blaðið - 21.12.2006, Page 54
54
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2006
blaöiö
►
Hversu gamall er leikarinn?
Hvaö heitir hann fullu nafni?
Fyrir leik i hvaöa tveimur myndum hefur Hackman hlotiö Óskarsverðlaun?
Hversu oft aö auki hefur hann verið tiinefndur?
Hvaða vafasama heiöur hlaut Hackman i leiklistarskóla á sjötta áratugnun^
lunpuaiuauiues je jsmmioi
! euiej| eu Qe p) jjscfioi^no es uu;ieA jca uuch '5
JBASJJcJ 'p
(2661) U3Ai6jo)un ‘(U6l) uojjoauuoo ijouajj aijl £
ueui>ioeH ua||\/auafing z
ejegz l
jpuw
ÚTVARPSSTÖÐVAR: RÁS 1 92,4/93,5 • RÁS2 90,1 / 99,9 • KISS FM 89.5 • XFM 91,9 • BYLGJAN 98,9 • FM 95,7 • X-IÐ 97,7 • ÚTVARP SAGA 99,4 • TALSTÖÐIN 90,9 • LÉTTBYLGJAN 96,7
HVAÐ SEGJA
STJÖRNURNAR?
Skoðaðu fjármál þín og ferilinn lengi og vel áðuren
þú tekur þátt í áaetlun annarra. Er þetta það sem
þú raunverulega vilt? Er þetta mögulegt núna?
Þetta eru mikilvægar spurningar sem þú þarft aö
spyrja þig að áður en þú ferð af stað.
©Naut
(20. apríl-2ð.maí)
Af hverju ertu að bera hæfni þína saman við sér-
fræðingana? Tilgangurinn með því að læra er ein-
mitt sá að læra. t>ú hefur einstaka hæfileika og þú
skalt gefa sjálfri/um þér tima til að uppgötva þá.
Hættu að gagnrýna sjálfa/n þig.
©Tvíburar
(21. maí-21. júní)
Þú hefur mikil áhrif á ákveðna aöila. Allir sem
verða á vegi þínum taka eftir þér. Þú ættir því að
nýta þér þetta til hins ýtrasta, enda ekki oft sem
svona tækifæri sýna sig.
®Krabbi
(22. júní-22. júlO
Þú getur valið um að vera róleg/ur og yfirveguð/
aður jafnvel þú allir í kringum þig séu æstir. Það
þarfnast smá æfingar en það borgar sig. Þú svífur
yfir gamlar hindranir á leið þinni til velgengni.
®Ljón
(23. júlí- 22. ágúst)
Þú hefur nýjan tilgang í lifinu og jafnvel þinar
smæstu gjörðir skila miklum árangri. Orkustig þitt
er hátt þessa dagana og þú hefur þvi ærna ástæðu
til að brosa. Ef þú ferð út á lífið verður það vafalaust
skemmtilegt.
CJ? MeYÍa
jf (23. ágúst-22. september)
Klapparðu sjálfri/um þér nægilega á bakið fyrir
það sem þú hefur gert i áranna rás? Ef svariö er
jákvætt þá ættirðu að læra að slaka á. Skemmtu
þér í stað þess að vera ætíð upptekin/n af næsta
markmiði.
Vog
(23. september-23. október)
Þú hefur heillað yfirmennina með sköpunargáfu
þinni. Ekki hvila þig þrátt fyrir að þér hafi tekist að
vekja athygli á þér. Þú ættir að taka þátt i ákveðnu
viðskiptatækifæri og sýna hvað þú getur.
Sporðdreki
(24. október-21. nóvember)
Hver bjóst við því að þú myndir finna rómantík í
sendiferðum? Ekki vera svo upptekin/n í annríki
síðustu daganna fyrir jól að þú sjáir ekki bros frá
sætum ókunnugum einstakiingi. Vertu vakandi
þegarþú ert á ferðinni.
