blaðið - 24.10.2006, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2006
blaöið
VEÐRIÐ í DAG
Kalt
Norðaustan 10 til 15 metrar á sekúndu
norðantil en hægara sunnantil. Snjókoma
norðaustantil og él sunnanlands. Allt að
fimm stiga frost.
Á MORGUN
Bjartviðri
Norðan- og norðaustanátt.
Snjókoma og slydda víðast
nema suðvestanlands. Frost á
bilinu 0 til 6 stig.
VÍÐAUMHEIM 1
Algarve .22
Amsterdam 13
Barcelona 23
Berlln 16
Chicago 0
Dublin 11
Frankfurt 14
Glasgow 10
Hamborg 15
Heisinki 10
Kaupmannahöfn 15
London 12
Madrid 16
Montreal 4
New York 7
Orlando 77
Osló 6
Palma 24
París 14
Stokkhólmur 11
Þórshöfn 4
MEÐLAGSGREIÐENDUR
Mennirnir nauðguðu
stúlkunni við Þjóðleikhúsið
Tveir menn neyddu unga
stúlku til kynferöismaka við
Þjóðleikhúsið að morgni
laugardagsins.
ÍSKL-
tuiuar þ* Mm vll|a
KynfeiOlsatbrotamenn ganga lausir eftir helgina:
Konu nauðgað í húsasundi
■ Haldið faatrt maftan hannl var nauðgað ■ Hrottatangln tráa
■ Blaðið fimmtudaginn 12. október
hluti allra nauðgana er fram
inn í heimahúsum og þá
oftast af mönnum sem eru
kunnugir fórnarlambinu.
„Það er hugsanlegt
að um svokallaða eft-
irhermuhegðun sé að
ræða,“ segir Helgi og
bendir á að það sé al-
gengaraíöðrumríkjum
að menn lesi fréttir
af þessum toga og
framkvæmi svo
sjálfir verknað-
inn í kjöl
farið.
Að
mati
Ohugnanlegur glæpur
Átján ára stúlku var nauðgað
i Reykjavik. Nauðgunin mun
likjast mikið verknaðinum sem
framinn var fyrir tveimur vikum.
Helga vekur athygli hversu stutt sé
á milli árása.
„Ekki er þó ólíklegt að sömu menn
hafi verið að verki og í árásinni áður,“
segir Helgi og byggir það á því að
verknaðarlýsingin er svipuð og
svo eðli árásarinnar sem er óvenju
fólskuleg. Hann segir að hefði ger-
andinn verið einn að verki þá væri
líklegra að um eftirhermuhegðun
væri að ræða án þess að það megi
útiloka hinn möguleikann
„Það kæmi ekki á óvart ef
gerendurnir í þessu máli
ættu afbrotaferil að baki
sem einkennist af of-
beldi,“ segir Helgi.
Að hans sögn munu
frásagnir fórnarlamb-
anna vonandi varpa
ljósi á hvort um sömu
menn sé að ræða eða
hermiatferli ann-
arra manna.
Miklu skiptir
að málin upp-
lýsist sem
fyrst að mati
Helga.
Báðar stúlk-
urnar hafa
kært málið en
það er á frum-
stigi rann-
sóknar. Eins
og fyrr segir
ganga nauðg-
ararnir lausir.
Meðlagsgreiðendur, vinsam-
legast gerið skil hið fyrsta og
forðist vexti og kostnað
Bílastæðasjóður:
Geta greitt
með kortum
Hægt verður að greiða fyrir
bílastæði í miðborg Reykja-
víkur með úrvali skafmiða og
greiðslukortum í upphafi næsta
árs. Uppsetninf nýrra miða-
mæla, sem eru þúnir lesurum
fyrir kreditkoi t, hefst á næstu
vikum.
Með skafmiðunum geta
viðskiptavinir keypt fyrirfram
ákveðinn gildistíma við stöðu-
mæli. Einnig verða í boði viku-
og mánaðarkort sem gilda við
stöðu- og miðamælastæði. Hafa
á kortin sýnileg í mælaborði
bifreiðar sem lagt er í gjaldskylt
stæði.
Eftir þessar breytingar þurfa
ökukmenn ekki að treysta
á að hafa klink til að greiða
fyrir bílastæði undir bíla sína í
miðborginni.
Flugvallarstjórn:
Kaupir glæra
plastpoka
Forsvarsmenn Gardemoen-
flugvallar í Ósló hafa keypt
hálfa milljón af gegnsæjum
plastpokum. Þetta er gert til
að geta mætt nýjum reglum
Evrópusambandsins um að allt
fljótandi efni skuli vera í gegn-
sæjum plastpokum ætli farþegar
að taka það með í handfarangri.
Reglurnar taka gildi þann 6.
nóvember, en þær voru settar
þegar upp komst um áætlanir
hryðjuverkamanna um að
sprengja farþegavélar með
sprengiefni í vökvaformi. For-
svarsmenn Kastrup-flugvallar
í Kaupmannahöfn hafa einnig
keypt sama magn plastpoka.
