blaðið - 20.01.2007, Blaðsíða 10

blaðið - 20.01.2007, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2007 blaöiö UTAN UR HEIMI N0RÐUR-K0REA Árangur í kjarnorkuviðræðum Norðurkóresk stjórnvöld segja að árangur hafi náðst í viðræðum við bandarísk stjórnvöid um kjarnorku- áætlun ríkisins. Talsmaður norðurkóreska utanríkis- ráðuneytisíns segir að ákveðið samkomulag hafi náðst á fundi sendinefnda ríkjanna í Berlín fyrr í vikunni. pnns Gagnrýndir vegna eldflaugatilraunar Áströlsk, japönsk og bandarísk stjórnvöld hafa gagnrýnt Kínverja vegna þess að talið er að þeir hafi skotið meðaldrægri eldflaug út í geim til að eyðileggja gamlan veðurgervihnött. Kínversk stjórn- völd hafa ekki staðfest tilraunina. Gates í heimsókn Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, kom í óvænta heim- sókn til Basra í írak í gær. Gates ræddi við George Casey, yfirmann Bandaríkjahers í (rak, og fleiri hershöfðingja um ástand mála í frak. Þetta er önnur heimsókn Gates til Iraks frá því að hann tók við emb- ætti varnarmálaráðherra af Donald Rumsfeld í desember. Auglýsingasíminn er 510 3744 Minningarkort Minningar- og styrktarsjóðs hjartaskjúklinga ^Hjai HjartaHeii! simi 552 5744 Gfró- og kreditkortþjónusta Hvalfjarðargöng: Veggjald til 2018 Gert er ráð fyrir því að veggjald verði innheimt í Hvalfjarðar- göngum til ársins 2018 og að gjaldskrá haldist óbreytt út tímabilið. Þetta kemur fram í samkomu- lagi Spalar ehf. og Vegagerð- arinnar um tvöföldun Vestur- landsvegar. Þar kemur einnig fram að Spölur muni nota hluta teknanna af veggjöldunum til að undirbúa tvöföldunina. Bæjarráð Akraness fagnar því að undirbúningur verksins sé hafinn en mótmælir jafnframt áframhaldandi gjaldtöku. M: ISLANDS NAUT teutárdnj <>■ ' ykkar STYRKUR OKKAR STYRKUR í Sjúkraþjálfun Styrk að Stangarhyl 7 í Reykjavík eru leikfimihópar og hópþjálfun að hefjast að nýju. • Vefjagigtarhópur fyrir konur - úthaldsþjálfun, liðleiki og styrkur • Hjartahópar - viöhaldsþjálfun fyrir hjarta- og lungnasjúklinga með reglulegum mælingum • Leikfimi fyrir konur - áhersla á líkamsvitund, styrk og teygjur • Tækjasalur - mánaðarkort / árskort í vel útbúinn tækjasal Takmarkaður fjöldi verður í hópana og vel er fylgst með hverjum og einum. Leiðbeinendur eru allir sjúkraþjálfarar. Frír aðgangur að tækjasal fylgir hópþjálfuninni. Bjóðum nýja þátttakendur velkomna. Nánari upplýsingar og skráning er ( sima 587 7750. STYRKUR Steinunn Jóhannesdóttir ósátt við slæðuburð þingkvenna: Vandarhögg á 100 ára jafnréttisbaráttu ■ Mikið hneyksli ■ Nauðungarklæði ■ Báru slæður að eigin frumkvæði Eftir Heiðu Björk Vigfúsdóttur heida@bladid.net „Það er alvarleg pólitísk yfirlýsing sem felst í því að taka upp slæðu múslímakvenna", segir Steinunn Jó- hannesdóttir rithöfundur. Fjórar ís- lenskar þingkonur huldu hár sitt og háls þegar þær fóru í opinbera heim- sókn til Sádi-Arabíu í hyrjun janúar. Þingkonurnar skipuðu sendinefnd fyrir fslands hönd. Steinunn gagnrýnir heimsóknina harðlega og segir að með því að hafa borið slæðuna hafi þær í raun verið að samþykkja þennan lífsmáta. Verulegar skorður eru settar við rétt- indum kvenna í Sádi-Arabíu. „Mér finnst þetta mikið hneyksli að ís- lensku stjórnmálakonurnar skyldu taka upp slæðuna í boði þeirra rót- tækustu og frekustu í þessari hreyf- ingu. Þetta er eins og vandarhögg á íslenska kvenréttindabaráttu. Ef við sjáum ekkert athugavert við þessi nauðungarklæði, sem eru til þess gerð að fela konuna, til hvers hefur þá verið barist í yfir 100 ár?