blaðið - 21.12.2006, Blaðsíða 43

blaðið - 21.12.2006, Blaðsíða 43
blaðið FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2006 43 Geðheilbrigðis- átak Á sextándu milljón króna hefur safnast í söfnunarátaki Spari- sjóðsins til styrktar átta frjálsum félagasamtökum til verkefna við uppbyggingu, fræðslu og þróun í geðheilbrigðismálum. Átakinu lýkur á aðfangadag. Pað kostar ekkert fyrir viðskiptavini Sparisjóðsins að taka þátt í söfn- uninni þar sem þeir þurfa aðeins að velja eitt af verkefnunum átta á heimasíðu hans (spar.is) eða í heimabanka og hlýtur það verkefni sem valið er þúsund króna styrk. Hægt er að leggja fram viðbótar- framlag auk þess sem allir lands- menn geta tekið þátt með því að hringja í söfnunarsímann 901 1000. Nánari upplýsingar um verkefnin er að finna á heimasíðu Sparisjóðsins. Heilsurúm frá Lattoflex Winx- heilsurúm eru komin á markað hér á landi. Ný heilsurúm Eirberg ehf. hefur hafið sölu á Winx- heilsurúmum frá þýska fyrirtækinu Lattoflex sem hefur lengi verið í fararbroddi í þróun heilsurúma. Winx-heilsurúmin eru talin uppfylla fjögur skilyrði sem eru forsenda rétts stuðnings við bak og þess að fólk vakni endurnært og úthvílt að morgni. Rúmin bæta blóðflæði með vöðva- slakandi örhreyfingum fyrir tilstilli sérhannaðra vængja sem virkja eðlilegar hreyfingar f svefni og skila hreyfiorkunni mjúklega til líkamans. Axla- og mjaðmasvæði eru mýkri til að halda bakinu beinu og losa sþennu. Þrískipt fjöðrunarkerfi stuðlar að endurnærandi svefni og Winx-vængirnir veita líkamanum breytilegan stuðning óháð þyngd. Þá eru álagspunktar hverfandi vegna vængjanna sem Lattoflex hefur þróað ásamt Evo-dýnum sem eru hannaðar með tilliti til lög- unar líkamans. Rúmin eru að auki stillanleg undir baki og öxlum eftir breytilegum þörfum hvers og eins, og þau fást einnig með slakandi nuddkerfi. SMÁAUGLÝSINGAR blaöiöa SMAAUQLYSINGAR@BLADID.NET Morgunmatur og einkunnir Því er oft haldið fram að morgun- matur sé mikilvægasta máltíð dags- ins og ekki að ástæðulausu. Það hefur sýnt sig að þá sem ekki nærast vel áður en þeir halda til vinnu eða skóla skortir oft úthald og einbeit- ingu. Það á ekki síst við um börn og unglinga. Nemendur sem ekki borða morgu- mat fá lélegri einkunnir samkvæmt niðurstöðum nýlegrar norskrar rannsóknar. Þá virðist það einnig hafa áhrif á andlega líðan nemend- anna hvort þeir sleppa morgunmatn- um eða ekki. Um 7.500 norskir nemendur í tí- unda bekk tóku þátt í rannsókninni sem vísindamenn við Óslóarháskóla stóðu að. Rannsóknin leiddi í ljós að aðeins 55 prósent stúlknanna og 66 prósent drengjanna borðuðu morg- unmat daglega. Hún leiddi enn fremur í ljós að sterk tengsl voru milli þess hve oft nemandi borðar morgunmat og einkunna. Þeir sem sleppa morgunmatnum eru í tvisv- ar sinnum meiri hættu á að fá lé- legar einkunnir en hinir. Þá virðist það hafa meiri áhrif á andlega líðan drengja að borða ekki morgunmat en stúlkna. Þeir virðast vera í þrisv- ar sinnum meiri hættu á að upphfa kvíða eða þunglyndi en drengir sem borða reglulega morgunmat. Skötuveislan er byrjuð hjá okkur. Komdu og skoðaðu fiskborðið okkar fullt af ilmandi tindabykkju og skötubörðum, hnoðmör, hamsatólg og þrumara með. Ævintýralegar fiskbúðir fiskisaga.is Hamraborg 14a • Skipholti 70 • Höfðabakka 1 • Vegamótum (Nesvegi 100) Sundlaugavegi 12 • Háaleitisbraut 58-60
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.