blaðið - 20.01.2007, Blaðsíða 40

blaðið - 20.01.2007, Blaðsíða 40
JANUAR 2007 .. helqin Ekki missa af.... .... gamanleiknum Mein Kampf í Borgarleikhúsinu. I leikritinu erfjallað um vináttu og sambúð gyðingsins Slómó og Adolfs Hitlers. Hinn vingjarnlegi Slómó tekur saklausa sveitastrákinn Hitler upp á sína arma og við tekur kostuleg og meinfyndin saga. Aðalhlutverk eru í höndum Þórs Tulinius og Bergs Þórs Ingólfssonar en með leikstjórn fer Hafliði Arngrímsson. 1 blaöið Jl Ritþing í Gerðubergi I dag klukkan 13:30 er upplagt að gera sér ferð í Gerðuberg og hlýða á dagskrá sem tileinkuð er Ingibjörgu Haraldsdóttur rithöfundi. Hún mun sitja fyrir svörum hjá þeim Silju Aðaisteinsdóttur, stjórnanda þingsins, og spyrlunum Áslaugu Agnarsdóttur og Jóni Karli Helgasyni sem öll hafa stundað bókmenntarannsóknir og þýðingar. Um helgina Listasafn ASf Tvær sýningar eru í Listasafni ASÍ um þessar mundir. Johann Lud- wig Torfason sýnir „Ný leikföng", tölvugerð málverk af skálduðum leikföngum fyrir hina meðvituðu yngstu kynslóð. Hlynur Helgason er einnig með sýningu sína „63 dyr Landspítala við Hringbraut". Burtfarartónleikar Eydís Sigríður Úlfarsdóttir sópr- ansöngkona og Krystyna Cortes píanóleikari leika á burtfarartón- leikum í Salnum klukkan 17 I dag. Meðal efnis á tónleikunum eru ís- lensk þjóðlög og verk eftir Brahms, Alban Berg, Purcell og Mascagni. Aðgangur er ókeypis. Lúther og jazzinn Sunnudag kl. 17 flytur Tríó Björns Thoroddsen eigin útsetningar á gömlum sálmum kirkjunnar úr fórum Marteins Lúthers á 3. tón- leikunum í sálmadagskrá Listvina- félags Hallgrímskirkju á afmælisári, 25. starfsári félagsins. Eydís Sigriður Úlfarsdóttir heldur burtfarartónleika í dag Krefjandi að takast á við Ijóðasöng Að venju iðar Salurinn í Kópavogi af lífi og þar verður mikið um dýrðir þessa helgi sem flestar aðrar. Ein þeirra sem þar stíga á stokk um helgina er Eydís Sig- ríður Úlfarsdóttir, sópransöngkona en hún heldur burtfarartónleika sína í einsöng frá Söngskólanum í dag, laugardaginn 20. janúar. „Ég tók burtfararprófið mitt síðasta vor og lokaliðurinn í því eru þessir tón- leikar. Ég valdi efnisskránna í sam- ráði við kennarann minn og hún hefur verið að taka breytingum allt fram á þennan dag þótt grunnurinn sé alltaf sá sami,“ segir Eydís. Óhætt er að fullyrða að flestir tónlistarunn- endur finna eitthvað við sitt hæfi á efnisskrá Eydísar en þar er meðal annars að finna íslensk þjóðlög í útsetningum Hildigunnar Rúnars- dóttur, útsetningu Snorra Sigfúsar Birgissonar á Músículof úr Lysting er sæt að söng fyrir söngrödd og sel- ló, Einvera fyrir söngrödd, klarínett og víólu eftir Sesselju Guðmunds- dóttur, ljóð fyrir söngrödd, víólu og píanó eftir Brahms, ljóðaflokkinn Sieben frúhe lieder eftir Alban Berg og aríur úr óperum eftir Purcell og Mascagni. „Mér finnst þetta rosal- ega skemmtileg efnisskrá. Hún er fjölbreytt og spannar mjög vítt svið í tónlistarsögulegu samhengi. Það er ákaflega erfitt að gera upp á milli verkanna en ef ég þyrfti að nefna eitthvað þá myndi ég líklega segja Sieben frúhe lieder eftir Alban Berg. Þessi ljóðaflokkur er ótrúlega falleg- ur eins og flest verka hans.