blaðið - 24.10.2006, Blaðsíða 13
blaóiö
ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2006 13
Sífellt fleiri gagnrýna hvalveiðar:
Tuttugu þúsund mótmæla
Hvalveiðar í slendinga hafa vakið
hörð viðbrögð víðsvegar um heim
og hafa meðal annars ríkisstjórnir
Ástralíu og Svíþjóðar gagnrýnt
veiðarnar harðlega. Þá höfðu utan-
ríkis- og sjávarútvegsráðuneytinu
borist um 20 þúsund mótmælabréf
í gegnum Netið um miðjan dag í
gær.
Að sögn Grétars M. Sigurðssonar,
ráðuneytisstjóra hjá utanríkisráðu-
neytinu, voru bréfin í flestum til-
vikum ættuð frá Bretlandseyjum í
stöðluðum formum. „Þetta virðist
vera svona pakkapóstur sem ein-
staklingar senda í gegnum vefsíður
erlendra samtaka. Við munum
eftir bestu getu reyna að svara
öllum bréfurn," segir Grétar. Hann
gerir ráð fyrir því að svipaður
fjöldi bréfa eigi eftir að berast ráðu-
neytinu á næstu dögum.
I gær sendi sænska ríkisstjórnin
frá sér harðorða gagnrýni þar sem
íslendingar eru hvattir til að láta
af fyrirhuguðum hvalveiðum. Líta
þarlend stjórnvöld svo á að íslend-
ingar séu með veiðunum að brjóta
alþjóðlegt bann gegn hvalveiðum
sem Alþjóðahvalveiðiráðið hafi
sett á sínum tíma. Með þessari
gagnrýni skipa sænsk stjórnvöld
sér í hóp með Bandaríkjamönnum,
Bretum, Ný-Sjálendingum og Ástr-
ölum sem einnig hafa gert alvar-
legar athugasemdir við hvalveiðar
fslendinga í atvinnuskyni. Þá
hefur Evrópuráðið einnig ályktað
um veiðarnar og hvatt íslensk
stjórnvöld til að endurskoða af-
stöðu sína.
Erlendir fjölmiðlar hafa sýnt mál-
inu vaxandi áhuga og var mikið
fjallað um það þegar fyrsta lang-
reyðurin var veidd nú um helgina.
Á vef breska ríkisútvarpsins,
BBC, var meðal annars greint frá
því að náttúruverndarsamtök og
ríki sem eru mótfallin hvalveiðum
íhugi nú lagaleg úrræði til að koma
í veg fyrir veiðarnar.
f vefútgáfu þýska dagblaðsins
Hamburger Abendblatt í gær er
haft eftir forstöðumanni þýsku
Hafrannsóknastofnunarinnar að
hvafveiðar íslendinga muni hafa
skaðleg áhrif á stofnstærðir hvala
í Norður Atlantshafi. Vísar hann
þeim kenningum á bug að veiða
þurfi hvali til að vernda fiskistofna
á hafsvæðinu.
Fyrsta langreyourin kemur á land
eftir nærri 20 ára hlé Múgur og
margmenni var mætt í Hvalstöðina um
helgina til að siá langreyðina skorna
ísrael:
Olmert fær
liðsstyrk
Avigdor Lieberman, leiðtogi
ísraelska stjórnmálaflokksins
Yisrael Beiteinu, tilkynnti í gær
að flokkurinn myndi ganga tif
liðs við ríkisstjórn Ehuds Olmerts
forsætisráðherra. Flokkur Lieber-
mans hefur tekið harða afstöðu
gegn aröbum og hefur ellefu þing-
menn á ísraelska þinginu, Knes-
set. Ríkisstjórn Olmerts hefur nú
á að skipa 78 af 120 þingmönnum.
Stjórnmálaskýrendur telja nú
Olmert fá aukið pólitískt svigrúm.
Verðmæti sjávarafla:
Meira verð-
mæti úr sjó
Aflaverðmæti íslenskra skipa
jókst um tæpa íjóra milljarða
á fyrstu sjö mánuðum ársins
samanborið við sama tímabil í
fyrra. Heildarverðmæti aflans
nam 46 milljörðum króna og
því var aukning um rúm níu
prósent. Samkvæmt tölum frá
Hagstofu íslands kemur fram að
verðmæti afla sem seldur er beint
haíi staðið í stað en aukning
varð bæði í afla sem keyptur er
tif vinnslu innanlands og afla
sem fluttur er út óunninn.
Styrkbeiðnir:
Margir sækja í
Jafnréttissjóð
AJls bárust 18 umsóknir um
styrk úr Jafnréttissjóði en 8,9
milljón krónum verður úthlut-
að úr sjóðnum að þessu sinni.
Stofnað var til sjóðsins á
síðasta ári samkvæmt sam-
þykkt ríkisstjórnar Islands með
það að markmiði að tryggja
að hér á landi verði unnar
vandaðar rannsóknir á stöðu
kynjanna á vinnumarkaði.
Fimm verkefni fá styrk
úr sjóðnum í ár og verður
tilkynnt formlega í dag
hvaða verkefni það verða.
„ .<100
J öaHojðbcrðið
í ötWnasal H6*tel Sögt> samelnar
Ijtkffengan ma*t og góÓa skemm-ty>-n.
þö- gœölr þér ó. glmtlega hladboföl.
skemm-^jr þér tmdlr töandl feÍTLI of
skeflr þér svo tk-t A gólflðog
•telMW nokktw lé-t-tspor.
Pantanir og upplýsingar í síma 525 9950
og á hotelsaga@hotelsaga.is
f SAGA HOTEL, REY
REYKJAVIK