blaðið - 25.10.2006, Síða 24
3 6 MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2006
Valgerður sýnir
Einkasýning á verkum Valgerðar Hauksdóttur
stendur nú yfir í öllum sýningarsölum Hafnarborg-
ar, menningar- og listastofnunar Hafnarfjarðar.
Sýningin stendur til 30. október.
blaðið
Rjómi íslenskra hönnuða
Katrín Pétursdóttir Young er ein tuttugu og fjögurra áliugaverðustu hönnuða landsins. Hún kynnir verk
sín á hátíðinni Rjómanum á tíu mínútum milli klukkan tvö og þrjú á laugardag í Hafnarhúsinu, rétt
eins og fimm aðrir vöruhönnuðir. Nemendur Háskólans í Reykjavík og Listaháskóla Islands vinna sam-
eiginlega að verkefni um íslenska hönnun, þar sem rjómi íslenskrar hönnunar verður dreginn fram í
dagsljósið. Einnig kynna sex arkitektar, sex grafískir hönnuðir og sex fatahönnuðir verk sín.
Hsszmhe
Blómabörnin fá
frítt í leikhúsið
Þjóðleikhúsið býður öllum sem
heita blómanafni á leiksýningu í
kvöld, miðvikudagskvöld, því þá
eru liðin 62 ár frá tónleikum Flor-
ence Foster Jenkins í Carnegie
Hall í New York.
Florence Foster hefur stundum ■
♦ verið kölluð versta söngkona allra
tíma. Fiún naut samt umtalsverðra
vinsælda á fjórða og fimmta
áratugnum í New York og fengu
færri en vildu aðgang að árlegum
tónleikum hennar á Carlton-Ritz
hótelinu.
Á ferli sínum hélt Jenkins aðeins
þessa einu tónleika í Carnegie Hall
25. október 1944 fyrir troðfullu
húsi en hún lést mánuði síðar.
Tónleikar Florence voru ávallt hin
mesta skrautsýning en hún hann-
aði sjálf litríka og ofhlaðna búninga
sem hæfðu tónlistinni hverju sinni.
Þjóðleikhúsið frumsýnir á föstu-
dag leikritið Stórfengleg eftir Peter
Quilter sem byggir á ævi Florence.
Þjóðleikhúsið býður því þeim með
blómanafn að vera viðstaddir
æfingu. Þeir sem gefa sig fram
við miðasölu og uppfylla skilyrðin
geta fengið að sitja á æfingu á
miðvikudagskvöldið 25. október.
Sýningin hefst klukkan 20.00.
inarstúdiö opnað x Reykjavik
Hanna allt frá mat til atburða
ýtt hönnunarstúdíó
verður opnað í vikunni
í Reykjvík. Hönnuðirnir
sem standa að baki stúd-
íóinu eru allir nýútskrifaðir frá
vöruhönnunardeild Listaháskóla
íslands.
„Hugmyndin er að við verðum öll
með okkar vinnuaðstöðu hér, þar
sem við vinnum að okkar eigin
verkefnum sem og tökum að okkur
verkefni sameiginlega,“ segir Odd-
ný Magnea Arnbjörnsdóttir, ein af
hönnuðunum.
„Við vorum mjög samrýndur
bekkur í skólanum og höfum unn-
ið mikið saman og það hefur allt-
af gengið mjög vel, þannig að við
erum mjög bjartsýn með að láta
reyna á samstarfið.”
Stúdíóið hefur fengið nafnið
Grettisborg og það hefur aðsetur
í bakhúsi sem áður hýsti prent-
smiðju að Grettisgötu 5ia.
Það eru fjölbreytt og ólík verk-
efni sem meðlimir Grettisborgar
vinna að. Oddný er sjálf að vinna
áfram með lokaverkefni sitt en það
eru konfektmolar sem eru steyptir
í form líkamsparta. Aðrir meðlim-
ir Grettisborgar vinna meðal ann-
ars að vegvísum fyrir Isafjarðarbæ,
hönnun á stöndum fyrir Appelbúð-
ina og að gera stigahús Sjónarhóls,
sem er húsnæði fyrir langveik börn,
Oddný f stúdíóinu
Oddný M. Arnbjörnsdót-
tir hefur opnað hönnun-
arstúdíó með fétögunum.
aðgengilegra og áhugaverðara fyrir
börnin.
