blaðið

Ulloq

blaðið - 21.12.2006, Qupperneq 4

blaðið - 21.12.2006, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2006 blaðið Fleiri stæði Borgaryfirvöld hafa opnað ný bílastæði á Austurbakka og grunni Faxaskála sem verða opin fram yfir jól. Bíleigendur sem nýta sér þau þurfa ekki að hafa áhyggjur af að greiða fyrir að leggja bílnum þvi stæðin verða gjaldfrjáls. MANNRETTINDI Þúsund bréf Um þúsund bréf voru skrifuð í bréfamaraþoni íslands- deildar Amnesty International. Bréfin eru skrifuð til varnar einstaklingum og samfélagshópum í hættu og lutu að ofbeldi gegn konum, mannréttindabrotum í nafni stríðsins gegn hryðjuverkum og málefnum flóttafólks. Greitt fyrir viðtöl Sumir heimildarmanna fréttaskýringaþáttarins Kompáss hafa fengið greitt fyrir upplýsingar. Þetta sagði Sigmundur Ernir Rúnarsson fréttastjóri í fslandi í bítið í gær. Hann vísaði á bug að nokkur hefði fengið fíkniefni eins og sagt var í Kastljósi á þriðjudagskvöld. Hann segir hafa tíðkast að greiða fyrir viðtöl, meðal annars á RÚV, því vísar Elín Hirst fréttastjóri á bug. Lög um afnám úrskurðar kjaradóms: Hæstiréttur dæmi „Ég á nú von á að stjórnvöld áfrýi þessum úrskurði þótt ég viti ekkert um það. Það er mikilvægt að fá niðurstöðu Hæstaréttar í svona máli sem varðar grundvall- aratriði og stjórnarskrána." Þetta segir Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, um úrskurð Héraðsdóms Reykja- víkur um meðferð launamála dómara. Lög um afnám úrskurðar kjaradóms hvað varðar dómara brjóta í bága við grunnreglur um sjálfstæði dómstóla samkvæmt úrskurði héraðsdómsins og þarf ríkið þess vegna að greiða Guð- Bentum á hættuna Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaöur Samfylkingarinnar jóni St. Marteinssyni héraðsdóm- ara, sem höfðaði mál gegn ríkinu, vangreidd laun. Björn Bjarnason dómsmálaráð- herra vildi ekki tjá sig um málið. Ekki náðist í Geir H. Haarde for- sætisráðherra og Árni Mathiesen fjármálaráðherra svaraði ekki skilaboðum vegna málsins. veidikortid.is voiuir\wi U14.IO 29vatnasvæði fyrir aðeins 5000 krónuri Handbók meö ítarlegum upplýsingum, kortum o.fl. fylgir! Fæst á ESSO, í veiðivöruversiunum og á www.veidikortid.is Minkapelsar Kanínupelsar Ullarkápur Úlpur ||j Jakkar Ullarsjöl Húfur og hanskar álir' Mörkinni 6, Sími 588-5518 Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-18 Sunnudaga frá kl. 13-17 Bréf Jóhanns R. Benediktssonar í nafni IIS-NATO: Fkki fleiri bréf frá eyniþjónustunni Nýjar reglur um IIS Sýslumaöurinn fór ekki fram úr sér Starfsmenn utanríkisráðuneytis skammist sín .... - - ■ Eftir Gunnhíldi Örnu Gunnarsdóttur gag@bladid.net Sýslumaðurinn á Keflavíkurflug- velli hefur tilkynnt utanríkisráðu- neytinu að hann muni ekki skrifa fleiri bréf í nafni Icelandic Intell- igence Service (IIS), eða íslensku leyniþjónustunnar. Grétar Már Sigurðsson, ráðuneytisstjóri utan- ríkisráðuneytisins, segir að skýra þurfi reglur um notkun vinnu- heitisins og taka ákvarðanir um notkunina áður en það rati á bréf. Sama þó starfsheitin auðveldi störf sýslumannsembættisins. „Það er ekki vinnusparnaður þurfi menn að skýra notkun vinnuheita. Þau mega ekki valda misskilningi,“ segir Grétar. Spurður af hverju það hafi dregist í tvö ár að kynna utan- ríkismálanefnd notkun vinnuheitis- ins segir hann svo ekki vera: „Þetta er ekkert til að upplýsa um því aldrei hefur verið tekin ákvörðun um að eitthvað væri til sem heitir Icelandic Intellgence Service. Aldrei. Stofnunin er ekki til.