blaðið - 25.10.2006, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2006
blaðiö
VEÐRIÐ í DAG
Slydda eða snjókoma
Austan- og norðaustan átt, 10 til 18
metrar á sekúndu. Slydda eða snjókoma
sunnanlands. Frost allt að sjö stigum en
hlánar með suðurströndinni.
Á MORGUN
Snjókoma
Austan- og suðaustanátt 10
til 15 metrar á sekúndu. Snjó-
koma sunnan- og vestanlands.
Frost ailt að sex stigum.
VÍÐA UM HEIM 1
Algarve 21
Amsterdam 13
Barcelona 24
Berlín 15
Chicago 01
Dublin 13
Frankfurt 15
Glasgow 11
Hamborg 13
Helsinki 06
Kaupmannahöfn 13
London 12
Madrid ‘ 20
Montreal 04
New York 08
Orlando 11
Osló 06
Palma 26
París 14
Stokkhólmur 06
Þórshöfn 04
Óljósar varnir íslands:
Ónýtur varnar-
samningur
„í nýgerðum plöggum um
varnir íslands reynist ákaflega
lítið innihald. É g get ekki lesið
annað út úr þessu samkomulagi
en að Bandaríki rmenn staðfesti
vináttu sína,“ segir Össur Skarp-
héðinsson, þingflokksformaður
Samfylkingarinnar, um varnar-
samstarf Islands og Bandaríkj-
anna sem undirritað var í Wash-
ington ellefta þessa mánaðar.
Óssur bendir á að ýmislegt sé
enn óljóst í samstarfi þjóðanna,
til dæmis hvernig samstarfi lög-
regluembætta verði háttað.„Sá
samningur sem gerður var milli
þjóðanna er handónýtur. Miðað
við þá leynd sem hvílt hefur yfir
er ekki hægt að gefa sér neinar
forsendur um að í lagi sé með
varnir landsins,“ segir Össur.
Bandaríkin:
Ógnaði þjálf-
ara sonar síns
Wayne Derkotch, faðir sex
ára fótboltakappa í Philadelp-
hiu í Bandaríkjunum, dró
upp byssu og ógnaði þjálfara
sonar sins um helgina vegna
þess að honum þótti sonurinn
ekki fá næg tækifæri í liðinu.
Talsmaður lögreglunnar
staðfestir að komið hafi til
líkamlegra átaka milli föðurins
og þjálfarans áður en hinn fyrr-
nefndi dró upp byssu og ógnaði
þjálfaranum. Engin meiðsli
urðu á fólki en Derkotch reyndi
að flýja áður en lögreglan náði
honum. Hann bíður nú ákæru.
Trúnaður hindrar afhjúpun Samkvæmt
heimildum fór fram eftirlitsstarfsemi
allan sólarhringinn i herbergi sem fáir út-
valdir starfsmenn Útlendingaeftirlitsins
höfðu aðgang að.
nummki
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
1 samtölum við heimildarmenn Blaðs-
ins kemur fram að allt fram til dagsins
í dag haldi lögreglan utan um félaga-
skrá hinna ýmsu félagasamtaka þar
sem safnað er saman upplýsingum
og ljósmyndum um félagsmenn.
Samkvæmt heimildarmönnum
hefur iðulega verið fylgst með hópum
og samtökum sem staðið hafa í mót-
mælum hér á landi. Þannig hafi
verið hleraðir símar, einstaklingar
ljósmyndaðir og óeinkennisklæddir
lögreglumenn fylgdust með félags-
mönnum Falun Gong-samtakanna og
andstæðingum Kárahnjúkavirkjunar.
Ragnar Aðalsteinsson hæstarrétt-
arlögmaður telur grafalvarlegt ef
umræddir hópar hafa verið hleraðir
án leyfa. „Grunur leikur á um að víð-
tækar hleranir hafi átt sér stað gagn-
vart þeim aðilum sem ekki voru sam-
mála stefnu stjórnvalda,“ segir Ragnar.
„Ég óttast að staða þessara mála sé
mun alvarlegri heldur en maður átti
von á því allt eru þetta refsiverð brot.
Núna fer um menn hjá lögreglunni og
í gang fer hreingerning á skjölum og
gögnum.“
Starfsemi allan sólarhringinn
Heimildarmaður Blaðsins segir
að lögreglumenn á næturvakt hafi
stöðugt orðið varir við mannaferðir
í herbergi þar sem meintar ólöglegar
hleranir áttu sér stað. Þar hafi ekki átt
að vera nein starfsemi að næturlagi
en þannig hafi það hins vegar verið.