„Við erum opin fyrir alls konar
verkefnum og tökum að okkur
allskyns hönnunartengd verkefni.
Við getum hannað allt frá mat til
atburða, gerum vörur og störfum
með arkitektum og við erum opin
fyrir spennandi verkefnum. Við er-
um ólík og saman skipum við fjöl-
hæfan hóp ungra hönnuða," segir
Oddný og hvetur sem flesta til að
kíkja við á Grettisborg klukkan
17.00 á föstudaginn og kynna sér
það sem þau hafa upp á að bjóða.
Kraftlaust verk í
Borgarleikhúsmu
Leikritið Amadeus sem Borgar-
leikhúsið hefur tekið til sýningar
hefst á eilítið rokkaðan hátt með
innkomu Hilmis Snæs Guðnason-
ar í hlutverki Antonio Salieri. Á
sviðinu stendur líkkista í dimmum
kirkjugarði hulin reyk. Skyndilega
flýgur lokið af og upp stígur Salieri.
Mættur til að afhjúpa syndir sínar
fyrir mönnum og guði.
Það sem á eftir fylgir er hins veg-
ar ein gegnumgangandi and-stíg-
andi. Það sem byrjar með hvelli
endar því miður með snökti.
Verkið Amadeus, eftir enska leik-
skáldið Peter Shaffer, segir frá sam-
skiptum Salieri, hirðtónskálds aust-
urríska keisarans, og tónskáldsins
Mozarts. Samnefnd kvikmynd var
gerð eftir verkinu á miðjum níunda
áratugnum, hlaut mikla athygli og
fékk meðal annars átta Óskarsverð-
laun.
1 uppsetningu Borgarleikhúss-
ins er megináherslan lögð á per-
sónu Salieri sem fékk það erfiða
hlutskipti í lífinu að standa í skugg-
anum af Mozart. Hilmir er ansi
sannfærandi sem hinn lævísi en
jafnframt kaldlyndi Salieri sem
smám saman verður beiskjunni og
hatrinu að bráð.
Áherslan á Salieri verður hins
vegar til þess að aðrar persónur fá
minna vægi og þar á meðal Mozart
sjálfur, leikinn af Víði Guðmunds-
syni. Möguleikar Víðis til að skapa
heildstæða persónu úr Mozart eru
afar takmarkaðir og leikur hans
ber þess merki. Persónan verður
hálfkjánaleg og nær aldrei að öðl-
ast dýpt og þar af leiðandi samúð
hjá áhorfendum. Lokasena verks-
ins þegar Mozart berst við halda
Amadeus
Borgarleikhúsið
Eftir: Peter Shaffer Þýðing: Valgarður Egilsson
og Katrín Fjeldsted Leikstjóri: Stefán Baldursson
Leikmynd: Þórunn S. Þorgrímsdóttir Leikarar:
Hilmir Snær Guðnason, Víðir Guðmundsson,
Birgitta Birgisdóttir, Ellert Ingimundarson, Gunnar
Hansson, Halldór Gylfason, Jóhanna Vigdís Arn-
ardóttir, Orri Huginn Agústsson, Pétur Einarsson,
Theodor Júlíusson og Sigrún Edda BJörnsdóttir.
Leikhús ★★
í sér í lífinu til klára sálumessuna
verður því bara ótrúlega langdreg-
in og jafnvel yfirdrifin í dramatík
svo ekki sé fastara að orði kveðið.
Birgitta Birgisdóttir sem leikur
Konstönsu, konu Mozarts, er undir
sama hattinn sett og nær aldrei að
verða meira en einhvers konar inn-
gangur að persónu.
Þrátt fyrir góða spretti nær verk-
ið því ekki að hrífa mann með sér
inn í þennan heillandi heim tónlist-
ar og snilligáfu. Þarna er allt fyrir
hendi til að skapa prýðisgott íeik-
verk en niðurstaðan verður hins
vegar hálf flatneskjuleg og lang-
dregin á köflum.
hoskuldur@bladid.net