blaðið - 21.12.2006, Page 22

blaðið - 21.12.2006, Page 22
22 FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2006 blaðið // Sjávarlóðin" á Álftanesi Henrik Thorarensen hefur farið mikinn í fjölmiðlum undanfarið. Haft er eftir honum að ég vaði yfir hann á skítugum skónum og mis- beiti valdi mínu sem forseti bæjar- stjórnar Álftaness. HenrikThoraren- sen hefur aðgang að fjölmiðlavaldi og hefur valið að leggja málstað sinn sem almennur borgari fyrir dómstól götunnar. Fyrir þeim dómi vitnar hann um að ég sé skrýtinn, siðlaus maður sem taki ekki rökum og sé í persónulegri pílagrímsför. Hann segir að ég hafi með forkastanlegum hætti misnotað vald mitt, stundað yfirhylmingar vegna persónulegra hagsmunamála, reynt að ýta bæjar- félaginu út í dýrkeypt skaðbótamál, slegið eign minni á lóð sína, beitt lygi, frekju og yfirgangi, byggt sund- Aðsendar greinar Blaðiö birtir aðsendar greinar frá þeim, sem taka vilja þátt í þjóðfélagsumræðunni með virkum hætti. Greinum skal skila inn með tölvupósti til greinar@bladid.net og er æskilegt að þær séu ekki lengri en 600 orð. Greinum skal fylgja mynd af höfundi ásamt kennitölu hans og símanúmeri. Blaðið áskilur sér rétt til að breyta fyrirsögnum og millifyrirsögnum og getur ekki ábyrgst að greinar birtist á tilteknum tíma. Eins er birting greina háð því að ritstjórn telji þær innan ramma laga og almenns velsæmis. Grand Prix Verðlaunastóllinn sem var hannaður af Arne Jacobsen árið 1955. Nú fáanlegur í mjög takmörkuðu upplagi - og aðeins til 1. mars. epcil laug, haldið grillveislur, lætur að því liggja að ég hafi kveikt í húsum, grafið skurði, staðið fyrir aðförum, hótunum og málaferlum vegna lóðarinnar, lokað aðkomunni með bílum og svifflugum og sé í broddi þeirrar stjórnsýslufylkingar sem brjóti á hinum almenna borgara. Staðreyndin er að Henrik Thor- arensen, sem ólmur virðist vilja verða granni minn, hef ég aldrei hitt prívat og persónulega eða átt nokkurn orðastað við. Hugmyndir hans um mig sem persónu hljóta því að vera byggðar á afspurn og ég hef velt því fyrir mér hvaðan hann hefur sínar heimildir. Henrik Thor- arensen bíður eftir úrlausn frá sveit- arfélaginu Álftanesi vegna lóðar sem hann festi kaup á þrátt fyrir að byggingarleyfi lægi ekki fyrir. Það er staðreynd að meirihluti sjálf- stæðismanna, sem hélt um stjórn- artaumana á Álftanesi þangað til sl. vor, afgreiddi ekki byggingarleyfi vegna Miðskóga 8 fyrir kosningar. Hvers vegna ekki? Henrik Thorar- ensen fullyrðir að ég sé valdamikill og stjórni öllu hér. Hann hefur þó ekki sýnt fram á með haldbærum rökum eða gögnum að ég hafi með óeðlilegum hætti beitt valdi mínu sem forseti bæjarstjórnar Álftaness, enda hef ég ekki gert það. Einhverra hluta vegna velur Hen- rik Thorarensen að vega að heiðri mínum með aðferð sem bendir fyrst og fremst til þess að hans málstaður sé á sandi byggður. Vissulega svíður undan slíkum svívirðingum, ekki síst þegar maður leggur sig fram um að sinna störfum sínum á heiðarlegan hátt. Eftirfarandi ummæli Henriks Thorarensen eru ekki sannleikanum samkvæm eða á rökum reist: 1. Henrik Thorarensen: „Kristján hefur persónulega staðið í mála- ferlum vegna eignarhalds á lóðinni árum saman“. Athugasemd: Engin málaferli hafa enn farið fram vegna eignarhalds. Ég stefndi sýslumanni vegna þinglýsingar á lóðinni þar sem eigendur jarðarinnar, og þar með ég sem á um 2,5% af henni, afsöl- uðu sér aldrei lóðinni til þeirra sem þinglýstu henni á sig. Lóðin er því sjálftökulóð. Þarna voru gerð þing- lýsingarmistök sem að mati dómara voru fyrnd. 