blaðið - 21.12.2006, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2006
19
h
blaðið
Actavis:
Verksmiðja
á Indlandi
Actavis keypti nýverið sína
fyrstu lyfjaverksmiðju á Indlandi
sem sérhæfir sig í framleiðslu
og þróun samheitalyfja. Einnig
hefirr Actavis opnað nýja þróun-
areiningu á Indlandi sem mun
sérhæfa sig í þróun virkra lyfja-
efna. Um það bil rso starfsmenn
starfa í þessum nýju einingum
á Indlandi og markmið verk-
smiðjunnar verður framleiðsla
á 4 milljörðum taílna árlega.
Bandaríkin:
Fjölgar
hermönnum
George
Bush Banda-
ríkjaforseti
íhugar nú
þann kost að
fjölga í herliði
Bandaríkja-
hers í írak til
skamms tíma.
Hann segir að fjölgunin myndi
efla herinn í langtímabaráttu
sinni gegn öflum hryðjuverka-
manna. I viðtali við Washington
Post segir Bush að hann hafi
beðið varnarmálaráðherra sinn
að leggja mat á hugmyndirnar.
Kenía:
Misnota tólf
ára stúlkur
Niðurstöður nýrrar skýrslu
UNICEF benda til þess að kyn-
ferðisleg misnotkun á tólf til
átján ára börnum í Keníu hafi
aukist gríðarlega að undanförnu.
Rannsókn UNICEF náði til
fjögurra strandhéraða og var
framkvæmd á eins árs tímabili.
Þar kemur fram að fimmtán
þúsund stúlkur, eða þrjátíu
prósent stúlkna í héruðunum,
selja blíðu sína gegn greiðslu.
Flestir viðskiptavinir stúlknanna
eru kenískir, ítalskir, þýskir og
svissneskir karlmenn.„Það er
erfitt að viðurkenna að þessar
tölur séu réttar en sannleikurinn
verður að koma fram til að hægt
sé að bjarga börnum okkar,“ segir
Moody Awori, varaforseti Keníu.
Suðiuiandsbraut 54 - 108 Reykjavík Fvrstu bœkurnar tvær komu út í
Simi: 565 6500 - www.f jolvi.is fyrra og nutu fádœnia v'msœlda.
Þriðja og fjórða bókitt í röðinni um Narníu
Töfraheimur frá upphafi tímans, fullur af
undursamlegum skepnum, talandi dýrum og
trjám sem eiga það til að rifa sig upp og dansa.
Fá ævintýri hafa notið jafn mikilla vinsælda og sögurnar
um Narníu. Nú heldur ævintýrið áfram um þessa
stórkostlegu töfraveröld í bókunum eftir C. S. Lewis.
nornm
Töftatoannsms
c Itvas
FJOLVI
■ ... ■
*. £ %