blaðið - 28.12.2006, Síða 18
18
FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2006
blaAiö
JP Sorg í Bagdad Konur
syrgja látinn ættingja
sem lét lífið af völdum
bílsprengju í Bagdad á
þriðjudaginn.
Saddam Hussein líflátinn innan mánaöar:
Blendin viðbrögð umheimsins
Hundruö íraka sækja um starf bööuls Hussein tilbúinn aö fórna sér Dómurinn kom lögmanninum ekki á óvart
-4
s
j®i m
Eftir Atla ísleifsson
atlil@bladid.net
Stjórnvöld í Bandaríkjunum
fagna því að áfrýjunardómstóll í
írak hafi staðfest dauðadóm yfir
Saddam Hussein, fyrrum forseta
íraks. Talsmenn Evrópusambands-
ins hafa hins vegar hvatt íraka
til að framfylgja ekki dómnum.
Ákvörðun áfrýjunardómstólsins,
sem gerir ráð fyrir að Hussein
verði hengdur innan þrjátíu daga,
var tekin á annan dag jóla.
Hussein var dæmdur til
dauða fyrir morð á 148
sjítamúslímum í bænum
Dujail árið 1982. Þó að
hann sé einnig ákærður
fyrir þjóðarmorð gegn
Kúrdum segja írösk lög
að það beri að taka hann
af lífi innan þrjátíu daga
tímarammans. Ekki hefur
verið gert opinbert hvar eða
hvenær aftaka forsetans fýrr-
verandi mun fara fram.
1 yfirlýsingu frá banda-
rískum stjórnvöldum segir að úr-
skurður áfrýjunardómstólsins sé
mikilvægur áfangi í þeirri baráttu
að koma á réttarríki í stað harð-
stjórnar Husseins. Bæði mann-
réttindasamtökin Human Rights
Watch og alþjóðasamtök Am-
nesty hafa þó sagt málsmeðferð-
ina vera gallaða og réttarhöldin
ósanngjörn.
Khalil al-Dulaimi, verjandi Hus-
seins, sagðist í viðtali við Reuters
hafa búist við því að skjólstæð-
ingur sinn yrði dæmdur tií dauða.
„Við erum alls ekki hissa á þessu
þar sem við erum sannfærðir um
að réttarhöldin hafi verið pólit-
ísks eðlis. Það yrði skelfilegt fyrir
svæðið ef dómnum yrði framfylgt
og hryðjuverkum í landinu myndi
fjölga til muna.“
f bréfi sem Hussein skrifaði í
fangaklefa sínum og sendi frá sér
í gær segist hann vera tilbúinn að
fórna sér og hvetur íraka til að
sameinast gegn óvinunum. „Ég
fórna mér. Ef það er Guðs vilji mun
hann skipa mér í hóp með sönnum
mönnum og píslarvottum.“ f bréf-
inu, sem er líklega hið síðasta frá
forsetanum fyrrverandi, kennir
hann Bandaríkjamönnum og fr-
önum um blóðbaðið í landinu.
Nuri al-Maliki, forsætisráðherra
fraks, hefur hvatt til þess að Hus-
sein verði tekinn af lífi fyrir árs-
lok. Deilt er um hvort réttast sé að
aftakan fari fram án fyrirvara, til
að koma í veg fyrir kröftug mót-
mæli og hryðjuverk, á meðan aðrir
krefjast þess að hengingunni verði
sjónvarpað.
Ráðgjafi al-Malikis sagði í sam-
tali við fréttastofu ABC að hundruð
íraka hafi spurst fyrir um starf
böðuls forsetans fyrrverandi þrátt
fyrir að formlega sé engin slík
staða til og hefur ekki verið aug-
lýst. „Ég hef fengið um tíu símtöl
og tugi tölvupósta á degi hverjum
frá mönnum sem vilja taka að sér
verkefnið.“ Hussein verður tekinn
aflífi með hefðbundinni hengingu.
Stjórnvöld í Irak hafa lýst yfir
að vegna öryggisástæðna
muni ekki verða gefið
upp hverjum
verði falið
verkefnið.
Sprengt 1 Bagdad
Fólk er svipt eigum
og vandamönnum í
stríðinu í Irak.
j Jarðaför í Bagdad
Menn bera ættingja
sinn til grafar í hö-
fuðborg Iraks í gær.
x , maWapiB