blaðið - 25.10.2006, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2006
blaöiö
UTAN ÚR HEIMI
RÚSSLAND
Óttast að írak liðist í sundur
Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, varaði við
því í gær að ef ekkert verði gert til að efla þjóðarein-
ingu í írak liðist ríkið í sundur og klofni í þrjú aðskilin
ríki súnníta, sjíta og Kúrda. Lavrov segir hættuna vera
yfirvofandi og því þurfi að þregðast fljótt við henni.
Blaðamanni rænt
Fjórir palestínskir vígamenn rændu Emilio Mor-
enatti, fréttaljósmyndara AP-fréttastofunnar, á
Gaza í gær. Mörgum fréttamönnum hefur verið
rænt á heimastjórnarsvæðinu. (ágúst var tveimur
starfsmönnum Fox rænt og haldið í tvær vikur.
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR
Ætlar að binda enda á trúverðugleikavanda
Ban Ki-Moon, utanríkisráðherra Suður-Kóreu og verðandi
aðalritari Sameinuðu þjóðanna, heitir að binda enda á „trúverð-
ugleikavanda” SÞ og brúa þær gjár sem nú eru milli aðildarríkja
þeirra. Moon segir að óeining og skortur á trausti hamli starfi
SÞ um þessar mundir.
Svíþjóð:
Frumvarp um að afnema einkarétt apóteka:
Nýir ráðherrar Vilja nikótínlyf í búðirnar
Fredrik Reinfeldt. forsætisráð- J J
Fredrik Reinfeldt, forsætisráð
herra Svíþjóðar, kynnti í gær nýja
ráðherra eftir afsagnir tveggja
ráðherra.
Lena Adel-
sohn Liljeroth
tekur við
embætti menn- ®
ingarmálaráð-
herra og Sten
Tolgfors við
embætti við-
skiptaráðherra.
Sænskir fréttamenn spurðu
nýju ráðherrana hvort þeir
hefðu greitt afnotagjöld sænska
ríkissjónvarpsins. Liljeroth
sagði að það hefði hún ekki
gert, hún sagði mann sinn
fá að sjá um þau útgjöld.
„Það er einkennilegt að fólk geti
gengið út í hvaða búð sem er og
keypt sér tóbak en ekki nikótín-
tyggjó," segir Katrín Júlíusdóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar.
„Það er spurning um heilbrigðismál
að gefa öllum kost á að selja þessi
nikótínlyf."
I frumvarpi um breytingu á lyfjal-
ögum sem Katrín hefur lagt fram á
Alþingi er lagt til að sala á nikótín-
lyfjum verði gefin frjáls þannig að
allir þeir sem hafa leyfi til sölu á tób-
aki geti einnig selt lyfin.
í greinargerð með frumvarpinu
kemur fram að í Svíþjóð hafi verið
uppi tillögur um sama efni og von-
ast er til þess að með auðveldara
aðgengi kjósi fleiri reykingamenn
nikótínlyf í stað tóbaks.
„Þetta eru vanú-
meðfarnar vörur“
Sigurbjörn Gunnarsson,
framkvæmdastjóri
Lyfju
Heilbrigðismál
að gefa sölu
nikótínlyfja
frjálsa
Katrín Júlíus-
dóttir, þingmaður
Samfylkingarinnar
Sigurbjörn Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Lyfju, er ekki sam-
mála frumvarpinu og bendir á að
núna gildi strangar reglur um sölu
lausasölulyfja. „Ef menn ætla að
fara að selja þetta hvar sem er þá er
það stefnubreyting. í dag eru það
sérfræðingar sem eru að afgreiða
þessi lyf og við teljum ekki að nik-
ótínlyf eða önnur lyf eigi að vera
eins og hver önnur búðarvara. Þetta
eru vandmeðfarnar vörur.“
Gríptu tækifærið!
Santa Fe, Terracan og Getz
bílaleigubílarnir komnir í sölu!
Tilboðsdagar frá 25.okt til 28.okt.
cngin atbo*g«n
tn^> no% \an
Verðdæmi
HYUNDAITERRACAN Turbo dísel, beinskiptur.
Árgerð 2005, ek.42 þús.
Ásett verð kr. 3.050.000
-» TILBOÐ kr. 2.650.000
kr. 37.900 á mánuði*
cng\n ötbo*é“n
100% 'an
Fng\n útboýéun
Engioo% 'an
® J
HYUNDAI GETZ GLS, beinsklptur.
Árgerð 2005, ek.42 þús.
AmH varð kr. 1.230.000
-> TILBOÐ kr. 980.000
kr. 14.000 á mánuði*
Verðdæml
HYUNDAI SANTA FE, beinskiptur.
Árgerð 2005, ek.52 þús.
Á.att varð kr. 2.550.000
-> TILBOÐ kr. 2.150.000
kr. 30.900 á mánuði*
*Bílasamningur: Engin útborgun og mánaöarlegar greiðslur í 84 mánuði. Afborganir háðar breytingum á vöxtum og gengi erlendra mynta.
*Bílar á mynd eru einungis dæmi.
Grjóthálsi 1, Reykjavík 575 1230.
Opið virka daga frá kl. 10 -18 og á laugardögum frá kl. 12 -16.
bilaland.is
Fíkniefnamál:
Fimm mán-
aða fangelsi
Maður á þrítugsaldri var
dæmdur í fimm mánaða fangelsi
í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær
fyrir að hafa haíf undir höndum
rúmlega 8o grömm af amfetam-
íni og um 230 grömm af hassi
sem fannst við húsleit. Maðurinn
játaði brotin en neitaði að hafa
ætlað efnin til sölu. Hann hefur
áður gengist undir dómsátt og
brýtur þar með skilorð. Dómur
hans er því óskilorðsbundinn.
Norðurskautsráðiö:
Valgerður í
Rússlandi
Mbl.is Valgerður Sverris-
dóttir utanríkisráðherra tekur
þátt í ráðherraíundi Norður-
skautsráðsins í Salekhard í
Norður-Rússlandi á morgun.
í ávarpi sínu á fundinum mun
utanríkisráðherra fjalla um
helstu viðfangsefni á dagskrá
ráðsins, svo sem áhrif loftslags-
breytinga og breytinga á náttúru-
fari norðursins. I því samhengi
mun ráðherrann meðal annars
vekja athygli á vaxandi auðlinda-
nýtingu og skipaflutningum
og nauðsyn þess að aðildarríki
bregðist við þessum breyting-
um með viðeigandi hætti.
Þjónusta:
Frakkar erfiðir
fyrir Japana
mbl.is Árlega fá tólf japanskir
ferðamenn alvarleg taugaáföll
vegna þeirrar þjónustu og þess
viðhorfs sem þeir mæta í París,
höfuðborg Frakklands. Tveir
af hverjum þremur þ^irra ná
sér að fullu en þriðjungur á
upp frá því við langvarandi
geðræn vandamál að striða.
„Viðkvæmir ferðamenn geta
brotnað saman þegar glansmynd-
ir þeirra af ákveðnu landi stand-
ast ekki í raunveruleikanum,“
segir danski sálfræðingurinn
Herve Benhamou. Hann segir
slik tilfelli verða æ algengari
og að þeim hafi nú verið gefið
nafnið „Parísar-einkennið".