blaðið - 20.01.2007, Síða 4

blaðið - 20.01.2007, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2007 blaðið INNLENT SKEMMTANIR Ölvun á skólaböllum Mikil ölvun var á skóladansleikjum í Reykjavík aöfaranótt föstudagsins þar sem framhaldsskóla- nemar gerðu sér glaðan dag. Lögregla kom ölvuðum unglingspilti til síns heima eftir að hann fannst í snjóskafli og foreldrar sóttu aðra. Tognaði í túr en fékk ekki bætur Sjómaður sem tognaði í veiðitúr og kærði það sem vinnu- slys fékk engar þætur dæmdar í héraðsdómi á fimmtudag. Var talið að hann hefði hlotið alla þá umönnun sem honum bar á slysstað og útgerðin því sýknuð af öllum kröfum stefnanda og allur málskostnaður látinn niður falla. OLVUNARAKSTUR Níu stútar teknir Níu ökumenn voru handteknir á höfuðborgarsvæð- inu fyrir ölvunarakstur á fimmtudag og aðfaranótt föstudags, sem er óvenjumikið á þessum tíma vikunnar að sögn lögreglu. Fimm stútar voru teknir í Reykjavík, þrír í Hafnarfirði og einn í Garðabæ. Eþíópíuher í Sómalíu: Heldur heim á leið Meles Zenawi, forsætisráð- herra Eþíópíu, hefur sagt að her- sveitir Eþíópíuhers muni halda frá Sómalíu innan fárra daga. Eþóípíuher aðstoðaði hersveitir bráðabirgðastjórnar Sómalíu við að hrekja íslamista frá höf- uðborginni Mogadishu í síðasta mánuði eftir að hún hafði verið undir stjórn íslamistanna um hálfs árs skeið. Meles sagði að fyrstu skref að brotthvarfi Eþíóp- íuhers frá Sómalíu gætu hafist, nú þegar fjölmargir sómalískir stríðsherrar hafa samþykkt að leggja niður vopn. Samband Afríkuríkja ræðir nú hvenær og hverjir geti sent friðargæsluliða til Sómalíu til að tryggja það að friður haldist. LÁTIÐ FAGMANN VINNA VERKIÐ Félag dúklagninga- og veggfóðrarameistara DÚKALÖGN - VEGGFÓÐRUN- TEPPALÖGN www.dukur.is y Á léttu nótunum Veldu létt og mundu eftir ostínum! helmingi léttari! Sykurskerta Kókómjólkin inniheldur helmingi minni viðbættan sykur ogfitu en hefðbundin Kókómjólk og orkuinnihaldið er fjórðungi lægra. Yfir 80% af mjótkursykri- num hafa verið klofin og hentar drykkurinn þvi flestum þeim sem hafa mjólkursykursóþol. Hagstofan telur matvælaverð lækka um tæp níu prósent: Ávinningur minni en stjórnvöld boðuðu ■ Spáðu allt að 16 prósenta lækkun ■ Kaupmenn og heildsalar taki þátt Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@bladid.net Verð á mat og drykkjarvörum lækkar um 8,7 prósent í kjölfar lækkunar virðisaukaskatts á mat- væli og niðurfellingar vörugjalda þann 1. mars ef marka má áætlun sem Hagstofa íslands hefur gert. Áhrif af breytingum á tollum á inn- fluttum kjötvörum voru ekki metin með í útreikningum Hagstofunnar, en umdeilt er hvort tollabreyting- arnar muni skila sér í lægra verði. Þá lækkar vísitala neysluverðs um 1,9 prósent á sama tíma að mati Hagstofunnar. Þegar ríkisstjórnin kynnti að- gerðir sínar síðastliðið haust boðaði hún 12-16 prósenta lækkun á matar- verði, en Samtök verslunar og þjón- ustu og fleiri hagsmunaaðilar töldu það ofmat. „Þetta er langt frá því að vera nógu mikil verðlækkun miðað við þær væntingar sem ríkisstjórnin hefur skapað með eigin málflutn- ingi. Við þurfum að lækka matar- Mikllvægtað aðgerðirnar skilisértll heimilanna Ásta Möller, þingmaður Sjálfstæðisflokksins verð talsvert meira og við sjáum að ríkisstjórnin er að sýna hálfkák í þessu máli,“ segir Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylking- arinnar. „Tollar á innfluttum kjöt- vörum lækka einungis um 40 pró- sent og ljóst er að það hefur lítil sem engin áhrif á matarverðið." „Fyrir jól var það metið sem svo að aðgerðirnar myndu skila 12 pró- senta lækkun á matarverði og þetta er 3>3 prósentum frá því,“ segir Ásta Möller, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins. „Það er mikilvægt að við stöndum fast á því að lækkunin skili sér að fullu til neytenda og gerum þær kröfur til kaupmanna og heild- sala að þeir taki þátt í þessu átaki til lækkunar matarverðs. Ef þeir telja sig ekki geta skilað þessu með Ekki nóg miðað við þær vænt- ingar sem ríkis- stjómin skapaði Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar þessum hætti verða þeir að skoða nánar innviði hjá sér, hvort þeir séu með of margar verslanir, of langan opnunartíma og svo framvegis." Hún bætir því við að 8,7 pró- senta lækkun á matarverði sé ekki það sem ríkisstjórnin stefndi að. „Fyrir jól var metið sem svo að hún yrði 12 prósent. 1 fyrstu var horft til þess að verð á mjólkinni myndi standa í stað í stað þess að hækka og því var talið að matarverð myndi lækka um 16 prósent. En 12 prósenta lækkun er það sem eðli- legt má telja að aðgerðirnar skili,“ segir hún. „Markmiðið með þeim var að færa 12 milljarða úr ríkis- sjóði yfir á heimilin og þeir eiga að skila sér þangað en ekki til kaup- manna og milliliða." Fundað um aðstoð við heyrnarlausa: Jákvætt í ráðuneytinu „Þetta var góður fundur. Það er byrjað að skoða útfærsluatriði hverrar tillögu fyrir sig og rætt var um samstarf við fleiri ráðuneyti,“ segir Berglind Stefánsdóttir, fyrrver- andi formaður Félags heyrnarlausra, sem ræddi í gær við skrifstofustjóra félagsmálaráðuneytisins, Þór G. Þór- arinsson. Á fundinum var fjallað um tillögur um stuðning við fórnar- lömb kynferðislegs ofbeldis meðal heyrnarlausra. Félag heyrnarlausra telur brýnt að félagsmenn leiti sér aðstoðar. 'v Góður V IBerglind Stefánsdóttir, fyrrverandl formaður Félags heyrnarlausra. „Það þarf að koma fjármagn frá ráðuneytum í þessa lausnarvinnu. Félagið hefur ekki nægt handbært fé,“ segir Berglind. Ákveðið hefur verið að halda annan fund sem fyrst á næstu vikum. Bretland: Þýfi kom upp um þjófa Fjórtán GPS-staðsetning- artæki sem þrír þjófar stálu í innbroti í fyrirtæki í Suffolk- sýslu í Bretlandi leiddu lögreglu beinustu leið heim til þjófanna fyrr í vikunni. Þýfið fannst á heimili Kurts Husfeldts, 46 ára gamals manns, en þrettán ára sonur hans og tvítugur vinur feðganna eru grunaðir um innbrotið sjálft. Husfeldt er hins vegar grunaður um að hafa verið í vitorði með strákunum.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.