“ Jóhann fór ekki fram úr sér Grétar svarar aðspurður að Jó- hann R. Benediktsson sýslumaður hafi ekki farið fram úr sér þegar hann sendi bréf til norska varnar- málaráðuneytisins og norsku leyni- þjónustunnar og ritaði undir sem framkvæmdastjóri IIS. Blaðamaður ræddi einnig við Grétar Má í fyrra- dag. Hann vildi skoða málið nánar og bað Jón Egill Egilsson, skrif- stofustjóra varnarmálaskrifstofu, að svara spurningum. Þau mistök urðu að svör Jóns voru eignuð Grét- ari. Jón Egill sagði Davíð Oddsson hafa tekið ákvörðun um stefnubreyt- inguna. Hún hafi ekki verið kynnt öðrum ráðherrum en þeim sem gegnt hafa starfi utanríkisráðherra á eftir Davíð. Hún hafi ekki verið kynnt utanríkismálanefnd. Leynimakk Sjálfstæðisflokks Steingrímur J. Sigfússon, for- maður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs og utanríkismála- nefndarmaður, segir fullkomlega óeðlilegt að ákvarðanir um titla- notkunina séu ekki lagðar fyrir utanríkismálanefnd. Nú hafi aftur komið á daginn að menn leiki slíka leiki á bak við tjöldin. Heildstæða rannsókn þurfi á þessum vinnu- brögðum. „Það skyldi þó ekki vera að það hafi verið minna rof í njósna- starfseminni heldur en menn hafa haldið fram?“ Æ ljósara verði að tiltekin stjórnmálaöfl, Sjálfstæðis- flokkurinn, standi að baki slíkri starfsemi. Greiningardeild í góðu Össur Skarphéðinsson situr fyrir Samfylkingu í utanríkismálanefnd. Hann telur að með því að hætta að nota nafngiftina IIS á erlendri grund sé ljóst að starfsmenn utanríkis- ráðuneytisins skammist sín og telji sig hugsanlega hafa farið yfir mörk sem þeim hafi verið dregin. Hann gerir þó ekki athugasemd við orða- notkunina Icelandic Intelligence Service. „Hins vegar myndi ég rjúka upp til handa og fóta ef yfirvöld myndu kalla þetta leyniþjónustu á okkar ástkæra ylhýra. Það orð hefur unnið sér annan þegnrétt i málinu og hefur í mínum huga töluvert aðra merkingu en söfnun og grein- ing upplýsinga.” Kynna hefði átt utanríkismála- nefnd málið. Málinu lokið SæunnStef- ánsdóttir, rit- ari Framsókn- arflokksins og fulltrúi í utanríkismála- nefnd, segir titilinn sem Jóhann noti óheppilegan. Það segi sína sögu að hann verði ekki not- aður framvegis. Heppilegra hefði verið ef Davíð Oddsson hefði borið ákvörðun- w5 Sjálfstæðisflokk- urinn stundar leynistarfsemi Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna ý______________________ Gerirekkiathuga- semd við orða- notkunina IIS Össur Skarphéöinsson, þingflokksformaður Samfylkingar Búið er að grípa til ráðstafana Sæunn Stefánsdóttir, ritari Framsóknarflokks m ina undir nefndina. „En eins og málum er komið núna finnst mér ekki ástæða til þess, þar sem búið er að grípa til ráðstafana og vinnu heitin hafa verið lögð niður.“ Ic.tandlc iMcMoncc Servicc NATO -4 * Jóhann R. Benediktssoa sýslumaður é Keflavikurflugvelll. skrlter tU Noregs: p-L Bréf frá leyniþjónustunni swtAro o,. ZZOOZL,. Allir viðskiptavinir sem versla fyrir 50.000 kr.eða meira fá að gjöf 5.000 kr. gjafabréf í verslun okkar við Laugalæk • sími 553 3755 vEPÍdisrinn

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.