Bogmaður
(22. nóvember-21. desember)
Ekki verða of metnaðargjörn/gjarn svo áætlanir
þínar fari ekki úr böndunum. Taktu eitt skref i einu
og einbeittu þér að núverandi verkefni. Ekki hafa
áhyggjur, heildarmyndin skýrist fljótlega.
Steingeit
(22.desember-19.janúar)
Búðu til varaáætlanir til öryggis. Hins vegar skaltu
ekki nota þær þar sem þú gætir skaðað þinn
góða árangur. Aftur á móti er gott að hafa þær í
bakhöndinni ef ske kynni að þú þyrftir á þeim að
halda siöar.
@Vatnsberi
(20. janúar-18. febrúar)
Farðu (allt aðra átt en venjulega. Það er tími til
að sýna hæfni þína, sem margir vissu ekki að þú
hefðir. Þú ert afbragðsgóð/ur í öllu sem þarfnast
skipulagshæfileika.
©Fiskar
(19. febrúar-20. mars)
Þú ert næstum þvi búin/n að ná markmiði sem þú
settir þér nýlega. I stað þess aö slaka á skaltu reyna
aðeins meira. Það sakar ekki að reyna.
Má bjóða þér upp í dans?
Þriðjudagar eru konudagar í sjónvarpi.
Yfirleitt hryllir mig við tilhugsun
inni um að dagurinn skuli yfirhöf-
uð renna upp. En þó er einn þáttur
sem ég get ómögulega misst af.
Það er Innlit/Útlit.
Þátturinn er svokallaður lífs-
stílsþáttur eins og flestir lands-
menn þekkja. Þar að auki nýtur
hann allnokkurra vinsælda. Sjálfur
hef ég ekki gaman af slíku prjáli. Senni-
lega eru flestir karlmenn sammála mér
enda þátturinn ekki endilega gerður
út á markhóp ungra karlmanna.
Þannig að þið spyrjið af hverju ég horfi sífellt
á hann. Ástæðan er Nadia Banine. Ballerín-
an og handverkskonan hefur kennt mér
ógrynni af húsráðum og leiðum til þess
að flikka upp á íbúðina mína. Sjálfur get
ég ekki tekið augun af henni þegar hún er
á skjánum. Hvort sem hún er að bólstra
stóla, lima veggfóður á veggi ,eða bora göt
til þess að hengja upp myndir. Ekkert virð-
ist vera henni ofviða.
Svo mun hún vera flinkur dansari. Sjálf-
ur hef ég aldrei kunnað að dansa. Mig
langar að læra kúnstina en líður
svolítið eins og gömlum hundi
Valur Grettisson
Vill íá tœkifœrí til þess að
dansa við Nadiu Banine
Fjölmiðlar
valur@bladid.net
sem er ekki hægt að kenna að sitja. Þannig að ég
skora á stúlkuna að kenna okkur lánlausu mönn-
unum í stofunni nokkur dansspor í hverjum
þætti. Jafnvel þannig að ég geti boðið henni upp í
dans einn góðan veðurdag þegar dansþekkingin
mín verður orðin slík að tær mótdansara verða
ekki í bráðri hættu.
Sjónvarpið
08.45 Heimsbikarmótið í
alpagreinum
Bein útsending frá fyrri
umferð í stórsvigi karla í
Hinterstoder í Austurríki.
10.20 Heimsbikarinn
- upphitun
Fjallað um keppnistímabilið
framundan í alpagreinum
skíðaíþrótta. e.
10.50 Alpasyrpa (1:16) (e)
Samantekt af heimsbik-
armótum í alpagreinum í
Bandaríkjunum og Kanada
í byrjun mánaðarins.
11.15 Alpasyrpa (2:16) (e)
Samantekt af heimsbik-
armótum í alpagreinum
í frönsku og svissnesku
Ölpunum.
11.45 Heimsbikarmótiö í
alpagreinum
Bein útsending frá seinni
umferð í stórsvigi karla í
Hinterstoder í Austurríki.
