blaðið - 05.01.2007, Blaðsíða 7

blaðið - 05.01.2007, Blaðsíða 7
Hvers vegna nýtt lögregluembætti? Um áramótin sameinuðust öll lögregluembætti á höfuðborgarsvæðinu í eitt embætti. Miklar breytingar verða á lögreglunni og þjónusta við borgarbúa eykst til muna. Liðsauki í hverfið þitt Endurskipulagningin miðar að þvi að nýta betur krafta lögreglunnar. Með breyttu skipulagi eykst fjöldi lögreglumanna sem sinna lög- gæslu á þinu svæði þannig að aðgengi að lögreglunni batnar og þjónusta við hverfið þitt eykst. Mun betri þjónusta við þig Þjónustuver svarar fyrirspurnum bæði símleiðis og i gegnum tölvu- póst. Áhersla er lögð á að þú getir fengið þær upplýsingar sem þú þarft fljótt og örugglega. Sýnilegri lögregla Betri nýting á fjármunum Lögreglan á að vera sýnileg og þátttakandi i daglegu lífi borgara. Við sameininguna eflist hverfa- og grenndarlöggæsla, forvarna- starf verður áberandi og umferðareftirlit verður aukið á þeim stöðum þar sem slys eru tið eða háskaakstur þekkist svo fátt eitt sé nefnt. mmmm. Skilvirkari rannsóknir á sakamá Sérhæfing við rannsóknir stærri og flóknari sakamála verður aukin og verður m.a. stofnuð sérstök deild til að rannsaka kynferðisafbrot. Þannig komast forgangsmál fyrr í réttan farveg og málsmeðferðar- timi styttist i kjölfarið. Með sameiningu lögregluembættanna á höfuðborgarsvæðinu i eitt embætti nýtist það fjármagn sem varið er til löggæslu mun betur. Þeim fjármunum sem þannig sparast verður varið til að efla enn frekar og styrkja löggæslu á höfuðborgarsvæðinu. Á næstunni verður opnaður nýr og endurbættur vefur lögreglunnar þar sem meðal annars verður hægt að fræðast um hverfastarf, koma með uppástungur og skrá sig á póstlista. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu www.logreglan.is - 444 1000

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.