2. Henrik Thorarensen: „Vegna aðgerða Kristjáns hefur málið í tví- gang verið sent til umsagnar Skipu- lagsstofnunar undanfarin misseri og í áliti stofnunarinnar kemur fram að fyrirhuguð bygging brýtur ekki í bága við náttúruverndarlög“. Athugasemd: Skipulagsstofnun hefur gefið út þrjú álit. í fyrsta álit- inu kom fram að deiliskipuleggja þyrfti lóðina upp á nýtt áður en hún fengi byggingarleyfi. Að kröfu D-list- ans var kallað eftir nýju áliti sem var þvert á hið fyrra. Ég kallaði þá eftir endurskoðun á þessu nýja áliti þar sem fjölmörg efnisatriði þar voru beinlínis röng hjá Skipulagsstofnun. Niðurstaðan varð sú sama og athuga- semdum mínum lítt svarað. Nú hefur komið í ljós að aðilar vensl- aðir málinu komu með formlegum hætti að seinni álitunum. Það rýrir trúverðugleika álitanna og skýrir hugsanlega vinkilbeygju Skipulags- stofnunar. Stofnunin gaf eingöngu út það álit að deiliskipulagið væri í gildi. Það er skáldskapur hjá Henriki að stofnunin hafi vitnað í náttúruverndarlög. 3. HenrikThorarensen: „Við Skóg- tjörn standa mörg hús í svipaðri af- stöðu til tjarnarinnar og fyrirhugað hús“. Athugasemd: Þetta er rangt hjá Henrik. Ekkert hús stendur nær fjörubakka en um 12 -15 metra á meðan fyrirhugað hús hans stendur um 1 metra frá sjávarborði á flóði. Um 1/3 lóðarinnar er neðan fjöru- kambs og einnig þarf að koma fyrir göngustíg meðfram fjörunni. Er í einhverjum tilvikum réttlætanlegt að leyfa byggingu íbúðarhúss svo nálægt friðlýstri fjöru? Eðlilega máls- meðferð fremur en dómstól götunnar Kristján Sveinbjörnsson Það er hlutskipti Henriks Thor- arensen að ná fram byggingarleyfi á lóð sem hann keypti þrátt fyrir að hún fari að þriðjungi undir sjó á flóði. Það verður honum vart til framdráttar að hafa uppi per- sónulegan óhróður um mig eða verða uppvís að ósannsögli æ ofan í æ. Hef ekki ástæðu til að ætla annað en að Henrik Thorarensen hafi verið að fullu upplýstur um vafasama stöðu lóðarinnar áður en hann festi kaup á henni. Hann kaus að taka áhættuna og reynir nú með andstyggilegum hætti að réttlæta sinn málstað. Við ein- falda vettvangsskoðun er augljós- lega ekki pláss fyrir hús á lóðinni nema með því að fylla upp í hluta Skógtjarnarinnar. Teikningum hans var hafnað vegna þess að þær standast ekki skilmála. Ekki hefur verið tekið af skarið með heimild til að byggja hús á svæðinu sem nefnthefur verið Miðskógar 8 enda málið mjög umdeilt og viðkvæmt vegna stöðu minnar, sem ég hef þó aldrei misnotað á nokkurn hátt. Hugsanlegt er að úrskurðarnefnd skipulagsmála og dómstólar skeri úr um málið. Það er eðlilegur far- vegur ef menn eru ekki sáttir. Það sæmir ekki heiðarlegu fólki að leita til dómstóls götunnar með þeim hætti sem gert hefur verið síðustu vikur. Höfundur er forseti bæjarstjórnar á Álftanesi. Skeifunni 6 / Sími 568 7733 / Fax 568 7740 / epal@epal.is / www.epal.is

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.