögum í Chelsea, þar sem Samuel Eto’o,
aðalframherji Barcelona, er frá vegna
meiðsla. A
„Það yrði frábært að skora í
leiknum, en ef ég geri það *
mun ég fagna markinu ^
á viðeigandi hátt með
virðingu fyrir Chelsea,”
sagði Eiður Smári
við enska fjölmiðla í
gær um það hvernig
hann myndi bregðast
við ef hann skoraði. I
viðtölum við Eið sem
breskir fjölmiðlar hafa
keppst við að birta síðustu
daga hefur Eiður verið
allt annað en yfirlýsinga-
glaður og talað vel um
fyrrverandi félag sitt,
Chelsea. Varðandi
leikskipulag Chelsea
hefur Eiður sagt það
gríðarlega vel skipu-
lagt lið og að þeir
séu mjög erfiðir
°TBkW
I
Eidur Smári verdur í sviðs-
Ijósinu í kvöld þegar hann
mætir sinum gömlu félögum
í Chelsea á Stamford Brldge.
Eiður hefur sagst ætla að
fagna á „viðeigandi hátt" ef
hann skorar.
heim að sækja. „Þetta verður
gríðarlega erfiður leikur gegn
þéttu og vel skipulögðu liði.
Þótt þú skorir gegn þeim er
aldrei hægt að afskrifa þá,
þeir geta alltaf komið til
baka og unnið leikinn,”
sagði Eiður meðal annars
um sína gömlu félaga.
Talar ekki við Terry og
Lampard
Eiður hefur látið í ljós áhyggjur sínar
af líðan Petr Cech, markvarðar Chelsea, sem höf-
uðkúpu- brotnaði í leik Chelsea og Re-
ading i-BbT»Ti~' um síðustu helgi, en þar
sem John Terry, Frank
Lampard og Eiður
ákváðu að hringj-
ast ekki á tveimur
vikum fyrir leik lið-
anna sagðist Eiður ekki
hafa fengið fréttir af líðan
Cech nema í gegnum enska
fjölmiðla. Annar mark-
vörður Chelsea, Carlo
Cudicini, var einnig bor-
inn meiddur af leikvelli
í leiknum og John Terry
varð að bregða sér í mark-
mannstreyjuna og verja
markið síðustu mín-
úturnar. „Ég hefði
ekkert á móti því
að John Terry
stæði
NjBjjBk; m a r k i n u
I í stað þess að
hann jgf gætti mín
í vörninni,” sagði Eiður
glettnislega við bresku press-
una af því tilefni, en Terry á eflaust
eftir að hafa góðar gætur á Eiði
Smára í leiknum.
Vegna markvarðameiðsla neyðist
Jose Mourinho til að tefla fram þriðja
markmanni liðsins, hinum portú-
FC
tmira/es
galska Hil-
ario, en það
verður hans fyrsti leikur
fyrir Chelsea og spennandi
verður að sjá hvernig hann
bregst við áskoruninni.
Erkifjendur á tveimur
árum
Lítil lognmolla hefur verið í
kringum viðureignir Chelsea
og Barcelona þótt ekki sé hægt
að segja að liðin séu fornir
fjendur. Eftir fyrsta leik lið-
anna sem fór fram í Barcelona í
mars á síðasta ári sakaði Jose Mo-
urinho sænska dómarann Anders
Frisk um að hafa boðið Frank Rijka-
ard, stjóra Barcelona, í dómaraklef-
ann í hálfleik. Mourinho fullyrti að
samtal þeirra hefði haft áhrif á dóm-
gæslu Frisks þegar hann rak Didier
Drogba, leikmann Chelsea, af velli.
Eftir leikinn varð Anders Frisk fyrir
morðhótunum vegna málsins og til-
kynnti afsögn sína tveimur vikum
síðar.
Eftir fyrri leikinn í viðureign lið-
anna í fyrra sem fram fór á Stamford
Bridge sakaði Mourinho Argentínu-
manninn knáa, Lionel Messi,. um
leikræna tilburði, sem varð til þess
að varnarmaður Chelsea, Asier Del
Horno, var rekinn af leikvelli. Spán- j
verjarnir unnu leikinn 1-2 og Mour-1
inho hlaut tveggja leikja bann fyrir
ummælin.
Samningaviöræður standa enn yfir:
Eggert hækkar
tilboðið í West Ham
Eggert Magnússon hefur bætt við
boð sitt í enska úrvalsdeildarfélagið
West Ham. BBC greindi frá því í /
gær að West Ham hefði hafnað J
8,5 milljarða króna tilboði Egg- ‘
erts í síðustu viku og að fjár-
festingafélag Eggerts hefði
hækkað tilboð sitt upp í
tíu milljarða
í s 1 e n s k r a
króna auk
boðs um að
taka við
skuldum
félagsins
sem hljóða
upp á rúma tvo og hálfan milljarð.
I samtali við Blaðið vildi
Eggert ekki staðfesta
fréttaflutning BBC en
sagði að viðræður milli
hans og forráðamanna
West Ham stæðu enn
og bjóst við því
samningaferlið gæti
tekið allt að tvo mánuði.
Eggert Magnússon,
formaður KSÍ Egg-
ert hefur hækkað
tilboð sitt í West
Ham í tíu milljarða
íslenskra króna.
Manchester United:
Stjórnarmenn flýja
OÍd Trafford
Tveir af þremur síðustu áhrifa-
miklu starfsmönnum Manchester
United sem ekki tilheyra Glazer-fjöl-
skyldunni, sögðu af sér í gær.
Þetta eru þeir Nick Humby og
Andy Anson sem hafa farið með fjár-
mál og markaðsmál félagsins.
David Gill, forstjóri félags-
ins, er nú eini starfsmaðurinn /
utan Glazer-fjölskyld
unnar sem hefur vægi
í almennum rekstri
félagsins.
Forsvarsmenn
aðdáendaklúbbs
Manchester United
eru óánægðir með þróunina og hafa
skorað á Humby og Anson og skýra
út fyrir aðdáendum hvað sé að ger-
ast bak við tjöldin hjá félaginu.
Mikil ólga hefur verið meðal
stuðningsmanna hðsins allt síðan
fréttist af áhuga Glazer á liðinu og
sneru sumir baki við liðinu þegar
hann keypti það. Því vilja margir
stuðningsmenn
fá á hreint hvort
það séu Glazer-
feðgarnirsemeru
valdir að brottför
tvímenningana.