blaðið - 25.10.2006, Síða 20

blaðið - 25.10.2006, Síða 20
„ 32 MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2006 blaðið fólk folk@bladid.net HVAÐ FINNST ÞER? Stendur á stæðunum? „Koma má til móts við aukna eftirspurn eftir bílastæðum með fleiri bílageymslum í miðbænum." Yngvi Pétursson, rektor Menntaskólans í Reykjavík Mikill skortur er á bílastæðum fyrir nemendur Menntaskólans í Reykjavík og Kvennaskólans í Reykjavík. Byrjaði að hreyfa sig eftir áskorun frá systrum sínum HEYRST HEFUR... Að Quentin Tarantino sé á leið til landsins í byrjun nóvember. Á sama tíma hefjast tökur á Hostel 2, mynd Eli Roth, en Quentin er einn af framleið- endum myndarinnar. Quentin var mjög hrifinn af Islandi eftir síðustu dvöl sína og fór hann mikinn í þætti Conan O'Brien eftir ferðalagið. Þar talaði hann um mjög drukknar íslenskar ofurfyrirsætur og ópaldrykk sem hann sagði vera versta drykk sem hann hefði smakkað. Hostel 2 á að gerast í Slóvakíu en verður að mestu tekin upp hér á landi. Söguþráður myndarinnar er svipaður fyrri myndinni nema núna eru aðalsöguhetj- urnar þrjár bandarískar konur. Fjölmiðlamaðurinn Sigmar Guðmundsson er mikill húmo- risti auk þess að vera næmur á hið spaugilega í daglegu lífi. Á síðu hans www. sigmarg.blogspot. com lýsir hann hinum dæmi- gerða vísitöluframbjóðanda sem flestir ættu að kannast við. Þetta er kómísk lýsing á vanda hinna hefðbundnu frambjóð- enda sem allir leggja áherslu á það sama en vilja alls ekki kann- ast við málefnin hver hjá öðrum. í lok færslunnar klykkir Sigmar út með að Ástþór Magnússon hefði að minnsta kosti sérstöðu en sérstaða er einmitt það sem marga frambjóðendur skortir. Avef Steingríms Sævarrs Ólafssonar, www.saevarr. blog.is, skúbbar hann hverri fréttinni á fætur annarri. Þar má til dæmis líta hið umtalaða bréf sem ónafn- greindir aðilar sendu formanni Sjálfstæðisflokks- ins og öðrum en í því má sjá alvarlega ásakanir. Sóley Tómasdóttir, varaborgarfull- trúi Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs, hefur verið dugleg að hreyfa sig undanfarið en fyrir hálfu ári hefði hún frekar misst af strætó en að hlaupa á eftir honum. „Ég er einmitt að breyta um hreyf- ingu núna, er að fara úr sumarfas- anum og yfir í vetrarfasann en ég keypti mér kort í líkamsræktarstöð í gær. Ég byrjaði að hreyfa mig í maí en fyrir það hafði ég ekki hreyft mig. Systur mínar skoruðu á mig í ein- hverja vitleysu í maí en við ákváðum að hlaupa tíu kílómetra í Reykjavíkur- maraþoni Glitnis. Fyrir það hefði ég frekar misst af strætó en að hlaupa á eftir honum. Ég hljóp því eins og vit- leysingur í sumar en núna er orðið svo kalt að ég nenni því ekki lengur." Erfiðara að hlaupa á bretti en úti Sóley segist hafa fundið fyrir tölu- verðri breytingu eftir að hún byrjaði að hreyfa sig. „Þetta er allt annað líf. Það er ótrúlegur munur á mér og núna er ég alveg ómöguleg ef ég fæ ekki að hreyfa mig. Ég var búin að prófa ým- islegt, til að mynda Boot Camp sem hentaði mér engan veginn. Ég ákvað að prófa JSB en ég hafði heyrt vel af þeim látið. Þar eru bara konur en alls konar konur og maður getur hreyft sig á eigin forsendum sem mér finnst alveg frábært. Það er ofboðslega góð aðstaða þar, hreint og fallegt. Ég fer klukkan 7.30 á morgnana sem mér finnst mjög gott, þá er maður búinn að þessu og getur tekist á við önnur verkefni. Ég er í eróbikktímum og svo ætla ég líka að hlaupa eitthvað á brett- inu til að halda mér við og gera eins mikið og ég get,“ segir Sóley og bætir við að henni finnist miklu erfiðara að hlaupa inni á bretti en að hlaupa úti. „Mér finnst svo gott að fara út að hlaupa og vera ein með sjálfri mér. Ég er aldrei ein, ég er alltaf innan um fullt af fólki og alltaf í samskiptum við alls konar fólk. Þetta er eini tím- inn sem ég hef fyrir sjálfa mig og ég næ að hugsa sem er rosalega gott.“ svanhvit@bladid.net Skorað á mig í vitleysu Sóley Tómasdóttir: „Systur mínar skoruðu á mig í einhverja vitleysu í mai en við ákváðum að hlaupa 10 kílómetra ÍReykja- víkurmaraþoni Glitnis. Fyrir það hefði ég frekar misst af straetó en að hlaupa á eftir honum." Bimmki COOPEFt TlFieS Gúmmívinnustofan SPdekk POIAR VETRARDEKK JEPPLINGADEKK POLAR RAFGEYMAR GÚMMÍVINNUSTOFAN Skipholti 35 105 RVK Sími: 553 1055 www.gummivinnustofan.is Opið: Mán - fös 8-18 • Lau 9-15 blaði FHJALST, ÓHÁO & ÓKEYPISl eftir Jim Unger Kemur frúin aftur, herra? 12-13 © Jim Unger/dist. by United Media, 2001 Á förnum vegi Hver stórnar heima hjá þér? Einar Árnason, nemi Það eru líklega bara foreldrar mínir. Ég stjórna eiginlega engu, nema kannski mínu herbergi. Katrín Ösp Þorsteinsdóttir, nemi Mamma stjórnar heima hjá mér og meira að segja með harðri hendi. Ég fæ nú samt að stjórna smá, en bara pínu. Birna Björg Níeldóttir, hús- móðir Ég stjórna heima hjá mér og ég mundi segja að ég væri frekar grimmurstjórnandi. Ég stjórna börnunum mínum og þau láta frekar vel að stjórn. Lovísa María Kristinsdóttir, nemi Mamma stjórnar heima hjá mér og ég fæ ekki að ráða neinu. Pabbi fær samt að stjórna sjálf- um sér. Kristín Sigurmundsdóttir, verslunarstarfsmaður Ég stjórna heima. Ég laða fram það besta í öllum og tekst það yf- irleitt. Ég hef stjórn á börnunum en maðurinn er erfiðari.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.