Erlendir ferðamenn:
Fjölgar um
tugi þúsunda
Fyrstu níu mánuði ársins fóru
rúmlega 325 þúsund erlendir
ferðamenn um Leifsstöð en á
sama tímabili í fyrra voru þeir
303 þúsund. Nemur aukningin
7,2 prósentum. Fjölgunin í
september var 14,5 prósent,
samkvæmt talningu Ferðamála-
stofu í Leifsstöð. Flestir ferða-
mannanna koma frá Bretlandi,
Bandaríkjunum, Þýskalandi og
Danmörku.
Ársæll Harðarson, forstöðu-
maður markaðssviðs Ferðamála-
stofu, segir ánægjulegt að sjá að
aukningin í ár sé hlutfallslega
meiri utan sumartíma en sumar-
mánuðina. 1 september í ár hafi
til dæmis komið fleiri ferða-
menn en í júní fyrir tveimur
árum. Er það í samræmi við
stefnumótun um að lengja
ferðamannatímabilið.
Sauðárkrókur:
Brákaði
hálslið
Piltur brákaðist á hálslið á
Sauðárkróki aðfaranótt laugar-
dags en hann mun vera kominn
heim af spítala eftir að hafa gist
sjúkrahús eina nótt.
Pilturinn er ekki búinn að
kæra en svo virðist sem annar
maður hafi hrint honum með
þeim afleiðingum að hann féll
aftur fyrir sig af lágu grindverki
og brákaði hálslið. Mennirnir
voru staddir fyrir utan ball sem
haldið var í íþróttahúsi þar í
bæ. Honum var ekið umsvifa-
laust á Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri þar sem hann gisti
eina nótt. Hann slapp betur en á
horfðist samkvæmt vakthafandi
Fær ekki að hitta frænda sinn:
Svör fást í næsta mánuði
Maðurinn sem vill meina að
hann fái ekki að hitta móðurbróður
sinn sem dvelur á dvalarheimilinu
Garðvangi segist hafa fengið svar
frá ráðamönnum á heimilinu þar
sem sagt er að stjórnin muni ekki
funda fyrr en í næsta mánuði. Þá
fyrst verður ljóst hvort hann fái að
hitta móðurbróður sinn.
Maðurinn segist afar ósáttur
við langan viðbragðstíma stjórn-
arinnar en hann segist þurfa að
fara af landi brott í byrjun desem-
ber, eða eftir rúman mánuð. Enn
hefur honum ekki verið gefin nein
opinber ástæða fyrir því að hann
fái ekki að hitta aldraðan frænda
sinn.
Engnn heimsóknarréttur Karl-
maður sem ekki hefur fengið að
heimsækja móðurbróður sinn þarf
að bfða til næsta mánaðar eftir
svörum dvalarheimilisstjórnar.
Stúlku nauðgað á líkan hátt og fyrir tveimur vikum:
Eftir Val Grettisson
_____ valur@bladid.net
Átján ára stúlku var nauðgað hrotta-
lega fyrir utan Þjóðleikhúsið aðfara-
nótt laugardags. Tveir menn réðust
á hana þegar hún var þar á gangi og
neyddu hana afsíðis þar sem henni
var nauðgað. Samkvæmt Herði Jó-
hannessyni, yfirlögregluþjóni hjá
lögreglunni í Reykjavík, var nauðg-
unin óhugnanlega lík þeirri sem
framin var fyrir tveimur vikum. Þá
neyddu tveir menn tvítuga stúlku
inn í port á bak við Menntaskólann
í Reykjavík. Þar hélt annar þeirra
henni niðri á meðan hinn þröngv-
aði henni til samræðis. Þeir menn
eru ófundnir og hefur lögregla litla
sem enga lýsingu á þeim.
Stúlkan sem var nauðgað um
helgina leitaði til Neyðarmóttöku
nauðgana. Aðspurður segir Hörður
að hann geti ekki staðfest að sömu
menn hafi verið á ferð, til þess sé
rannsóknin of skammt á veg komin.
Stúlkan gat, líkt og sú fyrri, gefið
afar takmarkaða lýsingu á mönn-
unum, og mun enginn ákveðinn
liggja undir grun eins og stendur.
í síðara tilfellinu liggur ekki fyrir
hvort báðir mennirnir nauðguðu
stúlkunni eða annar þeirra.
„Þetta er mjög óvanalegt á ís-
landi,“ segir Helgi Gunnlaugsson,
afbrotafræðingur við Háskóla
íslands, en nauðganir á berangri
eru að hans sögn sjaldgæfar. Meiri-
Hrottaleg nauðgun
framin í Reykjavík
■ Átján ára stúlku nauðgaö við Þjóðleikhúsið ■ Mennirnir ófundnir