“ Eydís hóf tónlistarnám við Tón- listarskólann á Akureyri, í fiðlu- leik, víóluleik og siðar einsöng. Hún nam síðar við hið konunglega Concervatorium í Brussel og Cons- ervatorium í Amsterdam. Síðan hóf hún nám við Söngskólann í SLAÐU BLETTINN Eurovision í kvöld Sér um skipulagningu útsendingar Dimma og Hellshare-tónleikar Hljómsveitirnar Dimma og Hells- hare halda sameiginlega tónleika á Cafe Amsterdam á laugardaginn. Tónleikarnir hefjast upp úr mið- nætti og þeim lýkur um einum og hálfum tíma síðar. Eftir tónleikana tekur plötusnúður við og heldur uppi stuðinu fram undir morgun. Frítt inn. 20 ára aldurstakmark. Sakamálamynd í MÍR Sakamálamynd frá árinu 1979 með Vladimír Vysotský, hinum fræga leikara, skáldi og trúbador, í aðalhlutverki verður sýnd í MÍR, Hverfisgötu 105, næstu tvo sunnu- daga. Myndin, Mótstaðnum verður ekki breytt, er í 5 hlutum og verða þrír fyrstu sýndir sunnud. 21. jan. kl. 15-19. Ókeypis aðgangur. Sólstafir í Nýlistarsafninu Hljómsveitin Sólstafir mun halda tónleika í Nýlistarsafninu að Grett- isgötu á laugardagskvöldið. Mun nýtt efni verða leikið í bland við eldra. Tónleikarnir hefjast kl. 22 og standa í klukkustund. Ókeypis inn. Ikvöld mun megnið af íslensku þjóðinni setjast niður fyrir framan sjónvarpsskjáinn til að horfa á fyrsta útsláttarkvöldið í keppninni um framlag íslands í Eurovision-söngvakeppninni. í kvöld munu fyrstu átta lögin verða kynnt og öll herlegheitin sýnd í beinni útsendingu. Það er fram- leiðslufyrirtækið Basecamp sem hefur veg og vanda af útsendingu forkeppninnar. Basecamp ætti ekki að vera ókunnugt Eurovision-keppn- inni því fyrirtækið sá einnig um út- sendingu keppninnar í fyrra. Sigurður Freyr Björnsson er fram- kvæmdastjóri útsendingarinnar fyrir hönd Basecamp og hann bíður spenntur eftir því að berja afrakstur erfiðisvinnu undanfarinna mánaða augum. „Þetta leggst bara ljómandi vel í mig. Undirbúningurinn hófst um miðjan nóvember þannig að framleiðsluferlið er búið að vera um tveir mánuðir.“ Nú stendur yfir lokaundirbúningur fyrir útsending- una og Sigurður segir að nánast hafi verið unnið allan sólarhringinn síð- astliðna daga. „Ég hef ekki sofið mikið undanfarnar nætur en samt alveg nóg.“ Keppnin er haldin í Basecamp- verinu í Héðinshúsinu við Mýrar- götu. „Þar erum við búin að gera heljarinnar mikið myndver, svið og sal sem rúmar 600 áhorfendur.“ Sigurður segir að enn séu nokkur sæti laus á fyrsta útsláttarkvöldið. ,Fyrst og fremst er þetta hugsað sem fjölskylduskemmtun og markmið okkar er að framleiða vandað og skemmtilegt sjónvarpsefni fyrir landsmenn. En að sama skapi er þetta skemmtun þar sem fólk getur komið og greitt sig inn og fengið að njóta þess að horfa á þetta.“ Hann segir að lykillinn að því að skila af sér velheppnaðri sjón-

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.