blaðið


blaðið - 24.10.2006, Qupperneq 5

blaðið - 24.10.2006, Qupperneq 5
 Fjölbreytt nám þinn ^ Bókhald I við allra hæfi Sérlega hagnýtt námskeið fyrir þá sem þurfa að ná tökum á bókhaldi fyrirtækisins. Þetta námskeið hentar einnig þeim sem vilja styrkja stöðu sína á vinnumarkaði með góðri undirstöðuþekkingu og þjálfun í bókhaldsvinnu. Kennslugreinar: • Verslunarreikningur • VSK meðferð reglur og skýrslur • Bókhaldsgrunnur í handfærðu bókhaldi • Tölvubókhald i Navision Kennslan byggir að mestu leyti á verklegum æfingum með raunveruleg fylgiskjöl, þau merkt og færð með tilheyrandi uppgjöri og útskriftum. Prufuútgáfa fylgir. Lengd: 110 std. Boðið er uppá morgun- og kvöldnámskeið. Verð kr. 94.000,- Akureyri: Kennsla hefst 25. október og lýkur 9. desember, morgun- og kvöldhópar. Reykjavík: Morgunnámskeið I. Kennsla hefst 6. nóvember. Kennt er mán-mið-fös kl. 8.30 - 12. Morgunnámskeið II. Kennsla hefst 7. nóvember. Kennt er þri-fim-fös 8.30 -12. Kvöldnámskeið I. Kennsla hefst 6. nóvember. Kennt er mán-mið kl. 17.30 - 21 og lau kl. 9 - 12.30. Kvöldnámskeið II. Kennsla hefst 7. nóvember. Kennt er þri-fim kl. 18 - 21.30 og lau kl. 9 - 12.30. iy Grafísk hönnun 4? Byrjendanámskeið Vinsælt námskeið á sérlega hagstæðu verði, ætlað fólki á öllum aldri sem hefur enga tölvukunnáttu. Allar greinar eru kenndar frá grunni og farið rólega í námsefnið með reglulegum upprifjunum. Á þessu námskeiði er allt sem byrjandinn þarf til að komast vel af stað og öðlast sjálfsöryggi við tölvuna. • Windows tölvugrunnur • Word ritvinnsla • Internetið og tölvupóstur Kennt er tvisvar í viku og er hægt að velja um morgun- eða kvöldnámskeið. Lengd 42 std. Verð kr. 32.900,- Allt kennsluefni innifalið. Reykjavík: Kennsla hefst 1. nóv og lýkur 27. nóv. Kennt er mánudaga og miðvikudaga, morgunhópar 8.30 - 12 og kvöldhópar 18 - 21.30. Akureyri: Næsta námskeið hefst í janúar. Vefsíðugerð - grunnur Vinsælt námskeið ætlað byrjendum í vefsmíði og fólki sem vill koma sér upp einfaldri og þægilegri heimasíðu. Sérstök áhersla er lögð á myndgerð og myndnotkun á heimasíðunni. Kennt er á tvö algengustu forritin sem notuð eru til vefsmíða og myndvinnslu fyrir vefinn, Photoshop og FrontPage. í lok námskeiðs eiga þátttakendur að vera færir um að búa til frambærilega heimasíðu fyrir sjálfan sig eða lítil fyrirtæki til kynningar á Netinu, vista hana á Netinu og kunna skil á umsjón og uppfærslu hennar. Jafnframt er námskeiðið góður grunnur undir frekara nám og þekkingaröflun á þessu sviði. Þátttakendum er frjálst að vinna að eigin heimasíðu í samráði við kennara. Lengd: 42 std. Verð kr: 36.000,- Allt kennsluefni innifalið. Reykjavík: Kennsla hefst 6. nóvember og lýkur 29. nóvember. Kennt er mánudaga og miðvikudag kl. 18 - 21.30. Akureyri: Næsta námskeið hefst í jánúar Vinsælt og sérlega hagnýtt nám ætlað þeim sem eru að stíga fyrstu skrefin í grafískri vinnslu eða fólki sem vill skapa sér forskot í frekara hönnunarnámi t.d. á háskólastigi. Þetta nám hentar einnig þeim sem vilja hanna sínar auglýsingar sjálfir. Á þessu námskeiði eru tekin fyrir þrjú mest notuðu hönnunarforritin í dag. • Photoshop • lllustrator • InDesign Einnig læra þátttakendur að ganga frá verkefnum sínum í Acrobat Distiller (PDF). Námskeiðið felst í því að kynna nemendum virkni og uppbyggingu forritanna, og að nýta möguleika þeirra til sjálfstæðra vinnubragða. Kennsla byggir á fyrirlestrum og verklegum æfingum og fá þátttakendur hagnýt verkefni í tengslum við innihald náms. Lengd: 105 std. Verð kr. 116.000,- stgr. Allt kennsluefni innifalið. Reykjavík: Kennsla hefst 31. október, kennt er þriðjudaga og fimmtudaga frá 18 - 21.30 og annan hvern laugardag frá 9 -12.30. Akureyri: Næsta námskeið hefst í janúar Xy Stafrænar myndavélar Stutt og hagnýtt námskeið fyrir þá sem eru að taka fyrstu skrefin með myndavélina. Farið yfir öll helstu grundvallaratriði og meðferð myndanna í tölvunni. Þátttakendur glöggva sig á stærð og upplausn mynda, skipulag myndanna í heimilistölvunni og grundvallarlagfæringar á myndunum. Þá verður farið yfir heimaprentun og framköllun myndanna að senda þær í tölvupósti eða vista á geisladiska til varðveislu. Vinsælt, ókeypis myndvinnsluforrit á Netinu tekið fyrir. Lengd 14 std. Verð kr: 15.000.- Góð kennslubók á íslensku innifalin. Reykjavfk: Kennt er þrjú kvöld, 25. okt + 30. okt + 1. nóv kl. 18 - 21 Akureyri: Kennt er þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 18 - 20, hefst 7. nóv og lýkur 21. nóv Önnur námskeið að hefjast MCSA 70-290 Flefst 3. nóvember, kennt er þrjár helgar, fös. 17:30 - 21:30 og laugardaga 9-17. Photoshop Ijósmyndun Lengd 30 std. verð kr. 29.000,- Hefst 7. nóvember (Akureyri) Photoshop grunnur Lengd 21. std, verð kr. 24.000,- Hefst 6. nóvember (Reykjavík) Dreamweaver Lengd 31 std verð kr. 29.000,- Hefst 13.nóvember (Reykjavík) Tollskýrslugerð Lengd 21 std. verð kr. 28.000, Hefst 23. nóvember (Reykjavík) Excel grunnur Lengd 21 std. verð kr. 19.000,- Hefst 2. nóvember (Reykjavík) Eldri borgarar - Byrjendur Lengd 30 std verð kr. 19.500,- Hefst 1. nóvember (Reykjavík og Akureyri) Eldri borgarar - framhald Lengd 30 std verð kr. 19.500,- Hefst 2. nóvember (Reykjavík og Akureyri) TÖLVUSKÓLINN ÞE K K í N G REYKJAVIK & AKUREYRI FAXAFEN 10 108 REYKJAVÍK GLERÁRGATA 36 600 AKUREYRI WWW.TSK.IS SKOLI@TSK.IS

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.