16.45 iþróttakvöld (e)
17.00 Jóladagatalið
- Stjörnustrákur
17.10 Leiðarljós
17.55 Táknmálsfréttir
18.05 Stundin okkar (e)
18.35 Stebbi strútur (5:13)
18.45 Jóladagatalið
- Stjörnustrákur
19.00 Fréttir, iþróttir og veöur
19.35 Kastljós
20.20 Martin læknir (8:8)
(Doc Martin II)
Breskur gamanmyndaflokk-
ur um lækninn Martin Elling-
ham sem býr og starfar í
smábæ á Cornwallskaga
og þykir með afbrigðum
óháttvís og hranalegur.
21.15 Sporlaust (3:24)
(Without a Trace IV)
Bandarísk spennuþáttaröð
um sveit innan alríkislög-
reglunnarsem leitar að
týndu fólki. Atriði í þáttun-
um eru ekki við hæfi barna.
22.00 Tíufréttir
22.25 MANNAMEIN (1:2)
(Bodies: The Finale)
Breskur myndaflokkur
um líf og starf lækna á
sjúkrahúsi í London. Atriði í
þáttunum eru ekki við hæfi
barna.
23.15 Aðþrengdareiginkonur
Atriði í þáttunum eru ekki
við hæfi barna. e.
00.00 Kastljós
00.45 Dagskrárlok
06.58 ísland í bítið
09.00 Bold and the Beautiful
09.20 í finu formi 2005
09.35 Martha
10.20 ísland i bítið (e)
12.00 Hádegisfréttir
12.40 Neighbours
13.05 Valentína
13.50 Valentina
14.35 William and Mary (6:6)
15.25 Two and a Half Men
15.50 Leðurblökumaðurinn
16.13 Ofurhundurinn
16.38 Tasmanía
17.03 Myrkfælnu draugarnir
17.18 Doddi litli og Eyrnastór
17.28 Bold and the Beautiful
17.53 Neighbours
18.18 íþróttir og veður
18.30 Fréttir, iþróttir og veður
19.00 island í dag
19.40 Búbbarnir (18:21)
Búbbarnir eru mættir til
leiks og hafa sölsað ís-
lenska fjölmiðla undirsig
með látum. Hér eru áferð-
inni fyrstu íslensku brúðu-
grínþættirnir, taumlaust
fjör fyrir alla fjölskylduna.
Búbbarnir eru kynlegar
brúður og þættirnir gerast
á sjónvarpsstöð þar sem
skrautlegar uppákomur eru
daglegt brauð.
20.05 i sjöunda himni með
Hemma Gunn
21.10 The Closer (5:15)
(Málalok)
Bönnuð börnum.
22.00 What Not To Wear On
Holiday
23.00 Entourage (2:20)
(Viðhengi)
23.30 GREY S ANATOMY
(Læknalíf)
00.15 BackintheDay
((þá gömlu góðu daga)
Harðskeytt og óvægin
mynd um ungan mann sem
reynir að forðast háskaleg-
ar rætur sínar í fátækra-
hverfi svartra. Stranglega
bönnuð börnum.
01.55 The Unit (2:13)
(Úrvalssveitin)
02.35 Hitcher 2: l’ve Been
Walting
(Puttalingurinn 2)
Framhald af einum magnað-
asta sþennutrylli 9. áratug-
ar síðustu aldar.Stranglega
bönnuð börnum.
04:05 island í bítið e
05:40 Fréttir og island í dag
Fréttir og island í dag end-
ursýnt frá því fyrr í kvöld.
06.50 Tónlistarmyndbönd frá
Popp TíVí
Skjár einn
07.00 6 til sjö (e)
08.00 Rachael Ray (e)
08.55 Toppskífan (e)
15.25 Bak við tjöldin
- Happy Feet
15.50 Love, Inc. (e)
16.20 Beverly Hills 90210
17.05 Rachael Ray
18.00 6 til sjö
19.00 Everybody Loves
Raymond (e)
19.30 Game tivi
Sverrir Bergmann og Ólafur
Þór Jóelsson fjalla um allt
það nýjasta í tækni, tölvum
og tölvuleikjum.