„Leyniherbergið var til og þangað
mátti enginn koma inn. í litla herberg-
inu þar inn af voru alls konar græjur
og dót til hlerunar. Ég veit að eitt og
annað fór þar fram sem heimildir
voru ekki fyrir.“
Eftirlit um nætur
Arnþrúður Karlsdóttir, fyrrverandi
rannsóknarlögreglumaður, þekkir
umrætt leyniherbergi. Hún staðfesti
jafnframt að fáir aðilar hafi haft þar
aðgang og slíkt hafi verið umtalað
meðal lögreglumanna. „Ég starfaði
aðallega á næturvöktum hjá Útlend-
ingaeftirlitinu á sínum tíma. Þá vann
ég við að fylgjast með fólki á kvöldin
og um nætur, óeinkennisklædd og
á ómerktum bíl.“ Arnþrúður segir
trúnað ríkja hjá lögreglumönnum
sem leiði til þess að hún geti ekki tjáð
sig um þá sem hún fylgdist með eða
hvort íslendingar voru þeirra á meðal.
Á heima í réttarkerfinu
Böðvar Bragason, lögreglustjórinn
í Reykjavík, telur útilokað að hler-
anir án heimilda hafi átt sér stað í
sinni starfstíð. Hann er hvatamaður
þess að málin verði upplýst og telur
óeðlilegt að heimildarmenn komi
ekki fram undir nafni. „Ég vil að
allar heimildir Blaðsins verði færðar
til ríkissaksóknara enda eiga þær
heima í réttarkerfinu," segir Böðvar.
„Það verður eitthvað að fara hreyfast
í þessum málum og til þess þurfa
dæmin að koma fram.“
Klár lögbrot
Ragnar bendir á að í fjölda tilvika
brjóti lögreglan lög varðandi símhler-
anir, þrátt fyrir að dómsúrskurðir
liggi fyrir. Samkvæmt lögum er
lögreglunni skylt að veita aðila sem
hleraður er upplýsingar um hlerun
eftir að hún hefur verið gerð. „Lög-
reglan hefur logið því til að slíkt sé
gert. Það er bara ekki rétt og dóm-
arar hafa vakið athygli mína á því,“
segir Ragnar. Böðvar tekur undir að
í sumum tilvikum hafi tilkynningar
borist seint til þeirra sem hleraðir
voru og ítrekar að ástand þessara
mála sé almennt í þokkalegu lagi.
Ég vann við að
fylgjast með
fólki á kvöldin
og um nætur
Arnþrúður Karlsdóttir
Fyrrverandi rannsóknar-
lögreglumaöur
Allar heimildir
Blaðsins verði
færðar til
rikissaksóknara
Böðvar Bragason
Lögreglustjórinn í
Reykjavík
Engin leynd
Böðvar býður fjölmiðlum að koma
og mynda umrætt leyniherbergi en
þar situr nú við störf lögfræðingur
á vegum lögreglunnar. Upptökubún-
aður lögreglunnar er þar ekki lengur.
„í herberginu er að finna borð, stól
og bókahillu. Tæknibúnað lögregl-
unnar er þar ekki að finna lengur
enda liggur hann ekki fyrir opnum
dyrum,“ segir Böðvar. Aðspurður
vildi Böðvar ekki veita heimild til að
mynda núverandi eftirlitsherbergi
lögreglunnar.
Æ
ii
ÍSLANDS
NAUT
<5tolt kjötmeutáráTU
íslendingur sem slapp frá banatilræði í Danmörku dæmdur:
Kraftaverkamaðurinn
lamdi varðstjóra
Haraldur Sigurðsson var dæmdur
í ellefu mánaða fangelsi í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær fyrir að
skalla lögregluvarðstjóra þannig
að hann hlaut heilahristing. Einnig
hótaði hann lögreglumönnum og
fjölskyldum þeirra lífláti.
Haraldur komst fyrst í fréttirnar
þegar hann var í Danmörku en þá
hrinti maður honum fyrir lestí Kaup-
mannahöfn. Hann datt á miðja tein-
ana um leið og lest kom aðvífandi.
Honum tókst á undraverðan hátt að
beygja sig niður áður en lestin fór
yfir hann. Lögreglan í Danmörku
sagði að svo virtist sem engill héldi
verndarhendi yfir honum þvi það
er afar ólíklegt að lifa slíkt af. Slúð-
urblöðin í Danmörku kölluðu hann
Kraftaverkamanninn og í kjölfarið
tók NFS viðtal við hann á götum
Kaupmannahafnar. Hann var at-
vinnulaus á þeim tíma og heimilis-
laus. Hann lifði á götunni og lýsti
erfiðu lífi heimilslausra fíkla á
götum Kaupmannahafnar. Þegar
hann skilaði sér aftur heim var
hann hnepptur í gæsluvarðhald og
þurfti að dúsa þar í viku í október.
Samkvæmt dómsorði hefur Har-
aldur margsinnis komist í kast við
lögin síðan hann var ungur maður.
Kraftaverki líkast Götublöðin í
Kaupmannahöfn kölluðu Harald
Kraftaverkamanninn en hann hefur
verið dæmdur fyrir líkamsárás á lög-
reglumann.