blaðið - 21.12.2006, Blaðsíða 8
Margar tegundir af gjafakörfum MlhGÍIsuhúsið
með spennandi sælkeravorum . Skólavöröustfg, Kringlunni, Smáratorgi, Lágmúla & Selfossi
náttúrulega
Gjafakarfa sælkerans
*
TÆKIFÆRI
SMÁAUGLÝSINGAR
blaðiðH
SMAAUGLYSINGAR@BLADID.NET
8
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2006
blaöiö
UTAN ÚR HEIMI iitikt.ua,'n J Abramovich segir af sér Roman Abramovich hefur sagt af sér sem héraösstjóri Chu- kotka-héraðs í norðausturhluta Rússlands. Abramovich hefur fjárfest fyrir milljarða og nýtt tengsl sín við rússnesk stjórn- völd til að berjast gegn mikilli fátækt i héraðinu.
Bóndi hefnir dauða hunds síns með óvanalegum hætti:
Kærður fyrir níðstöng
■ Sakar mann um hundsdráp ■ Segir níöstöng áfellisdóm
Níðstöng með nautshöfði Þorvaldur Stef-
ánsson, bóndi í Otradal, reisti níðstöng vegna
forkastanlegrar hegðunar að eigin mati.
Eftir Val Grettisson
valur@bladid.net
„Ég fer í skýrslutöku í dag vegna
níðstangarinnar," segir Þorvaldur
Stefánsson, bóndi á Otradal, en
hann hefur reist Óskari Björnssyni
níðstöng vegna meints hundsdráps.
Níðstöngin var reist þann 9. des-
ember en lögreglan kom að máli
við Þorvald fyrir þremur dögum
vegna hennar. Á toppi stangarinnar
er húðflett nautshöfuð. 1 Islendinga-
sögum er niðstöng það versta sem
getur komið fyrir mannorð manna.
„Hann keyrði yfir hundinn minn
í nóvember á síðasta ári,“ segir Þor-
valdur en hann sakar manninn um
að hafa ekið yfir hundinn Goða vilj-
andi. Samkvæmt Þorvaldi ók Óskar
dráttarvél þegar hundurinn var á
veginum. Þorvaldur og fjórir aðrir
menn urðu vitni að atvikinu.
Óskar kom akandi og mennirnir
fóru út í vegkant. Hundurinn varð
eftir á götunni og sakar Þorvaldur
Óskar um að hafa sýnt vítavert gá-
leysi þegar hann ók yfir dýrið og
stakk svo af.
„Sjálfur gaf ég lögregluskýrslu um
máíið á sínum tíma en gaf mann-
inum ákveðinn tíma til að gera
hreint fyrir sínum dyrum gagnvart
mér,“ segir Þorvaldur og vill meina
að Óskar hafi aldrei gert það. Svo
hittust þeir fyrir tilviljun nokkru
síðar og segir Þorvaldur að þá
hafi Óskar hreytt i sig ónotum og
neitað að axla ábyrgð vegna dauða
dýrsins.
Þorvaldur segir hegðun Óskars
hafa gengið fram af sér og því hafi
hann reist stöngina. Á níðstöngina
ritar hann líkt og Egill Skallagríms-
son þegar hann reisti níðstöng til
að hrekja Eirík konung blóðöx og
Gunnhildi drottningu frá völdum
í Noregi. Sjálfur er Þorvaldur af-
komandi Egils og segir gjörninginn
greinilega sverja sig í ættina.
Á stönginni stendur eftirfarandi
vísa og er nær orðrétt upp úr Eg-
ilssögu: „Sný ég níði þessu á land-
vættir þær er land þetta byggja, svo
að allar fari þær villar vegar, engi
hendi né hitti sitt inni, fyrr en þær
reka Óskar Björnsson úr landi eða
gangi af honum dauðum.“ Svo
endar hann á setningunni: „Megi
hann rotna í víti.“
Viðbrögðin hafa ekki látið á sér
standa en Þorvaldur segist hafa
Hundurinn Goði Þorvaidur segir
hundinn Goða hafa verið góðan og
að dauði hans sé mikið harmsefni.
fengið nafnlaust símtal þar sem
maður hótaði honum striði ef það
væri það sem hann vildi.
Sjálfur vildi Óskar Björnsson
ekki tjá sig efnislega um málið en
staðfestir að hann hafi kært stöng-
ina til lögreglu. Ekki er vitað til
þess að menn hafi verið dæmdir
fyrir að reisa níðstöng en sjálfur
segir Þorvaldur stöngina vera tákn-
ræna mótstöðu við hegðun Óskars.
í þessu felist engin hótun, aðeins
áfellisdómur.
Jólasýning í
Galleríi Fold
Opið til kl. 22
Sigrún Eldjárn
Sara Vilbergsdóttir
Verk eftir fjölmarga listamenn gallerísins
Vaxtalaus lán til listaverkakaupa
Kringlunni, 2. hæð, sími 5680400
Rauðarárstíg 14, sími 5510400 • www.myndlist.is
Gallerí Fold • Rauðarárstíg og Kringlunni