20.00 The Office
Bandarísk gamansería sem
nýverið hlaut Emmy-verð-
launin sem besta gamans-
erían.
20.30 Venni Páer
Ný, íslensk gamansería
þar sem ýmsir kostulegir
karakterar koma við sögu.
Venni Páer er einkaþjálfari
með háleit markmiö og
efst á baugi er að gera
kennslumyndband fyrir
aðra einkaþjálfara. Venni
ákveður að ráða leikstjóra
fyrir myndbandið sitt og
setur það í verkahring Pál-
mars að ráða „þann besta".
Á meðan Pálmar glímir við
að ráöa leikstjórann dettur
Venna í hug ráð til að losna
viðJóa Fel úrhverfinu.
Kolli dettur í lukkupottinn
þegar uppáhalds Spaug-
stofukarlinn hans fellst á
að leyfa Kolla að þjálfa sig
21.00 The King of Queens
21.30 Still Standing
- Ný þáttaröð
Þriðja þáttaröðin í þessari
bráðskemmtilegu gamans-
eríu um hjónakornin Bill
og Judy Miller og börnin
þeirra þrjú.
22.00 C.S.I: Miami
Bandarísk sakamálaseria
um Horatio Crane og félaga
hans í rannsóknardeild
lögreglunnar í Miami.
23.00 Everybody Loves
Raymond
Bandarísk gamanseria.
23.30 Jay Leno
Spjallþáttur á léttum
nótum.
00.20 America’s Next Top
Model VI (e)
01.20 Beverly Hills 90210 (e)
02.05 2006 World Pool Masters
(e)
Sirkus
18.00 Insider(e)
18.30 Fréttir, íþróttir og veður
Fréttir, íþróttir og veður frá
fréttastofu Stöðvar 2 í sam-
tengdri og opinni dagskrá
Stöðvar 2 og Sirkuss.
19.00 island i dag
19.30 Seinfeld
Jerry, George, Elaine og
Kramer halda uppteknum
hætti í einum vinsælasta
gamanþætti allra tima.
20.00 EntertainmentTonight
20.30 FourKings
Drepfyndnir gamanþættir
frá höfundum Will & Grace.
21.00 ThePlayer
13karlmenn berjastum
hylli ofurskutlunnar Dawn
Olivieri í þessu þáttum þar
sem einn mun standa uppi
sem sigurvegari.
21.45 Visit to Barði (e)
Viðtalsmynd um Barða
Jóhannsson úr Bang Gang
í tilefni útgáfu plötunnar
Haxan sem hann tók upp
með Sinfóníuhljómsveit
Búlgaríu.
22.00 Chappelles Show 1
22.30 X-Files
23.15 Insider
23.40 Vanished (10:13) (e)
00.25 Ghost Whisperer (22:22)
01.10 Seinfeld
01.35 Entertainment Tonight
02.00 American Dad (1:10)
02.25 Supernatural (3:22) (e)
03.10 Supernatural (4:22) (e)
03.55 Tónlistarmyndbönd frá
Popp TV
Skjár sport
07.00 itölsku mörkin (e)
14.00 Man. City - Tottenham
(frá 17. des)
16.00 Newcastle - Watford
(frá 16. des)
18.00 Arsenal - Portsmouth
(frá 16. des)
20.00 Liðið mitt
Spjallþáttur um fótbolta
21.00 Everton - Chelsea
(frá 17. des)
23.00 Liðið mitt (e)
Spjallþáttur um fótbolta
í umsjón Böðvars Bergs-
sonar.
00.00 Að leikslokum (e)
01.00 Dagskrárlok
16.05 Spænski boltinn
(Real Madrid - Recreativo)
17.45 Enski deildarbikarinn
(Newcastle - Chelsea)
19.25 Kraftasport
(Uppsveitarvíkingurinn
2006)
Svipmyndir frá keppninni
um sterkasta mann Islands
árið 2006.
