blaðið

Ulloq

blaðið - 21.12.2006, Qupperneq 1

blaðið - 21.12.2006, Qupperneq 1
257. tölublað 2. árgangur h fimmtudagur 21. desember 2006 FRJÁLST, ÓHÁÐ & ■PLOTUR Jóel Pálsson tónlistarmaður gaf nýverið út sína fjórðu sólóplötu. Á henni má finna djass, raftónlist, rokk og kirkjutónlist | s(ða36 ■ ÍPRÓTTIR Henrik Larsson gat ekki hafnað tilboði um að leika með Manchester United. Hann stimplar sig inn í byrjun næsta árs | síða38 Hefnir dauða hunds síns á óvenjulegan hátt: Bóndi reisti níðstöng ■ Keyrt yfir hundinn ■ Telur um viljaverk að ræða ■ Níðstöngin kærð Eftir Val Grettisson valur@bladid.net Þorvaldur Stefánsson, bóndi í Otradal, reisti Óskari Björnssyni, íbúa á Bíldudal, niðstöng eftir að sá síðarnefndi keyrði yfir hundinn Goða sem Þorvaldur átti. Hundurinn drapst af þeim sökum. Þorvaldur segir Óskar hafa keyrt yfir hund sinn viljandi og reisti því níðstöngina. Því tók Óskar ekki þegjandi og hefur nú kært Þor- vald fyrir athæfið. „Ég fór í skýrslutöku í dag vegna níðstang- arinnar," sagði Þorvaldur í gær. Þó hann hafi reist níðstöngina fyrir nokkrum dögum á það sér langan aðdraganda því keyrt var yfir hund- inn í nóvember á síðasta ári. Tæpri viku eftir að Þorvaldur reisti níðstöngina komu lögreglu- menn að máli við hann en þá hafði Óskar kært níðstöngina. Þorvaldur segist hafa beðið eftir að Óskar gerði hreint fyrir sínum dyrum gagnvart sér en segir að það hafi hann aldrei gert. Fyrir nokkrum dögum hittust þeir svo og deildu um dauða Goða. Eftir það ákvað Þorvaldur að reisa Óskari níðstöngina þar sem honum þótti Óskar ekki axla ábyrgð og segir hann hafa hreytt í sig ónotum. Á toppi níð- stangarinnar er húðflett nautshöfuð og á henni er vísa þar sem Þorvaldur óskar þess að landvættir reki Óskar úr landi eða gangi af honum dauðum. Sjá einnig síðu 8 Brúin fór í sundur Litlu mátti muna að illa færi þegar vegurinn við brúna yfir Djúpadalsá fór í sundur og brúin stóð eftir án landtengingar. Ökumaður kom að brúnni og áttaði sig ekki á aðstæðum fyrr en of seint og lenti því í ánni. „Við reyndum að vara ökumanninn við en hann hefur ekki áttað sig á því þar sem hann keyrði yfir brúna og hafnaði í ánni,“ segir Sigurður Jónsson, verkstjóri hjá Vegagerðinni. Maður og hundur hans voru í bílnum en þeir björguðust báðir. Sjá einnig síðu 12. Nr. 35624 Stæröir: 40-47 Litir: brúnt| svart jm Verú: 10.995 kr. NEOFLEXOR Nr. 23904 Stæröir: 40-47 Litir: brúnt H svart m Veró: ^ 11.995 kr. NEW YORK Nr. 35614 Stæröir: 40-47 Litir: brúnt H svart h Veró: 12.995 kr. NEW YORK Nr. 35864 Stæröir: 40-47 Litir: brúnt H svart Veró: 15.995 kr. CENTURY Nr. 34464 Stæröir: 40-47 Litir: black ■ koniak ■ Veró: ^ 13.995 kr. NÝ SENDING AF BUSINESS COMFORT 'SENDUM I PÓSTKRÖFU » sída 34 Dómur alþýöunnar Kristján Freyr Halldórs- son, verslunarstjóri í Eymundsson, valdi bók Eiríks Norðdahl Eitur fyrir byrjendur sem þá bestu, en Bragi Ólafs vann. VEÐUR » síða 2 Stormur Búist er við stormi víða um land. Vaxandi sunnanátt, víða 18-23 m/ssíðdegis. Rigning, einkum sunnan- og vestanlands. Hiti 7 til 15 stig í dag. ORÐLAUS -■> síða 52 Sá skrípó Jóhann G. Jóhannsson leikari fór síðast í bíó þegar hann sá teiknimyndina Over the Hedge. Tími hans þessa dagana fer í að gera upp húsið. ecco Kringlan Laugavegur Smáralind

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.