blaðið - 20.01.2007, Blaðsíða 26

blaðið - 20.01.2007, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2007 blaðið að er rúmlega hálft ár síðan Þórólfur Árnason var ráðinn sem forstjóri Skýrr sem er eitt stærsta fyrirtæki landsins á sviði upplýsinga- tækni. „Þetta er skemmtilegt starf, svipað því sem ég hef unnið megnið af starfsævi minni þar sem ég hef stýrt fólki sem er að vinna við skapandi störf, hug- búnað og hugverksegir Þórólfur. Þú hefur aldrei lcert stjórnun en ert að stjórna fólki. Hver er gald- urinn á bak við það að vera góður stjórnandi? „Ég tek þetta á mannlegu nót- unum. Ég hef alltaf sagt: Sá sem hefur ekki áhuga á fólki á ekki að koma nálægt stjórnun. Sá sem heldur að það sé fínt að stjórna fólki á að gera eitthvað allt annað. Sá sem hefur gaman af samskiptum við fólk á hins vegar að gefa sig fram til stjórnunarstarfa. Ég hef verið að hvetja konur til að stíga fram og axla ábyrgð. Ég hef hvatt konur í atvinnurekstri til að horfa einnig á stöðuhækk- anir neðar í fyrirtækjunum, sem hópstjórar, deildarstjórar og fram- kvæmdastjórar fremur en að ein- blína stöðugt á hver situr í vald- stjórninni. Það valdatafl hentar ekki öllum. Karlmenn segja oft: ,Ég vil“ fremur en að segja: „Ég get“. Konur geta alveg til jafns við karla en stíga síður fram. Oft búa þær líka við það að vera í tvöföldu hlutverki, halda utan um heimilið meðan karlmenn eiga auðveldara með að vera stikkfrí. Tal um „ofurleiðtoga" hugnast mér ekki. Frekar að hlutirnir gangi ef verkstjóri tekur að sér umsjón í smærri hópi og hvetur fólk með sér. Þetta þekkjum við öll úr alls kyns vinahópum sem við erum í, hvort sem það eru gönguhópar, íþrótta- hópar eða saumaklúbbar. Þar er alltaf einhver sem ákveður dag- setningu og tíma og sér um að fólk mæti. Það þarf aldrei harðstjóra til að þessi verkefni gangi upp. Ein- hver í hópnum tekur þau að sér og það þarf ekki alltaf að vera hæfasti einstaklingurinn eða sá gáfaðasti heldur einhver sem hefur kraft til að sjá um málin gangi upp. Sá eða sú sér að hagsmunum hópsins er best borgið með því að láta hlutina ganga vel. Það er þessi samskipta- stjórnunarstíll sem ég hef reynt að aðhyllast og vil sýna í Skýrr. Hæfileikafólk er nefnilega svo víða að finna. Hér í Skýrr er t.d. afreks- fólk í íþróttum og listum. Einn starfsmaður er til dæmis með lag í Söngvakeppni sjónvarpsstöðva." Áþessi stjórnunarstíll alltafvið? „Ég hef ekki tekið eftir öðru í mínum störfum. Ég vinn reyndar í þekkingariðnaði og þar þarf fólk sjaldnast að hafa áhyggjur af harð- stjórn eða leiðinlegum rútínuverk- efnum. Auðvitað þarf aga og ögun en oftar en ekki býr aginn innra með fólkinu sjálfu því það vill ljúka verkefnum sínum.“ Vanmetin verðmæti Ég hef heyrt að þú kunnir nöfn allflestra starfsmanna í þessu stóra fyrirtceki. Hvernig ferðu að því að munaþau? „Ég legg mig fram við að kynnast fólki. Það skiptir miklu máli að maður viti eitthvað um fólk því þá fær maður meiri áhuga á störfum þess og ekki síður því sem það er að gera í sínu einkalífi. Sjálfur hef ég aldrei skilið að einkalíf mitt og vinnu og ég reikna með að það sé svipað hjá öðrum stjórnendum. Vinnan er áhugamál mitt og ég hef verið svo heppinn að vinna að störfum sem ég hafði áhuga á eða fékk fljótt áhuga á. Skýrr er nefni-

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.