19.55 Pro bull riding
(Chicago, IL - Jack Daniels
Ihvitational)
Nautareið er ein vinsæl-
asta íþróttin í Bandaríkjun-
um um þessar mundir.
20.50 Spænski boltinn
(Barcelona - Atl. Madrid)
Bein útsending frá leik
Barcelona og Atletico Madr-
id í spænska boltanum.
22.50 Football lcons
(Football lcons)
Football lcons er enskur
raunveruleikaþáttur þar
sem ungir knattspyrnu-
menn keppa um eitt sæti í
herbúðum Englandsmeist-
ara Chelsea.
23.45 World s Strongest Man
(Sterkasti maður heims)
00.40 Ameriski fótboltinn
(NFL Gameday 06/07)
01.10 Spænski boltinn
(Barcelona - Atl. Madrid)
Útsending frá leik í
. ,spænska boitanum.
06.05 Hollywood Homicide
Bönnuð börnum.
08.00 Pokemon 4
10.00 The Importance of
Being Earnest
12.00 The Curse of the Pink
Panther
14.00 Pokemon 4
16.00 The Importance of
Being Earnest
18.00 The Curse of the Pink
Panther
20.00 Hollywood Homicide
Bönnuð börnum.
22.00 Mississippi Burning
Str. bönnuð börnum.
00.05 La Vie Nouvelle
(A New Life)
02.00 Judge Dredd
03.55 Mississippi Burning
Str. bönnuð börnum.
Mannamein á RUV kl. 22.25
Læknadrama
l kvöld og næsta fimmtudagskvöld verða
sýndir tveir síðustu þættirnir i breska
myndaflokknum Mannamein (Bodies)
sem er um líf og starf lækna í London.
Rob Lake er rétt byrjaður í nýrri stöðu á
Háskólasjúkrahúsinu þegar erkióvinur hans, fæðingarlæknirinn óhæfi
Roger Hurley, kemur til starfa á deildinni. Hann er með fölsuð meðmæli
og fær hlýjar móttökur en Rob þorir í fyrstu ekki að segja neitt. Hann er
undir miklu álagi, ekki síst vegna kvennamála sinna, en hann óttast að
svefnleysið og handskjálftinn sem hrjá hann séu vegna annars en streitu.
Hurley virðist ætla að halda uppteknum hætti og klúðra öllu sem klúðrað
verður og þar kemur að Rob ákveður að fletta ofan af honum. Meðal leik-
enda eru Max Beesley, Patrick Baladí, Keith Allen og Tamzin Malleson.
Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi barna.
Greys Anatomy á Stöð 2 kl. 23.30
Ástir og örlög á spítala
Greys Anatomy er vinsælasti nýi þátturinn I Bandaríkj
unum í dag og aðeins Desperate Housewives er nú
vinsælli meðal kvenna þar í landi. Hér er á ferð önnur
þáttaröð þessa skemmtilega spítalaþáttar sem hefur
verið sagður sameina það besta úr Ally McBeal, E.R.,
Desperate Housewives og Friends - hvorki meira né
minna. Við höldum áfram að fylgjast með ástum og örlögum læknanem-
ans Grey sem átti á sínu fyrsta ári sem lærlingur í skurðlækningum á
Grace Hospital í Seattle í ástarævintýri með ungum og virtum skurðlækni,
dr. Derek Shepherd. En hún er nýbúin að komast að því að dr. Shepherd
er giftur maður og þarf nú að láta það áfall ekki hafa áhrif á starf sitt.
(16:26) Dr. Burke lýsiryfir neyðarástandi á sjúkrahúsinu þegartifandi
tímasprengja finnst þar sem gæti stofnað lífi allra á sjúkrahúsinu í hættu. Á
meðan virðist sem það gæti verið hitna í kolunum hjá Izzie og Alex.