“ „Við þurftum ekki að bera slæð- urnar. Þetta var algjörlega okkar ákvörðun. Það voru engar skyldur settar á okkur“, segir Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, sem fór í heimsóknina ásamt Sólveigu Pétursdóttur, Arn- Bæði karlar og konurkunnu að meta þessa viðleitni Sólveig Pétursdóttir forseti Alþingis björgu Sveinsdóttur, Rannveigu Guðmundsdóttur og forstöðumanni alþjóðamála á skrifstofu Alþingis, Belindu Theriault. „Okkur fannst óþægilegt að koma þarna til að ögra og við vildum það ekki. Við töldum því að það væri ákveðin teikn um það að við værum tilbúnar til að virða þeirra kúltúr að við huldum hár okkar.“ „Mér finnst gæta ákveðins mis- skilnings varðandi þennan slæðu- burð,“ segir Sólveig Pétursdóttir, forseti Alþingis. „Ég vil taka það skýrt fram að það var aldrei rætt við okkur um það að við ættum að breyta eitthvað okkar klæðaburði út af því hvar við vorum í heimsókn. Það voru bæði karlar og konur sem kunnu að meta þessa viðleitni og þökkuðu sendinefndinni fyrir að bera virðingu fyrir hefðum Sádi-Ar- aba í klæðaburði. Þetta var ekkert viðkomandi stöðu kvenna í þessu ríki heldur þvert á móti lögðum við áherslu á það að ræða um jafnréttismál." 17/ hvers hefur verið baristi 100 ár Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur Ifildum ekkiðgra gestgjöfunum Kolbrún Halldórsdóttir þingmaöur Vinstri grænna Heimsókn þingkvennanna kom til vegna heimsóknar sendinefndar þingmanna frá ráðgjafarþinginu í Sádi-Arabíu til íslands árið 2004. 1 framhaldi af þessari heimsókn fékk forseti Alþingis boð frá forseta ráð- gjafarþingsins um að koma þangað í opinbera heimsókn. Sólveig segist hafa tekið þá ákvörðun að sendi- nefndin skyldi vera skipuð einungis konum en nefndin sem tók á móti þeim árið 2004 var þannig skipuð. Eitt af því sem rætt var í Sádi-Arabíu var framboð Islands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna en Sólveig af- henti bréf frá Valgerði Sverrisdóttur utanríkisráðherra þar sem farið var fram á stuðning þeirra við framboð fslands. Sniglarnir opna heimasíðu um forvarnir: Slysum fjölgar meira en hjólum Mótorhjólaslysum hér á landi fjölgaði um 261 prósent frá árinu 2002 til ársins 2006. Þessi aukning er meiri en sú aukning sem-orðið hefur á fjölda skráðra bifhjóla, sem var um það bil 222 prósent á sama tímabili. Umferðarstofa og Sniglarnir hafa tekið höndum saman og sett upp sérstaka heimasíðu um forvarnir á slóðinni sniglar.is/forvarnir. Að sögn Valdísar Steinarsdóttur, formanns umferðarnefndar Snigl- anna, er reynsluleysi stór áhrifa- valdur að slíkum slysum. „Það eru ýmsar skýrslur, ekki síst erlendis frá, sem staðfesta að nýir ökumenn og ökumenn sem eru að koma aftur í umferðina eftir langt hlé eru í áhættuhópi," segir hún og bætir því við að nauðhemlun sé einnig vanda- mál. „Kennsla í mótorhjólaakstri hérlendis er almennt mjög góð en þegar verðandi ökumenn eru að æfa sig í nauðhemlun geta þeir aðeins gert það á 30 kílómetra hraða. Það vantar tilfinnanlega æfingasvæði og það er nokkuð sem við hyggjumst berjast fyrir af fullum krafti.“ Mikið um slys Mótorhjólaslysum hefur fjölgað mun meira en mó- torhjólum. Ný heimasíða um forvarn- ir er á slóðinni sniglar.is/forvarnir

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.